Tíminn - 06.02.1977, Page 29
Sunnudagur 6. febrúar 1977
29
Sjávarútvegsráðuneytlð:
KARFAAAIÐIN
LOKUÐ UM Ó-
ÁKVEÐINN TÍMA
gébé Reykjavik — Eins og skýrt
var frá i Tímanum á föstudag,
var ákveðnu svæði lokað fyrir
Vesturlandi, fyrir togveiðum.
Bann þetta kemur i kjölfar
skyndilokunar, sem Hjálmar
Vilhjálmsson leiðangursstjóri á
r/s Bjarna Sæmundssyni beitti
að fengnum upplýsingum eftir-
litsmanns ráðuneytisins, um
mikið magn smákarfa á þessum
slóðum. Var svæðið kannað
meðan á skyndilokuninni stóð
og að þeirri könnun lokinni,
lagði Hafrannsóknastofnunin til
að svæðið yrði lokað áfram um
óákveðinn tima.
Timanum hefur rui borizt
reglugerð um lokun þessa frá
sjávarútvegsráðuneytinu og er
togveiði bönnuð á svæði sem af-
markast af linu, sem er dregin
milli eftirgreindra punkta.
1. 65 gráður 25’n.br., 27 gráður
OO’v. lgd.
2. 65 gráður 26’n.br., 26 fráður
54’v.lgd.
3. 65 gráður 08’n.br., 26 gráður
48’v.lgd.
4. 64 gráður 39’n.br., 26 gráður
54’v.lgd.
5. 64 gráður 39’n.br., 27 gráður
02’l.lgd.
6. 65 gráður 03’n.br., 27 gráður
09’v.lgd.
Bóndinn fær 2.425,00 kr.
fyrir dilk, sem kostar
neytandann 10.440,00
Mó-Reykjavik — Kaup bónda og fjölskyldu hans fyrir að framleiöa
dilk, sem neytandi kaupir á 10.440.00 kr. eru aðeins 2.425.00 kr. segir I
nýútkomnu fréttabréfi upplýsingaþjónustu landbúnaðarins. í frétta-
bréfinu segir m.a.
Samkvæmt verðlagsgrundvellinum frá því I desember 1976 er gert
ráð fyrir að framleiðandinn fái kr. 505.31 fyrir hvert kg af dilkakjöti og
205 kr. fyrir eitt kg af gæru. Þaö er langt frá því aö þessir peningar
renni i buddu bóndans eða inn á sparisjóösbókina.
1 dæminu hér á eftir er miðað við 15 kg skrokk I fyrsta verðflokki,
sem keyptur er i verzlun, tekinn i sundur samkvæmt ósk neytandans:
Neytandinn greiðir..................................... 10.440 kr.
Niðurgreiðsla rikissjóðs.....................................1.830 kr.
Raunverulegt smásöluverð. z-.............................12.270 kr.
Til frádráttar:
Slátrun og heildsölukostnaður...............................2.085 kr.
Sjóðagjöld.................................................... 225 kr.
Flutningskostnaður............................................ 150 kr.
Söluskattur..............................................1.740 kr.
Samtals.....................................................4.200 kr.
Framleiðandinn á aö fá greiddar:............................8.070 kr.
Nú skulum við næst Hta á hvaö bóndinn á mikið eftir þegar hann hef-
ur greitt allan kostnað vegna framleiðslunnar.á þessum 15 kg. Skipting
á kostnaði er eftir niðurstöðum búreikninga.
Kostnaöarliðir:
Aburður.............................................999 kr. 21.0%
kjarnfóður..........................................819 kr. 17,2%
Útihús..............................................276 kr. 5,8%
Vélar...............................................700 kr. 14,7%
Aðkeyptvinna........................................357 kr. 7,5%
Launagreiðsla.......................................734 kr. 15,2%
Vextir,opinbergj.,tryggingar........................619 kr. 13,0%
Annar kostnaður.....................................257 kr. 5,6%
Samtals 4.761 kr. 100%
Það má bæta við þessar 4.761 kr., 1.179 kr., sem eru vextir af eigin
fjármagnibundnu I búinu. Framleiðandinn hefur þvi raunverulega eft-
ir til þessað greiöa sjálfum sér og fjölskyldunniikaup, 2.130 kr. fyrir 15
kg af dilkakjöti. Viö þessa upphæö bætist að sjálfsögðu, það sem hann
fær fyrir gæruna og slátriö, samtals fær hann upp Ilaunin kr. 2.425fyrir
þennan eina dilk. Ef sleppt er vöxtum af eigin fjármagni, þá á bóndinn
eftir, þegar allur kostnaður héfur verið greiddur kr. 3.767.
íslenzk fyndni
hefur göngu
sína á ný
VS-Reykjavik — Fyrir nokkru
kom út 26. heftið af Islenzkri
fyndni. 1 formála þess heftis segir
svo: ,,Meö þessu hefti er ætlunin
aö hefja á ný útgáfu „Islenzkrar
fyndni” sem kom út á árunum
1933-1961 I samantekt Gunnars
Sigurðssonar frá Selalæk.
1 fyrra kom út úrval úr heftun-
um 25, en nú eru sögurnar nýjar
og hafa ekki birst áður i ,,ts-
lenzkri fyndni”. Reynt verður nú
og I framtiðinni aö fylgja þeirri
hefö sem Gunnar frá Selalæk hélt,
að hafa sögurnar 100 og visurnar
50 .
Þá segja útgefendur, aö útgáfa
sliks rits byggist að sjálfsögöu á
kimnigáfu þjóðarinnar og undir-
tektum landsmanna. Jafnframt
er skorað á lesendur að bregöast
vel við og senda skoplegar sögur
og visur til tslenzkrar fyndni
Grundarstig 4, Reykjavik.
Þetta hefti tslenzkrar fyndni er
66 bls. að stærð. Hafsteinn
Einarsson og Gunnar Finnsson
hafa safnaö efninu og skráö það,
en teikningar eru eftir Bernharö
Steingrimsson.
Vegna hagstæðra samninga við Fiatverksmiðjurnar getum
við nú boðið hinn rúmgóða 5 manna Fiat 125 P ó ótrúlega
lógu verði.
1 | Hámarkshraði 135 km, {~| Bensineyðsla
um 10 lítrar per 100 km. Q Kraftbremsur
með diskum á öllum hjólum [J Radial —
dekk [[] Tvöiöld framljós með stillingu Qj
Læst benzinlok []] Bakkljós |~j Rautt Ijós i
öllum hurðum []] Teppalagður [ Loftræsti-
kerfi Q, Öryggisgler []] 2ja hraða miðstöð []J
2ja hraða rúðuþurrkur [] Rafmagnsrúðu-
sprauta [] Hanzkahólf og hilla ['; Kveikjari
[] Litaður baksýnisspegill [H Verkfærataska
[[ Gljábrennt lakk [] Ljós i farangurs-
geymslu []. 2ja hólfa karborator []j Syn-
kromeseraður girkassi [ Hituð afturrúða [
Hallanleg sætisbök [], Höfuðpúðar
C.StS'
Leitið upplýsinga
sem fyrst.
i
FIAT EINKAUMBOD A ISLANDI
Davíð Sigurðsson h.f.
Síðumula 35 Símar 38845 — 388£
í
HÚS-
EIGENDUR
varanleg
álklæðning, á þök, Mt og veggi- úti og inni.
Seltuvarðar álplötur með innbrenndum litum, auðveldar í uppsetningu, þarf aldrei að mála, gott að
þrífa, og gefa fallegt útlit.Tilvalið á ný hús, gömul hús, stór hús, lítil hús, lek hús og öll hús
sem þörf er á-góðri varanlegri klæðningu. Aukin einangrun, sparar hitakostnað.
Vandið valið og setiið BH&unmmm á húsið.
Framleiddar af Nordisk Aluminium A/S Noregi í mismunandi gerðum. Reynist vel við íslenskar
aðstæður. Hafið samband við okkur og fáið upplýsingar, verðtilboö og góð ráð.
INNKAUP HF il
ÆGISGÖTU 7 REYKIAVÍK. SlMI 22000-PÓSTHÓLF 1012 TELEX 2025
SÖLUSTIÓRI: HEIMASfMI 71400.