Fréttablaðið - 23.12.2005, Blaðsíða 33
FÖSTUDAGUR 23. desember 2005
Blómaval
50 prósenta afsláttur á ýmsum jóla-
vörum og jólaseríum. Þeir sem enn
vilja bæta í jóladótssarpinn ættu að
skella sér í búðarleiðangur þar sem
margar verslanir selja nú jólavörurnar
með nokkrum afslætti.
Kolaportið
Í Kolaportinu má finna margar góðar
jólagjafir á vægu verði. Þar að
auki er leikfangabásinn við
Kaffi Port með 50 prósenta
afslátt af leikföngum og
barnafatabásinn, sem er
staðsettur nálægt kókos-
bollunum, býður barnaföt á
góðu verði.
Fartölvur
Þeir sem ætla að gefa fartölv-
ur í jólapakkann, eða vantar
eina fyrir sjálfan sig, ættu að
líta inn í Svar í Síðumúla. Hjá
Svar eru Acer-fartölvurnar á
tilboði fram að jólum. Sjá
nánar á www.svar.is.
Stórútsala
Marimekko í Iðuhúsinu í Lækjargötu
er með 30 til 40 prósenta afslátt af
öllum fatnaði fram til jóla. Stórútsal-
an kemur til vegna flutninga og sá
fær sem fyrstur nær.
Myndavélar
Myndval í Mjóddinni býður jólatilboð
á stafrænum myndavélum frá
Canon, Samsung og Kodak og gildir
tilboðið meðan birgðir endast.
Jólafatnaður Hagkaups
Hagkaup er með 30 til 50
prósenta afslátt af völdum
vörum í verslunum sínum.
Meðal þess sem er á tilboði
eru True-jakkar og buxur,
ýmsir toppar, jakkapeysur,
bolir og hátíðlegar korsel-
ettur fyrir jól og áramót.
Frítt eða ekki frítt?
Á mörgum stöðum fylgir
góður glaðningur með vör-
unni eða vörunum. Látið samt ekki
blekkjast of auðveldlega þar sem
oft er gjöfin þeim skilyrðum háð að
keypt sé fyrir ákveðna upphæð til að
fá gjöfina. Reynið að vega og meta
hvort það sé þess virði að ná upp í
þá upphæð til að fá gjöf.
Espresso kaffivélar
Einar Farestveit &
co. er með glæsilegt
jólatilboð á Incanto
og Saeco espresso og
cappuccino kaffivélum.
Jólatilboð }
BLÓMÁLFURINN
Vesturgötu 4 sími 562 2707
Íslandsmeistari í blómaskreytingum
í i
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 10
sími 561 1300
Opnum á ný
eftir gagngerar
breytingar
Verið velkomin
í glænýja verslun
FRIÐARGÖNGUR VERÐA Í DAG Á
AKUREYRI, ÍSAFIRÐI OG Í REYKJAVÍK.
SAMSTARFSHÓPUR FRIÐARHREYFINGA
STENDUR FYRIR GÖNGUNUM.
Á Akureyri er lagt af stað kl. 20.00 frá
Menntaskólanum á Akureyri. Margrét
Heinreksdóttir flytur ávarp og kór Akur-
eyrarkirkju syngur. Gangan á Ísafirði hefst
kl. 17.45 við Ísafjarðarkirkju og gengið er
niður á Silfurtorg. Þar fer fram dagskrá
sem samanstendur af tónlist, ljóðalestri
og friðarhugleiðingum. Hörður Högna-
son formaður Rauða kross Ísafjarðar
heldur ræðu.
Í Reykjavík verður gengið með blys
frá Hlemmi niður Laugaveginn og að
Ingólfstorgi. Með í för verður söngfólk úr
Hamrahlíðarkórnum og kór Menntaskól-
ans við Hamrahlíð. Séra Bjarni Karlsson
heldur ræðu og fundarstjóri er Birgitta
Jónsdóttir ljóðskáld. Gangan hefst kl. 18.
Nánari upplýsingar er að finna á
www.fridur.is.
Gengið fyrir friði
Samstarfshópur friðarhreyfinga vill enda
aðild Íslands að stríði og hernámi í Írak.