Fréttablaðið - 23.12.2005, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 23.12.2005, Blaðsíða 32
[ ] OPIÐ TIL KL. 23 Sölustaðir Penninn Mál og Menning Bókabúðin Hlemmi Skífan Iða 305 verslanir Næg bílastæði MIÐBORGIN JÓLALEGA Guðrún Heimisdóttir er mörgum krökkum kunn úr Stundinni okkar en hún hefur kynnt gæludýr í þættinum í nærri tvö ár. Um þessi jól kemur út fjölskyldubók eftir Guðrúnu, Gæludýrin okkar, sem ætluð er börnum á öllum aldri. „Bókin mun nýtast foreldrum líka af því að þegar fólk fær sér dýr, þá er það öll fjölskyldan sem tekur dýrið,“ segir Guðrún. Í bókinni eru sögur um dýr eftir Guðrúnu sem heilla sérstak- lega yngri börnin, en eins er að finna upplýsingar um umhirðu dýranna, sem og skemmtilegar staðreyndir um dýr, eins og það að bara læður geta verið þrílitar og að heili strútsins er minni en annað augað í honum. Ritmálið er einfalt, letrið stórt og myndirnar lifandi og skemmtilegar. „Þegar ég fór að vinna fyrir Stundina okkar þá fór ég að leita mér að upplýsingum um gæludýr- in, og komst að því að bókaflóran um gæludýr er mjög lítil á Íslandi, og mér fannst vanta handbækur um dýrin þannig að fólk væri ekki að kaupa sér fugl og svo væru bara allar upplýsingar að finna annað hvort hjá fólkinu í dýrabúðinni eða á netinu,“ segir Guðrún, sem er að ljúka mastersnámi í blaða- og fréttamennsku frá Háskóla Íslands þessi jólin. Guðrún á þrílita læðu sem heit- ir Sorpa því hún fannst í Sorpu. „Það var einhver sem ætlaði að henda henni en það var farið með hana í Kattholt og ég fékk hana þar. Sem betur fer fannst hún, því þau finnast náttúrulega ekkert öll, þessi dýr sem fólk losar sig við á þennan hátt,“ segir Guðrún og bætir við að mun mannúðlegra væri að skilja dýrin eftir í kassa fyrir utan hjá dýralækni, ef fólk hefur ekki efni á að láta svæfa þau. En þegar Guðrún flutti inn í íbúðina sína, sem er á þriðju hæð í fjölbýlishúsi, þá skildi hún kisu eftir hjá foreldrum sínum því Sorpa er útikisa og hefði ekki verið hamingjusöm innilokuð. „Það verður ekki fyrr en ég flyt í annað húsnæði sem ég get fengið Sorpu til mín og þá get ég kannski fengið mér hund líka. Í millitíð- inni læt ég mér bara nægja að fá lánuð dýr og mæta með þau í sjón- varpið,“ segir Guðrún. Mál og menning gefur bókina út og kostar hún 2.490 krónur, en myndirnar í bókinni eru margar úr Stundinni okkar. smk@frettabladid.is Gæludýrabók handa krökkum Flestir krakkar eru hrifnir af dýrum og bók Guðrúnar Heimisdóttur, Gæludýrin okkar, er upplögð gjöf handa allri fjölskyldunni. Reynir Traustason hefur árum saman reynt að kenna börnun- um sínum fimm að meta skötu, og hefur tekist það með eldri börnin, en yngsta barnið, níu ára hnáta, neitar enn að láta hana inn fyrir sínar varir. „Ég verkaði skötu í mörg ár en eftir að ég kom hingað suður í sollinn, þá kaupum við hana bara,“ segir Reynir Traustason ritstjóri. „Það er alltaf gaman þegar fólk sam- einast um skötuna, en það hefur alltaf verið átakapunktur þegar við höfum verið að venja yngstu börnin á hana. Nú er yngsta barn- ið níu ára og það hefur enn ekki tekist að svæla ofan í hana sköt- unni og spurningin er hvort það tekst í ár.“ Elstu börn Reynis eru mjög hrifin af skötu, þó menntaskóla- neminn smakki hana reyndar bara til málamynda, að sögn Reynis. Annað sem fjölskylda Reynis gerir er að borða jólagrautinn í hádeginu á aðfangadag, og gefa möndlugjöfina þá. „Það kom nú reyndar bara til af því að það voru allir allt of saddir eftir hamborgarhrygginn og höfðu ekki lyst á grautnum, svo við bara færðum hann í hádegið á aðfangadag,“ segir Reynir. Skötuslagurinn mesta átakamálið KertasníkirÞrettándi var Kertasníkir, - þá var tíðin köld, ef ekki kom hann síðastur á aðfangadagskvöld. Höf. Jóhannes úr Kötlum Síðasti jólasveinninn sem kemur til byggða er Kertasníkir en hann kemur í kvöld. Í gamla daga elti hann uppi litlu börnin, sem trítluðu glöð og fín um bæinn með tólgarkert- in sín og reyndi að hafa kertin af þeim. Í eldgamla daga voru kertin skærustu ljósin sem fólk gat fengið og voru þau sjaldgæf og dýrmæt. Mesta gleði barnanna á jólunum var að fá sitt eigið kerti, og vesalings Kertasníki langaði líka til að eignast kerti. Kertasníkir gefur í skóinn í kvöld og sameinast svo bræðrunum sínum tólf á aðfangadag til að halda heilög jól. jólasveinar } MYND/ÞJÓÐMINJASAFNIÐ Reynir Traustason ritstjóri verkaði skötu í mörg ár. Guðrún Heimisdóttir og kötturinn Sorpa eru komnar í jólaskap. FRÉTTABLAÐIÐ/VILLI Jólakveðjur eru alltaf lesnar í útvarpinu á Þorláksmessu. Margir geta ekki hugsað sér að missa af lestrinum og það gleður þá mikið þegar þeir fá kveðjur frá ættingjum og vinum. ���������������� �������������������������������� ����������������������������������������������� ������������������������������������������������������������� �������������������� ��������������������������������� � �� �� � ��� �� �� �� �� C M Y CM MY CY CMY K Kokk2x10DAGBLAUGL011205.pdf 6.12.2005 23:07:45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.