Fréttablaðið - 23.12.2005, Side 62
sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
DESEMBER
20 21 22 23 24 25 26
Föstudagur
■ ■ SJÓNVARP
18.00 Íþróttaspjallið á Sýn.
18.12 Sportið á Sýn.
18.30 NFL-tilþrif á Sýn.
19.00 Gilette-sportpakkinn á Sýn.
19.30 US PGA Monthly á Sýn
20.30 Motorworld á Sýn
FÓTBOLTI Knattspyrnukappinn Páll
Einarsson hefur íhugað það síð-
ustu vikur hvort hann ætti að halda
áfram í fótbolta eða hreinlega að
hætta í kjölfar þess að hann varð
að yfirgefa herbúðir uppeldisfé-
lags síns, Þróttar, vegna deilna
við þjálfara liðsins, Atla Eðvalds-
sonar. Eftir langa yfirlegu ákvað
hann að halda áfram enda aðeins
33 ára gamall.
„Það var ekki erfið ákvörðun
að ganga til liðs við Fylki enda
spennandi félag. Vissulega íhug-
að ég það alvarlega að hætta. Ég
skoðaði málið frá öllum hliðum og
niðurstaðan var að halda áfram.
Ég á góða konu og hún stóð með
mér. Maður tekur ekki þátt í bolt-
anum nema fjölskyldan standi
með manni,“ sagði Páll, sem er
búinn að ganga frá starfsloka-
samningi við Þrótt og er því ekki
lengur skráður Þróttari. „Það er
sérstök tilfinning að vera hættur
í Þrótti enda þekki ég ekki annað
en að vera í Þrótti.“
Páll neitar því ekki að hann
hefði gjarna kosið að yfirgefa
Þrótt á annan hátt en raunin
varð. „Svona þróuðust hlutirn-
ir og maður verður að lifa með
þvi,“ sagði Páll en þó hann sé ekki
sáttur við ákveðna einstaklinga í
Þrótti er hann ekki búinn að snúa
baki við félaginu.
„Ég mun mæta á leiki hjá Þrótti
svo framarlega sem leikirnir
skarast ekki á við Fylkisleikina.
Ég mun hvetja mína menn,“ sagði
Páll en mun hann hvetja Atla
Eðvaldsson, þjálfara Þróttar? „Ég
mun nú ekki hvetja hann neitt
sérstaklega en ég hvet strákana í
liðinu áfram. Ég hætti ekkert að
vera Þróttari.“
henry@frettabladid.is
Hætti ekki að vera Þróttari
Páll Einarsson er genginn í raðir Fylkis frá Þrótti. Páll segir spennandi tíma
framundan hjá Fylki. Hann ætlar að mæta á leiki hjá Þrótti næsta sumar.
LENTUR Í LAUTINNI Páll Einarsson sést hér ásamt þjálfurum Fylkis, þeim Leifi Garðarssyni
og Jóni Sveinssyni, eftir undirskriftina í fyrradag. MYND/FYLKIR
66 23. desember 2005 FÖSTUDAGUR
> Átta frá FH og Stjörnunni
Þeir Kristján Halldórsson, þjálfari
Stjörnunnar, og Aðalsteinn Eyjólfsson,
þjálfari FH, voru fengnir til að velja og
stjórna kvennalandsliðinu handbolta í
kynningarleik gegn úrvalsliði Asturias á
milli jóla og nýárs en landsliðsþjálfarinn
Stefán Arnarson hafði ekki tök á því að
fara í ferðina af persónulegum ástæð-
um. Athygli vekur að átta af þeim tólf
stúlkum sem valdar voru í hópinn koma
einmitt úr herbúðum FH og Stjörnunnar
og ber ekki á öðru en að þeir Kristján
og Aðalsteinn treysti sínum
eigin leikmönnum
best fyrir verkefn-
inu...
Björgvin úr leik
Skíðakappinn Björgvin Björgvins-
son frá Dalvík náði sér ekki á strik
á heimsbikarmóti í Slóveníu gær.
Björgvin tók þátt í svigkeppninni en
eins og svo oft áður í vetur féll hann
í fyrri ferðinni.
„Það hefur gengið vel en ég get nú ekki
sagt að ég hafi átt von á þessu,“ segir
landsliðskonan Þóra Björg Helgadóttir,
nú ekki aðeins í fótbolta heldur einnig
í handbolta. Þóra er ein tólf stúlkna
sem valdar hafa verið fyrir Íslands hönd
til að leika gegn úrvalsliði Asturias á
Spáni í handbolta. Þóra hefur verið
fremsti fótboltamarkvörður landsins til
margra ára en í haust reimaði hún á sig
handboltaskóna eftir fimm ára útlegð frá
íþróttinni, fyrir utan „smá sprikl“ eins og
hún orðar það.
„Ég hætti í handbolta þegar ég flutti til
Bandaríkjana árið 2000 svo að þetta
hefur verið löng pása,“ segir Þóra, sem
missti af upphafi handboltatímabilsins
í haust en hóf að spila með FH-ingum
um leið og síðasta verkefni landsliðsins í
fótbolta var á enda í lok september.
Á árum áður æfði Þóra handbolta af
krafti, lék lengi vel í efstu deild áður en
hún hélt utan í nám og á nokkra leiki að
baki með U-21 árs landsliðinu.
Þóra segir handbolta og fótbolta vera
eins og svart og hvítt. „Þetta
er gjörólíkt en handbolti er
hrikalega skemmtilegur,“
segir Þóra og bætir
því við að hún geti
ekki gert upp á
milli íþróttanna.
„Það fer eftir
því hvaða
dagur
vikunn-
ar er
hvort
mér finnst skemmtilegra.“
Þátttaka Þóru með FH í handboltanum
er í fullu samráði við stjórnendur Breiða-
bliks í fótboltanum. Hins vegar er ekki
komið á hreint hvernig málum verður
hagað eftir áramót þegar undirbúnings-
tímabilið fyrir fótboltann nær hámarki
og má fastlega gera ráð fyrir því að
þjálfarar Breiðabliks munu óska eftir
nærveru Þóru í marki liðsins í vorleikj-
unum. „Það yrði rosalega gaman að ná
að sameina báðar íþróttirnar en ég er í
krefjandi vinnu sem
einnig tekur tíma.
En það mál er í
vinnslu og verður
skoðað betur þegar
líður á næsta ár.“
FÓTBOLTAMARKVÖRÐURINN ÞÓRA BJÖRG HELGADÓTTIR: ORÐIN TVÖFÖLD LANDSLIÐSKONA
Þóra valin í landsliðið í handbolta
FÓTBOLTI Það var áhugavert að sjá
liðsuppstillingu ítalska félags-
ins Inter gegn Empoli síðastlið-
inn miðvikudag. Hvorki fleiri né
færri en sex Argentínumenn voru
í byrjunarliði félagsins í leiknum
en aðeins einn Ítaliu.
Þetta er aðeins í annað sinn
sem ítalskt félag teflir fram sex
mönnum frá sama landi utan Ítalíu
en Roma stillti upp sex Brasilíu-
mönnum í byrjunarliði sínu gegn
Venezia 7. apríl árið 2002.
Inter setti met í ítölsku knattspyrnunni:
Sex Argentínumenn í liðinu
JUAN SEBASTIAN VERON Einn sex Argent-
ínumanna sem voru í byrjunarliði Inter
gegn Empoli. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
Byrjunarlið Inter í leiknum
NAFN LAND
NICOLAS BURDISSO ARGENTÍNA
ESTEBAN CAMBIASSO ARGENTÍNA
WALTER SAMUEL ARGENTÍNA
SANTIAGO SOLARI ARGENTÍNA
JUAN VERON ARGENTÍNA
JAVIER ZANETTI ARGENTÍNA
ADRIANO BRASILÍA
JULIO CESAR BRASILÍA
GUISEPPE FAVALLI ÍTALÍA
OBAFEMI MARTINS NÍGERÍA
LUIS FIGO PORTÚGAL
FÓTBOLTI Harry Kewell, leikmaður
Liverpool, hefur ekki enn jafn-
að sig á gagnrýninni sem hann
fékk eftir úrslitaleikinn í Meist-
aradeildinni en margir töldu að
hann hefði gert sér upp meiðsli í
leiknum og farið af velli. Kewell
var þá mjög óvænt í byrjunarliði
Liverpool en hann hafði á þeim
tíma verið frá síðustu vikur vikur
vegna meiðsla.
,,Allir héldu að ég hefði gefist
upp. Ég trúði ekki viðbrögðun-
um frá öllu þessu fólki og hafði
ekki hugmynd um að það væru
til svona margir sjálfskipaðir
læknar,“ sagði Kewell hundfúll
en hann lék ekki aftur fyrr en í
lok september og virðist enn ekki
vera orðinn 100% heill.
,,Veit fólk af því að ég var víta-
skytta liðsins í leiknum? Hvers
vegna ætti ég að vilja fara af velli
þegar ég gat komist á blað í leikn-
um?,“ sagði Kewell. ■
Harry Kewell hjá Liverpool:
Ekki sáttur við
viðbrögð fólks
HARRY KEWELL Er ekki að taka gagnrýni vel
þessa dagana. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Hinn frábæri framherji
Barcelona, Kamerúninn Samu-
el Eto‘o, hefur ekki enn ákveðið
hvort hann muni taka þátt í afr-
íkumóti landsliða í janúar næst-
komandi. Eto‘o, sem nýverið varð
þriðji í kjörinu um besta leikmann
heims, er á báðum áttum hvort að
hann eigi að segja skilið við félaga
sína Í Barcelona og spila fyrir
þjóð sína á mótinu.
,,Ég hef enn tíma til þess að taka
ákvörðun í þessu máli og þegar ég
tek hana verður hún viðunandi
fyrir alla, bæði klúbbinn og lands-
liðið.“ Eto‘o hefur tvisvar sinnum
verið kjörinn besti leikmaður álf-
unnar og er hann tilnefndur til
verðlaunanna í þriðja sinn. ■
Samuel Eto´o:
Óákveðinn með
afríkumótið
SAMUEL ETO´O Gæti hunsað landslið Kam-
erún á Afríkumótinu FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES