Fréttablaðið - 23.12.2005, Qupperneq 34
23. desember 2005 FÖSTUDAGUR
Í hvert sinn sem Sonja Grant
og maður hennar vilja gera
sér dagamun um hádegisbil á
tyllidögum, þá kveikja þau á
kertaljósum, setja djassplötu
á fóninn og smyrja sér hátíðar-
smurbrauð.
„Þar sem ég átti danska ömmu,
hana Ellenu Grant, þá standa
danskir siðir mér mjög nærri.
Þó svo að ég hafi ekki endilega
alist upp við smurbrauð, annað
en ristað brauð með osti og sultu
og stundum súkkulaðiáleggi, þá
finnst mér ekkert eins gott eins
og að fá mér góða brauðsneið. Það
veitir mér mikla ánægju og færir
mig nær fortíðinni sem er mun
meira spennandi en framtíðin,“
segir Sonja Grant, framkvæmda-
stjóri kaffihúsa Kaffitárs.
„Mér finnst að sá tími sem fer
í að búa til og skreyta smurbrauð-
ið eigi að vera afslappaður og
skapandi og ég legg mikið upp úr
undirbúningi. Ég líki því stundum
við góðan forleik, eins og ég veit
að margir smurbrauðsmeistarar
gera.“
Sonja fær sér auðvitað ekki
svona fínt og rómantískt smur-
brauð á morgnana áður en hún
fer til vinnu, heldur hafa hún og
maður hennar, Hjalti Sveinn Ein-
arsson, þetta til hátíðabrigða, og
hafa komið sér upp skemmtilegri
smurbrauðshefð um jól og ára-
mót.
UPPSKRIFT AÐ RÓMANTÍSKU HÁTÍÐA-
SMURBRAUÐI, YFIRLEITT HUGSAÐ
FYRIR TVO:
Andrúmsloft:
Kertaljós, góð tónlist á fóninn, persónur og
leikendur verða að vera á náttfötunum.
Hráefni:
- Fyrst og fremst þarf brauðið að vera gott,
og þessa dagana heldur Sonja mest upp á
sólkjarnarúgbrauð frá Gæðabakstri.
- Grófkorna sinnep, sterkt og helst lífrænt,
alls ekki sætt.
- Jólasíld frá Fylgifiskum.
- Radísur saxaðar
- Klettasalat
- Íslenskir kirsuberjatómatar
- Feti í kryddolíu frá Mjólku
- Spæld egg, báðum megin
- Hörfræ
- Salt og pipar
- Parmaostur (parmeggiano)
Aðferð:
Setjið tvær brauðsneiðar á hvern disk.
Smyrjið þær með grófkorna sinnepinu.
Setjið síldina á brauðsneiðarnar, lágmark
sex bitar af síld á hvern disk.
Radísurnar settar ofan á síldinia.
Setjið klettasalatið yfir, um eina lúku á hvern
disk, jafnvel tvær ef rómantíkin á að vera
ógleymanleg.
Gott að setja smá ólífuolíu ofan á salatið.
Skerið tómatana í sneiðar, að minnsta kosti
tvo tómata á hvern disk ofan á salatið.
Setjið feta ofan á.
Hörfræin eru ómissandi og eiga að koma
ofan á ostinn.
Gott að pipra aðeins þegar hér er komið
sögu, og að sneiða parmaostinn yfir.
Steikja eggin, tvö egg á disk, báðum megin.
Þau eiga að vera örlítið blaut í miðjunni og
setja þau síðan yfir rómatíkina. Gott er að
salta eggin aðeins.
ÓMISSANDI DRYKKUR MEÐ HÁTÍÐA-
BRAUÐINU:
Hella upp á Java frá Jampit-héraðinu eða
Mokka Java frá Kaffitári. Sonju finnst best að
hella upp á í mokkakönnu á hellu eða upp
á gamla mátann.
„Reyndar á gamlársdag gerum
við Hjalti alltaf undantekningu og
fáum okkur Thule bjór í flösku og
skot af íslensku brennivíni, meðan
við gæðum okkur á hátíðabrauð-
inu,“ segir Sonja.
smk@frettabladid.is
Hátíðasmurbrauð,
kertaljós og kaffi
Sonja Grant er mikill listakokkur og gefur hér uppskrift að rómantísku dönsku smurbrauði.
GERT ER RÁÐ FYRIR ÞVÍ AÐ FJÓRAR TIL SEX KONUR GISTI Í KVENNAATHVARFINU
Á JÓLANÓTT. ÞRÁTT FYRIR ERFIÐAR AÐSTÆÐUR VERÐA JÓLIN HALDIN GLEÐILEG
SEGIR DRÍFA SNÆDAL, FRAMKVÆMDASTÝRA KVENNAATHVARFSINS.
Misjafnt er hversu margar konur hafa
gist á jólanótt í Kvennaathvarfinu
síðustu ár. Drífa segir að margir af
gestum athvarfsins fari í mat til vina
eða ættingja á aðfangadag en þó
má búast við fjórum til sex konum í
jólamat klukkan 18. „Það er misjafnt
hvað við höfum í matinn en það
verður einhver góð steik,“ segir Drífa.
„Svo eru jólapakkar undir jólatrénu
við hæfi hvers og eins.“
Kvennaathvarfið hefur undanfarin
ár fengið matar- og sælgætisgjafir
frá fyrirtækjum og eru þær alltaf vel
þegnar. „Þessar gjafir hjálpa okkur að
gera jólin gleðileg hér í athvarfinu,“
segir Drífa.
Jól í Kvennaathvarfinnu
Ekki eiga öll börn gleðileg jól.
Langholtsveg 17 Sími 553-6191
Snyrti-Nudd og Fótaa›ger›arstofan
GJAFAKORT
Jólagjöfin í ár fyrir mömmu og pabba, afa og ömmu.
JÓLAGJAFASTEMNINGIN SEM JÓLIN
VIRÐAST OFT SNÚAST UM ERU EKKI
NEMA HUNDRAÐ ÁRA GAMALL
SIÐUR SEM HEFUR ÞRÓAST FRÁ
ÞVÍ AÐ BÖRNIN FENGU EITT KERTI
Í JÓLAGJÖF Í AÐ ÞAU FÁI JAFNVEL
PLASMASKJÁI Í JÓLAPAKKANN.
Gjafir á jólum þekktust lengi vel
meðal kóngafólks og höfðingja fyrr
á öldum en á Íslandi eru sumar-
gjafir mun eldri siður en jólagjafir.
Um jólin var reyndar siður að gefa
heimilismönnum nýja flík og nýja
sauðskinnskó en ekki var litið á
þessar gjafir sem sérstakar jólagjafir,
heldur meira eins og launauppbót.
Snemma á 19. öld var sá siður
kominn á að gefa hverju barni kerti
á jólunum. Þá voru kertin úr tólg og
þóttu mikil og góð gjöf þar sem þau
lýstu mun betur en týran sem kom
úr lýsislampanum.
Eftir miðja 19. öld fóru svo jólagjafir
í nútímastíl að verða meira áberandi
og má að hluta til rekja það til
sölubúðanna sem fór ört fjölgandi.
Þegar nær dregur 20. öldinni spretta
upp jólaauglýsingarnar fyrir jólin og
er elsta jólagjafaauglýsingin sem
fundist hefur í blaði frá árinu 1866.
Með auknu verslunarfrelsi og
aukinni blaðaútgáfu og prentun fór
kraðakið af stað og hafa jólagjafa-
kaupin þróast í það sem við þekkj-
um nú á tímum.
Gjafir fyrir kónga
Það er opið lengur í flestum
verslunum í kvöld enda margir
að klára jólainnkaupin.
Almennt gildir að verslanir séu
opnar til kl. 23 í kvöld. Þetta á við
um Kringluna, Smáralind, Glæsi-
bæ og auðvitað miðborgina. Flestar
verslanir opna milli 10 og 11.
Ýmislegt er gert til að skemmta
viðskiptavinum. Í Kringlunni má
heyra lifandi jóladjass, Nylon og
Heiða syngja, flutt verða brot úr
söngleiknum Annie og nemendur
Dansskóla Jóns Péturs og Köru sýna
listir sínar. Í Smáralindinni sér Afi
frá Stöð 2 um dagskrána en honum
til halds og trausts eru Sigga og
Grétar úr Stjórninni. Heitar lumm-
ur og Spark spila einnig fyrir gesti
og Birgitta Haukdal skemmtir.
Það er hefð hjá mörgum að ganga
Laugaveginn á Þorláksmessu en
ýmsir kórar, brassbönd og harmon-
ikkuleikarar halda utan um stemn-
inguna auk þeirra listamanna sem
koma fram víðsvegar á kaffihúsum
og skemmtistöðum.
Opið lengi
Laugavegur 58 • 101 Reykjavík • S: 551-4884
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
ÍSLENSK HÖNNUN & FRAMLEIÐSLA
Laugavegi 59 • 3. hæð Kjörgarði • 561 5588
Sundföt sem passa
Gjafabréf