Tíminn - 06.02.1977, Qupperneq 7
Sunnudagur 6. febrúar 1977
7
Jón Kristjónsson, ritstjóri Austra:
Tilgangur
síðdegisblaðanna
Hingað til hefur ekki verið
mikið gert að þvl 1 þessu blaöi
að blanda sér I þær umræður
sem átt hafa sér stað i slðdegis-
blöðunum um Framsóknar-
flokkinn og ráðherra hans, og
þau mál sem reynt hefur verið
að tengja honum. Má segja aö
þessi umræða hefur ekki verið á
svo háu stigi málefnalega, aö
fýsilegt sé að leggja þar orð I
belg. Þó verður ekki komizt hjá
að fara um þessi mál nokkrum
orðum, þar sem nokkur þátta-
skil hafa orðiö nú upp á slðkast-
ið I umræöunni og sá pólitiski
tilgangur, sem þarna liggur að
baki, hefur komiö berlegar I ljós
en áður.
Nýjar línur i
stjórnmálum
Greinilegt er að nýjar llnur
eru að skapast I stjórnmálum á
undanförnum mánuðum, og
jafnveler enn lengri aðdragandi
að þessu. Átök milli lands-
byggðarinnar og þeirra, sem
vilja halda hlut höfuöborgar-
svæðisins, hafa orðið skýrari.
Talsmenn höfuðborgarsvæðis-
ins hefur veriö að finna meðal
kaupsýslumanna I Sjálfstæðis-
flokknum og einnig I Alþýðu-
flokkknum, sem sækir atkvæði
sin einkum til þessa svæðis.
Rauði þráöurinn I áróðri þeirra,
sem málefnalegur getur kallazt
er andstaöa gegn rikisafskipt-
um og þrýstingur um niður-
skurð opinberra framkvæmda,
sem reynslan hefur sýnt . að
bitnar einkum á landsbyggð-
inni. Þá hefur verið ráðizt að
veigamiklum atvinnuvegum
eins og landbúnaði, en þar hefur
brugðið til beggja vona um hve
málefnalegir þessir talsmenn
hafa verið. Eins má nefna að
virkjunarframkvæmdir úti á'
landsbyggðinni, eins og Kröflu-
virkjun, hafa veriö gagnrýndar
harkalega af þessum aöilum, án
þess að taka sanngjarnt tillit til
þeirra erfiðleika, sem þar hafa
komið upp á daginn. Sams kon-
ar smásjá hefur ekki verið beitt
á Suðvesturlandssvæðinu, við
framkvæmdir viö Grundar-
tanga eða Sigöldu, þar sem
skakkaföll hafa einnig komið til
— ekki af völdum náttúruafla
heldur manna.
Allt hnlgur þetta I sömu átt,
viðleitni til aö skerpa and-
stæðurnar mili landsbyggöar-
innar og þéttbýlisins á Suð-
vesturhorninu.
Stjórnarsamstarfið
Sú stjórn, sem nú situr aö
völdum, er þessum mönnum
ekki að skapi. Þar kemur til að I
Sjálfstæöisflokknum erallsekki
eining um að þjarma aö lands-
byggöinni og Framsóknarflokk-
urinn hefur ætið barizt fyrir
hagsmunamálum hinna dreifðu
byggöa, enda sækir hann
þangað styrk sinn og er upp-
runninn úr þeim jarðvegi. Þess
vegna hefur verið unnið að þvi
með æ ljósari hætti að eyði-
leggja stjórnarsamstarfið,
koma höggi á Framsóknar-
flokkinn og forystumenn hans, i
vonum aðra viðreisnarstjórn að
loknum kosningum, þeim sem
Gylfi var að krefjast að færu
fram. Gylfi var orðinn svo ákaf-
ur og upptendraður af þessari
tilhugsun að hann taldi það nóg,
að biðja forsætisráðherra utan
dagskrár að gera þetta lltilræði
fyrir sig að rjúfa þing og efna til
nýrra kosninga. I nýrri við-
reisnarstjórn telja þau öfl, sem
hér hafa verið nefnd, sig hafa
töglin og hagldimar, meö þann
hluta úr Sjálfstæðisflokknum
sem vill núverandi stjórnar-
samstarf feigt, sem virðist vera
umtalsveröur hluti, eins og yfir-
lýsingar og kröfur Heimdalls og
Visis sýna. Þaö sýnir sig
væntanlega á næstu vikum
hvort þessir öfgamenn hafa
undirtökin eöa hófsamari
sjálfstæðismenn ráöa feröinni.
Siðdegisblöðin
Það er ekki Ur vegi áður en
lengra er haldið aö rifja upp þá
atburði sem urðu til þess aö Ut-
gáfa Dagblaösins hófst. Eins og
kunnugt er gáfu fjármála og at-
hafnamenn I Sjálfstæðisflokkn-
um VIsi Ut, en siðan varð
klofningur I þvi liði út af yfir-
ráðum yfir hlutafé, sem varö til
þess að útgáfa Dagblaðsins
hófst. Engar hugsjónir um
frjálsa og óháða blaöamennsku
voru nefndar i þessu sambandi,
og ég man, aö Þorsteinn Páls-
son lýsti þvi yfir i sjónvarps-
þætti á þessum tima að sér
hefðu alveg blöskrað aðferðirn-
ar sem notaðar voru I þessari
baráttu.
Slðan hófst æðisgengið kapp-
hlaup milli þessara blaöa um
sölu og æsifréttir, og allt kapp
var lagt á að sýna fram á, að
þessar fréttir væru sagöar Inafni
frjálsrar og óháðrar blaöa-
mennsku og rannsóknarblaða-
mennsku. Framan af haföi Dag-
blaðiö tilburði uppi til þess aö
gagnrýna ýmsar gerðir
sjálfstæöismanna og fá mennúr
ýmsum áttum til þess að rita í
blaðið, en gagnrýni þessi sem
áður er nefnd hefur farið
minnkandi og skrifin beinzt æ
meira að þvi pólitiska markmiði
sem rætt hefur verið hér um, að
eyðileggja stjórnarsamstarfiö
og koma höggi á Framsóknar-
flokkinn og forystu hans. Visir
hefur gengið hreint til verks i
þessu upp á siðkastiö og enginn
efast um tilgang hans og Al-
þýðublaöið er sem kunnugt er I
húsmennsku á þeim bæ og geng-
ur ekki hnifurinn I milli og mun
það áreiðanlega vera einsdæmi
um málgagn Jafnaöarmanna-
flokks að vera I svo nánum
tengslum við þá sem eru lengst
til hægri.
Hvort Dagblaöið og önnur slík
eru frjáls og óháö, það reynir
ekki á nema i kosningum og all-
ar staöhæfingar og slagorö um
sllkt Ut I bláinn fyrr.
Rógskrifin
Ég ætla mér ekki að eyða
miklu rúmi I aö rekja þau mál
sem á döfinni hafa verið og mest
til umræðu I siðdegisblöðunum.
Framsóknarmenn hafa enga
tryggingu fyrir. þvi að allir sem
styðja flokkinn hafi hreinan
skjöld. Flokksskirteini I öörum
flokkum er heldur ekki siö-
ferðisvottorð. Stjórnmála-
skoðanir afbrotamanna hafa
ekki verið umræöuefni fyrr en
nú i seinni tið og yfirgnæfa þær
umræöur það hvað þeir hafa
raunverulega brotiö af sér.
Hins vegar vil ég i sambandi
við umræður um dómsmál og
ástandið í þeim minna á það að
sjálfstæðismenn hafa farið með
dómsmál lengst allrá flokka nú
á siöustu áratugum og
hefði veriö i lofa lagiö aö
endurbæta þetta kerfi. Engar
tilraunir hafa verið gerðar I þá
átt fyrr en nú I tiö Ólafs Jó-
hannessonar. Hins vegar efast
ég ekki um að margir hafa veriö
náðaöir á valdatima þeirra eöa
hliðrað til með afplánum dóma.
Fróölegt væri að fá upplýsingar
um þaö hvort það hefur aldrei
veriö gert i tiö Bjarna, Jóhanns
Hafstein eöa Auðar Auöuns.
Um ásakanirgegn ráöherrun-
um Einari Agústssyni og ólafi
Jóhannessyni ætla ég ekki að
hafa mörg orð. Einar hefur gert
skilmerkilega grein fyrir sinum
hlut I þeim málum sem hann
hefur verið ásakaður fyrir. Um
Guöbjartsmáliö má segja það
að aldrei hefur þaö verið aöal-
atriöið i skrifum siödegisblaö-
anna hvað hann hefur brotið af
sér, heldur þaö með hverjum
hætti mætti bendla Einar
Agústsson við málið.
Adeilurnar og ásakanimar á
Ólaf Jóhannesson eru enn með
sama hætti og áður hefur ver-
ið.getsakir og rógur sitja þar i
fyrirrúmi, enda sá tilbúningur
algjörlega fráleitur. Eigendur
Klúbbsins hafa fengið sinn dóm,
en þrátt fyrir þaö er haldið
áfram dylgjunum, og nú er ein-
faldlega sagt, að allir dómarar
og yfirvöldl landinu séu vondir
framsóknarmenn. Fróölegt
væri að vita hve lengi má bjóða
almenningi upp á svona skrif.
Þaö má eiga von á áfram-
haldandi moldviöri á næstunni I
nefndum blöðum, þvl aðfa'öin
að endurtaka nógu oft er o'spart
notuð. Hins vegar er það trúa
min, að almenningur geri sér
gleggri grein fyrir þessum mál-
um áður en langt liöur og þeim
pólitlska tilgangi sem liggur
þarna að baki.
Stangaveiðimenn
Haukadalsá i Dalasýslu
neðan Haukadalsvatns er til leigu
veiðitimabilið 1977.
Tilboðum sé skilað fyrir 20. febrúar
n.k. til Kristmundar Guðbrands-
sonar, Skógskoti, Dalasýslu.
C '
LANDSVIRKJUN
óskar eftir tilboðum i að gera steinsteypt-
ar undirstöður og stagfestur fyrir stál-
turna i 220 kV háspennulinu frá Geithálsi
að Grundartanga i Hvalfirði (Hvalfjarð-
arlinu) ásamt lagningu jarðskauta og
jarðvirs.
útboðsgögn verða seld á skrifstofu Lands-
virkjunar, Suðurlandsbraut 14, Reykja-
vik, frá og með mánudeginum, 7. febrúar
1977 og kostar hvert eintak kr. 3.000.-.
Tilboðum skal skila á sama stað fyrir kl.
11.00 föstudaginn, 18. febrúar, 1977.
Mipolam
Q KANTA-LISTAR
66 Þ. ÞORGRIMSSON & CO
Armúla 16 « Reykjavík • síml 38640
Auglýsið í Tímanum