Fréttablaðið - 23.12.2005, Page 8

Fréttablaðið - 23.12.2005, Page 8
8 23. desember 2005 FÖSTUDAGUR VEISTU SVARIÐ 1 Hverju fögnuðu ásatrúarmenn í fyrradag? 2 Hvað verður forseti Íslands með í laun á mánuði eftir áramót? 3 Hvað heitir fyrirtækið sem nú sér um flutning raforku hérlendis? Svörin eru á blaðsíðu 58 Birta er komin út! MEST LESNA TÍMARIT LANDSINS Ný stæ rri og b etri sjó nvarps dagskr á Þrír kátir krakkar með krefjandi áhugamál Tvenn hjón í teiknimyndasögugerð Jólabrennsla Helgu Möller Piparmyntujól Langbesta sjónvarpsdagskráin BAGDAD, AP Bandaríkjamenn segja ásakanir Saddams Hussein um að hann hafi sætt pyntingum í varðhaldi þeirra algeran þvætting. Saddam sakaði þá á móti um lygar við réttarhöldin í gær. Á miðvikudaginn kvartaði Sadd- am sáran undan vistinni hjá Banda- ríkjaher og sagðist hafa verið barinn. Barry Johnson, ofursti og formælandi hersins sagði í kjölfar- ið ásakanirnar „algjörlega raka- lausar“ en sagði að herinn væri engu að síður tilbúinn að skoða málið. „Við viljum hins vegar ekki verða dregnir inn í þessi belli- brögð sem greinilega eiga að trufla réttarhöldin,“ bætti hann við. Við réttarhöldin í gær var Sadd- am við sama heygarðshornið og sagði að ekkert mark væri hægt að taka á orðum Bandaríkjamanna. „Síonistar og Bandaríkjamenn, ég meina réttarstarfsmenn, hata Saddam Hussein. Við ljúgum engu, Hvíta húsið lýgur. Það sagði ger- eyðingarvopn vera í Írak sem það varð síðar að draga til baka.“ Hann ítrekaði svo að hann hefði marg- sinnis verið barinn og sum sárin hefðu ekki gróið fyrr eftir marga mánuði. Á meðal þeirra sem báru vitni fyrir dóminum í gær var maður sem var átta ára þegar fjöldamorð- in í Dujal áttu sér stað árið 1982. Hann sagði að flestir ættingjar sínir hefðu verið myrtir eftir pynt- ingar leyniþjónustumanna. Síðdegis í gær var svo réttar- höldunum frestað til 24. janúar. - shg LÆTUR GAMMINN GEISA Bandaríkjaher segir ekkert hæft í ásökunum Saddams. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Bandaríkjamenn þvertaka fyrir að hafa pyntað Saddam Hussein: Saddam sakar þá um lygar DÓMSMÁL Ákvörðun um refs- ingu yfir 26 ára gamalli konu var frestað í tvö ár, haldi hún almennt skilorð þann tíma samkvæmt nýföllnum dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra. Konan játaði fyrir dómi að hafa slegið aðra konu krepptum hnefa á vinstri kjálka á veitinga- staðnum Gamla-Bauk á Húsavík, föstudagskvöldið 24. júní sl. Sú féll við og hlaut nokkur andlits- meiðsli, bólgur og mar á kjálka og tognun í hnakka og kjálkaliðum. Fram kemur í dómnum að konan sem kýldi hafi ekki áður sætt refsingu dómstóla. Sökum þess og að hún játaði brot sitt ský- laust fyrir dómi, var refsingunni frestað. Þó þarf konan að greiða 100 þúsund krónur í málskostnað. - óká Refsiákvörðun frestað: Játaði að hafa kýlt aðra konu TRYGGINGAR Árið 2005 er dýrasta árið í tryggingasögunni eftir allar náttúruhamfarirnar sem hafa dunið á heimsbyggðinni. Hamfarirnar eru taldar hafa kostað jafngildi átján þúsund milljarða króna og þar af lenda 6.400 milljarðar á trygginga- fyrirtækjunum, sem er mesti kostnaður nokkru sinni. Vefútgáfa n24.se segir að fyrir utan eignatjón hafi orðið mikið manntjón. Fellibylurinn Katr- ín og Stan sem hafi gengið yfir Norður- og Mið-Ameríku á árinu séu bara tvö dæmi. Katrín hafi ein valdið tjóni upp á tíu þúsund milljarða króna. Dýrustu náttúruhamfarirnar voru áður fellibylurinn Andrew sem gekk yfir Bandaríkin 1992 og olli þar tjóni sem nemur um 2.000 milljörðum króna. Þá voru árásirnar á World Trade Center í New York líka mjög dýrar. ■ Náttúruhamfarir árið 2005: Dýrasta ár í sögu trygginga HAWAII, AP Það fór betur en á horfðist þegar Jonathan Genant, 29 ára, var á sundi í sjónum við Keawakapu-strönd, úti fyrir Maui-eyju sem tilheyrir Hawaii. Fjögurra metra tígurháfur kom aðvífandi og læsti skoltinum utan um handlegg hans. Genant náði sem betur fer að rífa sig lausan og synda upp í fjöru. Hann slapp með minniháttar meiðsli því ófreskjan varð að láta sér nægja litlafingur og baugfingur í hádegisverð að þessu sinni. Rúmt ár er síðan hákarl réðist á fólk á Hawaii en í október í fyrra var stangveiðimaður bitinn illa. ■ Bandarískur sjósundkappi: Lenti í skolti stórs hákarls HRÓSAR HAPPI Jonathan Genant þykir heppinn að hafa aðeins misst tvo fingur í hákarlskjaftinn. SAMFÉLAGSMÁL Frá og með gær- deginum geta konur fengið mót- töku í Konukoti, sem er athvarf fyrir heimilislausar konur, hvenær sem er sólarhrings, allan ársins hring. Áður var þar opið einungis frá því klukkan sjö seinnipart dags og til klukkan tíu að morgni. Fjörutíu og fjórar konur hafa gist í Konukoti, sem er að Eskihlíð 4, frá því það var opnað fyrir rétt rúmu ári síðan. „Svo er kjarninn svona fimm til tíu konur sem koma aftur og aftur,“ segir Brynhild- ur Barðadóttir. Það er Reykjav í k ur - deild Rauða kross Íslands sem rekur Konukot en Félagsþjónust- an í Reykjavík leggur til húsnæðið og þann auka mannskap sem nú þarf vegna auk- innar þjónustu. Dvalargestir á Konukoti sem tóku á móti blaðamanni í gær voru að vonum ánægðir með breytinguna. Konurnar sögðu andann í húsinu sérlega góðan og báru engan kviðboga fyrir því að halda jól þar. Brynhildur segir það mikilvægt að konur geti komið í Konukot þó þær séu undir áhrifum vímuefna en slíkt viðgangist ekki í Kvennaathvarf- inu. Það gerir það að verkum að þær geti leitað í Konukot um leið og þörfin kemur upp, segir Bryn- hildur. - jse Þjónusta athvarfs fyrir heimilislausar konur í Reykjavík aukin: Konukot stendur alltaf opið KÁTAR Á KONUKOTI Björk Vilhelmsdóttir, formaður velferðarráðs, og Anna, gestur í Konu- koti, voru kampakátar í kotinu í gær. BRYNHILDUR BARÐADÓTTIR SAMFÉLAGSMÁL Hafdís Gísladóttir, framkvæmdastjóri Þjónustumið- stöðvar Miðbæjar og Hlíða, hitti fyrir Lee Reyni Freer, tjaldbúa í Öskjuhlíð, í tjaldi hans í gær- morgun. Var honum þá boðið í Gistiskýlið í Þingholtsstræti 25. Þar ræddi hann málin við Jónas Jónasson, forstöðumann Gisti- skýlisins, en Lee Reynir hafði staðið í þeirri trú að hann væri ekki velkominn þangað. Því næst var tjaldinu í Öskju- hlíð pakkað saman og komið fyrir í geymslu. „Við erum með mjög víðfeðma þjónustu fyrir heimilis- lausa og það á enginn að þurfa að búa í tjaldi,“ segir Jónas. „Hitt er svo annað hvað fólk kýs að gera. Við leggjum mest upp úr því að hjálpa fólki svo það geti síðar séð um sig sjálft og við erum að ná árangri. Á ekki svo löngum tíma eru um sjö einstaklingar sem áður voru götunnarmenn komnir í framtíðarbúsetu,“ segir hann. Gistiskýlið er bráðabirgðarúr- ræði en þangað geta heimilislausir alltaf fengið gistingu. Einnig er þeim þar liðsinnt um hvers- daglega hluti og boðin ráðgjöf. Rúm er fyrir fimmtán manns og segir Jónas útlit fyrir að um tólf til fimmtán manns verði þar um jólin. „Jólin eru gnægðartími fyrir útigangsmenn því þá eru allir til í að láta eitthvað af hendi rakna. Betlið gengur yfirleitt vel á Þor- láksmessu þannig að þeir hafa venjulega nægilegt bús á aðfanga- dag svo þeir hlakka til jóla líkt og flest fólk. Einnig er umræðan um hag þeirra sem minna mega sín í þjóðfélaginu mjög mikil á þessum tíma en svo vill þetta gleymast aftur í janúar.“ Reynt verður að halda gleðileg jól fyrir þá sem verða í Gistiskýl- inu um hátíðirnar. „Við höldum jólin þannig að það verður farið í jólamat niður á Hjálpræðisher á aðfangadag. Svo komum við aftur hingað í hús um klukkan níu og höfum það bara notalegt. Svo á jóladag verður hangikjöt á boð- stólum,“ segir Jónas. Jónas hefur unnið í þessum málaflokki í áratugi og er því ekki skoðanalaus. „Ég hef oft verið gagnrýndur fyrir að segja það en ég tel að enginn sé svo illa kominn á Íslandi að hann geti ekki orðið sjálfbjarga.“ jse@frettabladid.is Enginn á að þurfa að búa í tjaldi Tólf til fimmtán manns munu halda jólin í Gistiskýlinu við Þingholtsstræti sem er athvarf fyrir heimilislausa. Framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar Miðbæjar og Hlíða bauð Lee Reyni, tjaldbúa í Öskjuhlíð, þangað í gær en hann taldi sig ekki velkominn þar. LEE REYNIR FREER OG JÓNAS JÓNASSON FORSTÖÐUMAÐUR GISTISKÝLISINS Vel fór á með þeim Lee Reyni og Jónasi þegar þeir ræddu málin í gær. Lee Reyni var skýrt frá því að hann væri ávallt velkominn í Gistiskýlið. HJÁLPARSTARF Þróunarsamvinnu- stofnun Íslands fékk á þriðjudag ríflega milljón króna fjárstyrk frá nemendum í Mýrarhúsa- skóla, Lágafellsskóla og Grund- arskóla til styrktar nauðstöddum í Malaví. Hugmyndin að framtakinu kviknaði í kjölfar frétta af upp- skerubresti í Malaví sem olli hungursneyð og var fjárins aflað með margvíslegum hætti. Skólarnir þrír hafa verið í vinasambandi við þrjá malavíska skóla og segja forráðamenn ÞSSÍ að vaxandi áhugi sé á slík- um samböndum hjá íslenskum grunnskólum. -sh Skólar safna styrktarfé: Rúm milljón til Malaví

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.