Fréttablaðið - 23.12.2005, Blaðsíða 64
52 23. desember 2005 FÖSTUDAGUR
INNIHELDUR M.A.
• BAKVIÐ TJÖLDIN OG GERÐ ÞÁTTANNA
• TRYGGÐU ÞÉR EINTAK Í NÆSTU VERSLUN
FYNDNUSTU LEIKARAR LANDSINS FARA Á KOSTUM
Í SKEMMTILEGUSTU GAMANSERÍU SÍÐARI ÁRA!
SERÍA 1 LOKSINS FÁANLEG Á DVD!
TRYGGÐU ÞÉR ÞiNN SKAMMT Í NÆSTU VERSLUN
HANDBOLTI HSÍ hefur skilað inn
leikmannalista með 24 leikmönn-
um fyrir EM í Sviss. Hópurinn
var birtur á heimasíðu mótsins
í gær en ástæðan fyrir því að lið
senda inn lista með 24 mönnum er
sú að hægt er að skipta út tveim
mönnum eftir riðlakeppnina en
einum eftir milliriðlana. Þeir sem
koma til greina eru á þessum 24
manna lista og því er ljóst hvaða
leikmenn eiga möguleika á síðasta
farmiðanum til Sviss en Viggó
Sigurðsson landsliðsþjálfari ætlar
að tilkynna um valið á sextánda
manninum á milli jóla og nýárs.
Athyglisvert er að sjá að fimmt-
án af sextán fyrstu nöfnunum á
listanum eru í landsliðshópnum en
Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari
valdi aðeins fimmtán menn og hélt
einu sæti opnu. Baldvin Þorsteins-
son er óstaðfesti leikmaðurinn
sem er talinn upp á meðal sextán
fyrstu en hann er talinn líklegur
til að hreppa síðasta sætið. Ef mið
er tekið af þessari uppröðun er
ljóst að Baldvin stendur vel.
Önnur nöfn á listanum eru
Ásgeir Örn Hallgrímsson, Heim-
ir Örn Árnason, Vilhjálmur Hall-
dórsson, Jónatan Magnússon,
Björgvin Páll Gústavsson, Einar
Örn Jónsson, Logi Geirsson og
Ingimundur Ingimundarson. Logi
og Ingimundur eru meiddir og
koma því ekki til greina frekar
en Björgvin Páll Gústavsson enda
valdi Viggó þrjá markverði.
Vilhjálmur á síðan ekki mögu-
leika samkvæmt yfirlýsingum
Viggós um daginn og Einar Örn
á litla möguleika þar sem margir
örvhentir eru komnir í hópinn.
Valið stendur því klárlega á
milli Baldvins, Ásgeirs Arnar og
Jónatans. - hbg
Hver fær sextánda sætið
í EM-hópi Viggós?
Það er ljóst hvaða leikmenn berjast um sextánda sætið í landsliðshópnum fyrir
EM í Sviss en HSÍ hefur skilað inn leikmannalista með 24 leikmönnum.
BALDVIN ÞORSTEINSSON Kemur sterklega til greina sem sextándi maðurinn á EM í Sviss.
FÓTBOLTI Þýski miðjumaðurinn
Dietmar Hamann mun að öllum
líkindum framlengja samning sinn
við Liverpool til eins árs. Hamann
gerði nýjan samning síðasta sumar
sem í var klausa um að framlengja
núna ef vel gengi. Sú klausa verð-
ur nýtt, að því er fram kemur í
breskum fjölmiðlum í gær.
Hamann, sem er 32 ára, er
búinn að vera í herbúðum Liver-
pool síðan 1999 er félagið keypti
hann frá Newcastle. Hann hefur
leikið 166 leiki fyrir Liverpool og
skorað í þeim átta mörk.
Dietmar Hamann:
Ætlar að
framlengja
FÓTBOLTI Knattspyrnuunnendur
glöddust mjög þegar dregið var
í undanúrslitum enska deilda-
bikarsins enda voru Arsenal og
Manchester United ekki dregin
gegn hvort öðru og því möguleiki
á draumaúrslitaleik.
Arsenal mætir Wigan en Man.
Utd. tekur á móti Blackburn. Leik-
irnir fara fram 9. og 23. janúar
næstkomandi.
Enski deildabikarinn:
Arsenal og Man.
Utd. í úrslitum?
GILBERTO SILVA Sá til þess að Arsenal
komst áfram í keppninni með dramatísku
marki í framlengingu gegn Doncaster.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
GOLF Samtök atvinnugolfkvenna
hafa ákveðið að veita hinni stór-
efnilegu Morgan Pressel undan-
þágu og hún fær því að taka þátt
í LPGA-mótaröðinni áður en hún
verður 18 ára en reglur mótarað-
arinnar kveða á um að þáttakennd-
ur verði að hafa náð 18 ára aldri.
Pressel er 17 ára og meistari
áhugamanna. Hún tók þátt í sjö
mótum á mótaröðinni síðast og
komst í gegnum niðurskurðinn á
þeim öllum og lét verulega að sér
kveða. Hún er önnur stúlkan sem
fær undaþágu frá reglum mót-
araðarinnar en hin var tælenska
stúlkan Aree Song.
Hin 16 ára Michelle Wie ætlar
ekki að sækja um aðgang að
mótaröðinni fyrr en hún verður
18 ára.
Morgan Pressel:
Komin á
mótaröðina
MORGAN PRESSEL Ein efnilegasta golfkona
heims. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES