Tíminn - 06.02.1977, Síða 13
13
Sunnudagur 30. janúar 1977
|
}
'i
[
C
Albsun;
Runde
Fjársjóðslei*
meðfram
Fáir fjársjóðsfundir hafa vakiö
eins mikla alþjóðlega athygli og
myntfundurinn frá hollenzka
skipinu „Akerendam”. Þessi
þrímastraöa seglskúta var á
leiö til Indónesiu, vopnuö fjöru-
tiu þungum fallbyssum til
verndar gegn sjóræningjum.
fannst fyrir tilviljun, en þaö er
afar sjaldgæft. Fjársjóösleit er
töluvert stunduö þarna og styöj-
ast menn i leitinni viö gömul
kort og ritaöar heimildir. Skipu-
lögö fjársjóösleit krefst mikils
fjármagns, en þaö er líka oft til
mikils aö vinna.
Vigr*
Gxske
Godpy
RUNDE
1/
.fjrr
Tiu árum fyrir fund „Akeren-
dams” hóf norskur blaöamaöur,
Erik Lunde, leit aö skipinu. Meö
hjálp gamalla korta ákvaröaöi
hann 600x600 metra stórt svæöi
og þar leitaöi hann aö skipinu.
Siöar komu margir kafarar frá
ósló i sömu erindagjöröum, en
uröu einskis visari. En þaö var
bara spurning um tima hvenær
einhver þeirra heföi heppnina
meö sér, þvi I ljós kom, aö út-
reikningar Lunde voru réttir og
fannst skútan einmitt þarna.
Fjársjóösleit meöfram strönd
Noregs getur veriö góö byrjun
t.d. fyrir leitina aö „Castiílio
Negro”, flaggskipi spænska
herskipaflotans. A sinum tima Gull og silfurmynt frá hollenzku skútunni „Akerendam”.
þótti þetta mjög stór skúta, 750
tonn, meö 273 manna áhöfn og
vopnuö 27 fallbyssum. Sem
flaggskip flotans er taliö vist aö
hún hafi veriö hlaöin miklum
verömætum.
Eftir þvi sem næst veröur
komizt, fórst hún nálægt Ala-
sundi I kringum 1588. Ber öllum
heimildum saman um aö auö-
ævin um borö hafi veriö ótrú-
lega mikil og sagt aö likin, sem
rak á land, hafi legiö á silki-
klæddum dýnum. Ein kista á aö
hafa setiö föst á skeri þar sem
enginn gat náö henni. Hafiö
vann aö lokum á henni og braut i
sundur. Viö þaö ultu gullpening-
ar úr henni og yfir skeriö.
Staöurinn kallast enn þann dag i
dag „Riketjötta” og gefur þaö
vissulega tilefni til umhugsnar.
I striöinu hurfu milljónaverö-
mæti frá fólki, sem Þjóöverjar
handtóku og tóku af lifi. Eftir
striðslok voru uppi sögusagnir
um aö þýzkir kafbátar heföu
horfiö frá Þýzkalandi meö þessi
verömæti innanborös. Erik
Lunde komst á spor eins þess-
ara kafbáta, sem um ræöir.
Nokkrufyrir lok striösins, skaut
brezkur flugmaöur kafbát i kaf
utarlega á óslófiröinum. Oll
áhöfnin fórst, og þvi enginn til
frásagnar um hvort gullstengur
að verömæti margra milljóna
króna heföu verið um borö eins
og taliö var.
Ef til vill er um aö ræöa „U-
BOOT 1273”, sem hvarf frá
Horten i febrúar 1945, hlaðinn
verömætum, eða kannski er
þetta alveg óþekktur bátur, sem
ekki borgar sig aö leita aö. En
hver veit? Fjölmargar sögur
herma aö kafbátur meö dýr-
mætan farm hafi sokkið viö
Noregsstrendur i striöinu. Hver
sá sem finnur hann veröur rik-
ur.
Þaö er ekki nóg aö finna verö-
mætt flak til aö fá fjársjóöinn.
Sá sem ekki vill aö rikiö taki allt
til sin verður aö tilkynna yfir-
völdunum um fundinn. Eftir
fund „Akerendam” var lögum
um fundi sem þessa breytt I
Noregi. Samkvæmt þeim fær
rikiö eignarrétt bæöi yfir flaki
og farmi skipa eldri en hundraö
ára, en finnandinn fær fundar-
laun. Þannig fengu þeir, sem
fundu flak skútunnar „Fredens-
borg”, til samans tólf filatennur
og fjórar flóðhestatennur i
fundarlaun.
Yfirleitt er ágætt samstarf á
milli kafaranna og siglinga-
safna i þeim löndum, sem flökin
falla undir. Og ekki má gleyma
þvi aö fundur gamalla skips-
flaka hefur oft meira menn-
ingarsögulegt gildi heldur en
hann er metinn i gulli og silfri.
(JB þýddi og endursagði)
Þaö haföi þó litiö aö segja á mdti
beljandi vetrarstormunum og
sökk skipiö meö sextán kistur
fullar af gulli og silfri nálægt
Alasundi.
1 tvö hundruö og fimmtiu ár
geymdi hafiö fjársjóö þess, eða
þar til þrir kafarar fundu hann
fyrir tilviljun i júli 1972. Fundur
þessi geröi þá aö milljóna-
mæringum, en samkvæmt
norskum lögum var góssinu
skipt milli þeirra og norsku og
hollenzku rikisstjórnarinnar.
Vogskorin og miskunnarlaus
strönd Noregs hefur heimtaö
sinn toll af þeim þúsundum
fiskiskipa, vikingaskipa,
verzlunarskipa og herskipa,
sem siglt hafa framhjá henni á
liðiium öldum. t.d. á timabilinu
1850-1930 eru upplýsingar um aö
2500 skip hafi rekizt þarna á
sker og rif og farizt. Þaö er þvi
ótölulegur fjöldi skipa, sem
hvilir á hafsbotninum og mörg,
sem talin voru hlaðin gersem-
um er þau sukku.
Fjársjóöur „Akerendams”
Kaupum
stimpluð, islenzk fri-
merki á pappír, ótrú-
lega háu verði.
Söfnun
P.O. Box 9112
Reykjavík
Auglýsið í
Tímanum
SÚG-
þurrkun
Eins og undanfarin ár
smíðar Landssmiðjan hina
frábæru H-12 og H-22
súgþurrkunarblásara
Blásararnir hafa hlotið einróma
lof bænda fyrir afköst og endingu
Sendið oss pantanir yðar sem fyrst