Tíminn - 06.02.1977, Side 11
Sunnudagur 6. febrúar 1977
n
Þróun landbúnaðar IV
Ræktun beitilands á láglendi hefur vaxiö ört. Framræsla mýra og áburður á úthaga auka
afrakstur landsins verulega. Myndin erfrá beitartilraunum I Alftaveri. — Ljósm: Jónas.
Ný hlaba. Bændur reisa nú stærri og vandabri byggingar en ábur, enda þörfin ab
sama skapi meiri. — Ljósmynd: Jónas.
.. ..... . H
FRAMLÖG
eða sjá fyrir. Hvort sú stefnir til
of mikillar framleiðslu eins og
ýmsir óttast, skal svo ósagt
látið, en augljöst er að gagn-
vart þvi væri eölilegra aö beita
öðrum ráðum en að draga úr
þeim stuðningi við ræktun og
aðra undirstöðu framleiðslunn-
ar á venjulegum fjölskyldubú-
um. 1 eftirfarandi kafla eru rak-
in i stuttu máli hvaða framlög
það eru, sem landbúnaðurinn *
nýtur svo og hvaða lánamögu-
leika bændur hafa:
Framlög og lán til
landbúnaðarins
Fra m lög e ru veitt t il j arða- og
húsabóta samkvæmt ákvæöum
jaröræktarlaga (nr. 79/1972).
Framlögin eru bundin verðlagi
og hækka annað hvort eftir visi-
tölu er sýnir breytingar á til-
kostnaði viðkomandi fram-
kvæmda, jarðræktarvisitölu og
visitölu fyrir byggingarkostnað
útihúsa, eða þau eru ákveöinn
hundraðshluti kostnaðarverðs,
Framlög sem eru ákveðinn hluti
kostnaöar eru: Vélgrafnir
skurðir, 70% viðurkennds kostn-
aðar, plógræsi 75%, vatnsveitur
50% kostnaöar.
Rikisstuðningur við vatns-
veitur i þéttbýli hefur lengi ver-
ið veittur á vegum félagsmála-
ráðuneytis. Það var eftir langa
baráttu, að hliðstæður stuðning-
ur til vatnsveitna á sveitabæi
fékkst með breytingum á jarð-
ræktarlögum 1972.
Til ræktunar svo sem nýrækt-
ar, endurvinnslu túna, grænfóð-
urræktar og hagaræktar og
girðinga eru framlög bundin
visitölu. Þau framlög nema frá
ca. 10-38% af áætluðum meöal-
framkvæmdakostnaöi, en hann
er mjög breytilegur eftir-að-
stæðum.
Framlög tilhúsabóta eru veitt
út á: þurrheyshlöður, votheys-
hlööur, áburðargeymslur, garð-
ávaxtageymslur, verkfæra-
geymslur og súgþurrkunar-
kerfi. Framlög þessi nema eftír
áætlun Byggingastofnunar frá
5-30% af meðalkostnaðarverði.
Til byggingar ibúðarhúsa á lög-
býlum er veitt framlag að upp-
hæð kr. 120.000.
Lán til framkvæmda i land-
búnaði eru veitt af Stofnlána-
deild landbúnaðarins, sem
starfar eftir lögum nr. 68/1973.
Upphæð lána má vera allt að
60% af áætluðu kostnaðarverði.
Njóti framkvæmd framlags
samkvæmt jarðræktarlögum,
lækkar lánið sem svarar fram-
laginu.
Lánakjör á helztu fram-
kvæmdum eru sem hér segir:
Fjós og fjárhús 60% af mats-
verði, lánað mest til 20 ára með
10% ársvöxtum. 1/4 lánsupp-
hæðar er verðtryggður með
visitölu byggingakostnaðar. Til
haughúsa og áburðarkjallara
eru lánuð 40% og 30% af mats-
verði. Til mjaltakerfa og mjólk-
urtanka eru lánuð 50% af mats-
verði til 8 ára, en það eru einu
lánin sem veitt eru til vélbúnað-
ar i þessum útihúsum. Þurr-
heyshlöður, 55% lán til 20 ára,
25% verðtryggt og 10% vextir.
Votheyshlööur, 50% lán með
sömu skilmálum og þurrheys-
hlöður. Hesthús, gróðurhús,
svínahús og hænsnahús með
búrum njóta 50% lána, verð-
trygging er á 1/2 láni til þriggja
þeirra siðasttöldu. Út á nýjar
dráttarvélar er lánað 40% af
kostnaðarverði til 6 ára, að
hálfu gengistryggt. Takmörk
eru á þvi hvaö bændur fá oft lán
til dráttarvélakaupa. Lánað er
30% verðs út á þungavinnuvélar
til 6 ára, lánin eru aö 1/4 verð-
tryggð og aö 1/4 gengistryggö.
Vextireru 10% af verðtryggðum
lánum.
Til ibúðarhúsa eru veitt lán,
sem bundin hafa verið við sömu
upphæð og lán Húsnæðismála-
stjórnar, nú 2,3 milljónir (1976).
Verðtrygging (byggingarvisi-
tala) er á 40% lánanna. Þau eru
lengst veitt til 27 ára. Hliðstæö
lán eru veitt til stækkunar og
meiri háttar viðgerða á eldri
húsum.
Lifeyrissjóður bænda veitir
núsjóðfélögum 600.000 kr. lánút
á ibúðarhús á lögbýlum.
Bústofnslán eru veitt til kaupa
á sauðfé og nautgripum allt að
200 kindum eða 10 kúm, til 6 ára.
Lánsupphæð er miðuð við skatt-
matsverð. Fjármagn kemur úr
lifeyrissjóði bænda.
Jarðarkaupalán eru veitt af
Veðdeild Búnaðarbankans og er
hámark þeirra nú kr. 800.000.
Astæöa er til að benda á, aö
lán og stuðningur til ibúðarhúsa
i sveitum, þ.e. á lögbýlum, þar
með töldum iönaðar- og þjón;
ustubýlum, koma úr sjóðakerfi
landbúnaðarins og eru þvi talin
með þegar rætt er um hlutdeild
atvinnuvegarins i fjárfestínga-
lánum þjóöarinnar. Þessu er
hins vegar ekki svo farið um
aöra atvinnuvegi.
Búvörugjald að upphæð 1% af
grundvallarverði er tekið af
tekjulið bænda og svarar það til
4-5% hærri raunvaxta, sem
bændur greiða af lánsfjár-
magni.
A mynd 21 er sýnt hver hlutur
rikisframlaga og lána frá Stofn
lánadeild landbúnaðarins hefur
verið i f jármunamyndun i sveit-
um á árabilinu 1955-1975. Tafla 3
sýnir fjármunamyndunina.
Framleiðnisjóöur landbúnað-
arins var stofnaður með lögum
árið 1966. Hlutverk sjóðsins
skyldi vera að veita styrki og
lán til framleiðniaukningar og
hagræðingar i landbúnaði og til
atvinnurekstrar á bújörðum.
Mátö jöfnum höndum styrkja
rannsóknir og framkvæmdir er
miðuðu að lækkun framleiðslu-
og dreifingarkostnaðar.
Fyrstu fjögur árin, sem sjóð-
^urinn starfaði veitti hann lán og
styrki til kaupa á kælitönkum,
sem var liður i að styrkja tank-
væðingu á mjólkurflutningum.
Stvrkir og lán voru þá einnig
veitt til tæknivæöingar i slátur-
húsum. Siðan hefur sjóðurinn
einkum veitt fyrirgreiðslu við
uppbyggingu sláturhúsa sam-
kvæmt sérstakri áætlun. Veitt
hafa verið framlög, sem nema
33% af byggingarkostnaði og
kostnaði við tæknibúnað til sjö
sláturhúsa. Nokkrir styrkir
hafa veriö veittir úr sjóðnum til
bútæknirannsókna.
Byggðasjóður lánar ekki al-
mennt til landbúnaðarins. Lán-
veitingar úr sjóðnum hafa verið
háðar þvi að fyrir liggi áætlun
um framkvæmdir á ákveðnum
svæðum eða þá áltlun um á-
kveðin verkefni.
Byggðasjóður hefur veitt
bændum á tilteknum svæðum
viðbótarlán vegna byggingar
útihúsa, sem nemur 15% af
kostnaðarverði. Hann hefur lán-
að 25% af kaupverði véla og
kostnaðárverði ræktunar. Þess-
ar lánveitingar hafa verið
bundnar þvi skilyrði að fyrir
liggi áætlun um framkvæmdir
og sýnt sé fram á þörf þeirra til
að viðhalda byggð. Aætlanir
sem sjóðurinn hefur lánað til
eru fyrir Inndjúp við Isafjörð,
Árneshrepp á Ströndum, Hóls-
fjöll og Möðrudal.
Af heildarlánveitingum Stofn-
lánadeildar og Byggðasjóðs,
sem taldar eru fara til landbún-
aðarins, hefur 1/6-1/7 hluti farið
til vinnslustöðva landbúnaðar-
ins undanfarin ár.
Afurðalán vegna óseldra
birgða af landbúnaðarvörum
eru veitt hliðstæð og með hlið-
stæðum kjörum og til annarra
framleiðsluatvinnuvega. Lánin
eru veitt söluaðilum skömmu
eftir að birgðir myndast og
ganga til að greiða áfallinn
vinnslukostnað og hluta af-
urðaverðs til bænda.
Rekstrarlán hafa undanfarna
áratugi veriö veitt á vordögum
vegna sauöfjárframleiðslunnar.
Þau hafa verið ákveðin af
Seðlabanka tslands sem ákveð-
in upphæð út á hvern væntan-
legan dilk til innleggs. Um ára-
bil stóð þessi upphæö óbreytt, en
siðustu ár hafa þau verið hækk-
uð. Lánhafaaukþessverið veitt
til fóðurkaupa, áburðarkaupa
oguppgjörs á sauðfjárafurðum.
Algengter, að þeir, sem tala
um mikil framlög til landbúnað-
arins, tiundi öll útgjöld, sem
skráð eru á landbúnaðarráðu-
neytið i fjárlögum, sem styrki
tilbænda og bæta svo þar á ofan
niðurgreiöslum á vöruverði.
Þetta leiðir kannski af vanþekk-
ingu og misskilningi, sem þó
ætti ekki að koma til, ef sæmi-
legri athygli og velvilja er beitt.
Rannsóknarstarfsemi er rekin i
þágu landbúnaöarins eins og
annarra aðalatvinnuvega okk-
ar. Hennar njóta allir jafnt i
auknum framförum. Bænda-
skólarnir heyra undir landbún-
aðarráöuneyti, en nær allt okk-
ar skólakerfi er annars undir
menntamálaráðuneyti. Mönn-
um kann að þykja skólakerfið
dýrt og dýrt að mennta unga
fólkið, til að það verði fært um
að gegna vel sifjölþættari störf-
um i þjóöfélaginu. En hvar
stæðum við, ef þaö væri ekki
gert og ekki er búfræðimenntun
dýrari eða ógagnlegri en annað
nám, bema siður væri. Land-
græðsla rikisins og Skógrækt
rikisins vinna svo sannarlega
gagnleg störf fyrir landbúnað-
inn, en ekki siður fyrir þjóðina i
heild. Engum dettur vist i hug
að telja kostnað af landhelgis-
gæzlunni framfærslustyrk til
sjómanna.
FiÁRWÓONUN FJÁJtMUNAMYNOUNAR I «*«TUN. ÚTIHÚSUM vlLUM
OO MSUM I SVIITUM AUK •OSTOFNSUITTINSA ÁIIN IMS-1971
TÖiUK FTIIK ÁKIN 1971 -1971 IKKI Tll.
«M
TOO
80-
AUKNING ANNAIKA SKUIOA OO HOID 7IAMLAO
1855 '56 '57 '58 '58 «0 H ® 13
Myndin sýnir glöggt, aö bændur hafa allt þetta ttmabil oröiö aö
leggja fram megniö af framkvæmdakostnaöinum sjálfir, þetta
frá 60-66%. Þeir hafa komið upp húsum, ræktaö og aflað sér véla
meö eigin sparnaöi og vinnu. „Lán og styrkir” hafa slzt veriö
meiri en til annarra atvinnuvega.