Tíminn - 06.02.1977, Side 40
Sunnudagur
6. febrúar 1977
-
HREVFILÍ.
Sfmi 8 55 22
fyrirgóóan mat
$ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
Byggöin i Sú&avik er um kiló-
metri á lengd, og þvi hlut-
falislega miklar vegaiengdir.
Djúpvegurinn liggur aö þorp-
inu beggja megin, og nú er bú-
iö aö endurbyggja hluta af
veginum gegnum þorpiö. En
megniö af leiöinni er þó ekiö
eftir húsasundum og mjóum
stigum, sagöi Heiðar Guö-
brandsson, fréttaritari Tim-
ans, i viðtali viö blaðiö.
MÓ-Reykjavik. — Eins og i fjöl-
mörgum þorpum öörum byggist
atvinnan á Súöavik aöallega á út-
gerö og fiskvinnslu, og siðan tog-
arinn Bessi kom þangað 1973
hefur atvinna veriö stööug. I
sumar var þar byrjaö á smiöi átta
ibúöa, sem er hlutfallslega mjög
mikiö, þar sem ibúar þorpsins eru
aðeins um 220. Þá hefur þar aö
undanförnu veriö unniö að hol-
ræsa- og gatnagerö, og frystihús-
iö og hafnarmannvirki hafa yeriö
endurbætt. Meiri framkvæmdir
eru á döfinni á næstu árum, og i
sumar er ráögert aö vinna fyrir
um 30 millj. kr. við hafnarmann-
virkin. Þá er nýbúiö aö endur-
byggja hús kaupfélagsins, sem er
útibú frá tsafiröi og hyggst þaö
auka sina þjónustu.
Frystihúsið að verða vel
búið tækjum
A undanförnum árum höfum
viö veriö aö byggja viö og endur-
bæta frystihúsið, sagöi Kristján
Sveinbjörnsson oddviti J samtali
viö Timann. Nú er húsiö oröið um
3000 ferm. aö grunnfleti á tveimur
hæöum og viö erum búnir aö slá
upp fyrir nýjum vinnslusal. Von-
umst viö til þess aö hann verbi til-
búinn til notkunar næsta haust, og
þar verður aðstaða fyrir 60 stúlk-
ur. Þá verður gamli vinnslusalur-
inn eingöngu notaöur fyrir
flökunarvélar.
Rækjuvinnsla og
saltf iskverkun
bátar eru geröir út á rækjuveiöar
og hefur vinnslan verið að smá-
aukast hin siðari ár. í sumar var
gerð tilraun meö veiöar á úthafs-
rækju, og bjóst Kristján við aö
þeim tilraunum yröi haldið áfram
næsta vor, enda er ekki hægt að
stunda rækjuveiðar i Isafjarðar-
djúpi nema yfir vetrarmánuöina.
Þaö eru 12-14 konur, sem hafa
atvinnu viö rækjuvinnsluna á
vetrum og 4-5 karlmenn. Saltfisk-
verkun hefur veriö á Súðavik siö-
an skuttogarinn Bessi kom þang-
aö. Allmikiö af aflanum er verkaö
"f salt, en togarinn er hiö mesta
aflaskip og sagöi Kristján aö
menn væru mjög ánægöir meö
togarann. Sl. ár var aflinn tæp
4000 tonn.
Hafnsraðstaðan sífeilt
að batna
1 fyrra var unnið aö hafnar-
framkvæmdum á Súðavik fyrir
um 10 milljónir kr. og i ár er veitt
22 millj. kr. til framkvæmda þar.
Má þvi búast viö, aö unnið veröi
fyrir um 30 millj. kr. i sumar.
Aöallega veröur unniö viö gerö
grjótgaröa, en siöan vantar aö
gera viðlegukanta, svó aöstaðan i
höfninni veröi oröin góö. Þar er
þó nú þegar allgóð aöstaöa fyrir
stærri skip, en vantar aöstööu
fyrir bátana,
Fiskurinn fluttur til
isafjarðar
Kristján sagöi, aö þrátt fyrir
þessa hafnaraðstööu yröu þeir aö
Þá er á Súðavik rækjuverk-
smiöja og saltfiskverkun. Þrir
Nýr umboðsmaður Tímans
í Keflavík
Valur Margeirsson,
Bjarnarvöllum 9 — Sími 1373
aka öllum unnum fiski til Isa-
fjaröar og skipa honum þar út.
Meö þvi fyrirkomulagi legöist
aukakostnaöur á frystihúsið viö
fiskflutninginn og höfnin tapaöi af
hafnargjöldunum. En ástæöan
fyrir þessu er sú, ab meö þvi aö
aka öllum fiski frá Súðavik,
Hnlfsdal og Bolungarvik tii Isa-
fjaröar og skipa þar út, er hægt að
afgreiöa mun meira magn sama
daginn og þaö tekur þvi skemmri
tima fyrir flutningaskipin að
lesta.
Fólkið vinnur mikið
Mikil atvinna hefur veriö á
Súöavik undanfarin ár og margir
þvi haft góöar tekjur miðað viö
þaö sem gerist i almennri verka-
mannavinnu. — En ég hef af þvi
mestar áhyggjur, aö þetta mikla
vinnuálag sliti fólki út fyrir aldur
fram, sagöi Heiöar Guðbrandsson
fyrrverandi form. verkalýös- og
sjómannafélagsins og fréttaritari
Timans. Hér eru margir menn
innan viö þritugt farnir aö finna
til ellikvilla og meö svona mikilli
vinnu taka menn út úr „heilsu-
sjóö” sinum langt fyrir aldur
fram.
Hingað vilja margir flytja, en
hér skortir húsnæöi. Veriö er að
byggja fjórar leiguibúðir á veg-
um sveitarfélagsins og leysa þær
úr einhverjum vanda, en fyrir-
greiöslu til félagslegra fram-
kvæmda skortir hér tilfinnanlega,
sagöi Heiðar.
Eg tel aö hér sé verðugt verk-
efni fyrir Framkvæmdastofnun
rikisins að vinna aö, þvi þaö er
ekki nægjanlegt að byggja upp at-
vinnufyrirtæki á stööunum ef fé-
lagslega þjónustu vantar. Og fá-
menn sveitarfélög hafa ekki bol-
magn til þess aö standa i naub-
synlegum framkvæmdum upp á
eigin spýtur.
Heilsugæzla i ólestri
Heilsugæzla hér er I hinum
mesta ólestri að þvi er skipulag
snertir, sagöi Heiöar. Konur héö-
an þurfa inn á lsafjörð I mæöra-
skoöun, á mánudögum, en á
fimmtudögum þarf aö fara meö
ungbörnin þangaö i ungbarna-
eftirlit. Læknir hefur hins vegar
viötalstima hér á fimmtudögum,
en vegurinn milli Súöavikur og
ísafjaröar er opnaöur á þriðju-
dögum. Það er þvi ekki ofsögum
sagt aö þetta sé flókið kerfi og hiö
mesta skipulagsleysi.
. Nú stendur hér fokheld heilsu-
gæzlustöö, og þorpsbúar sjá ekki
aö neitt sé á döfinni aö þeirri
byggingu veröi haldið áfram, og
finnst okkur þaö furöu sæta þar
sem húsnæöi þaö, sem læknis-
þjónusta hér á staðnum fer fram
i, er algerlega óviðunandi.
Símastaurarnir hanga
í símalínunum
Þaö er vægast sagt mikiö ó-
fremdarástand i simamálum hér
á staö, sagöi Heiðar. Ef hér gerir
illviöri má bóka þaö aö simasam-
bandiö fari af. Og þaö er ekki aö
furöa, þar sem margir af sima-
staurunum hanga á simalinunum
hér út I hliöinni I staö þess aö
halda þeim uppi. Þar þyrfti þvi aö
gera verulegt átak i aö bæta úr og
laga þessar linur.
PALLI OG PÉSI
En úr þvi viö minnumst á sim-
ann er ekki hægt annaö en nefna
gjaldskrá hans, sagöi Heiöar. Hér
eru dæmi þess, að menn þurfi að
greiða yfir 100 þús. kr. i sima-
þjónustu á ári og þykir okkur það
æöi mikið.
Miklar vegalengdir
innan þorpsins
Byggöin i Súöavik er um kfló-
metri á lengd og gatnakerfið þvi
tiltölulega langt. Kristján oddviti,
sagöi, aö það væri þvi mikib fyr-
irtæki aö leggja götur og holræsi i
þorpinu. Aöþeim málum hefur þó
veriö unniö á siöustu árum, og nú
er búiö aö leggja malbik á 300 m
langan kafla af aöalgötunni gegn-
um þorpið.
Þá hefur veriö gert átak I aö
leggja holræsi og var unniö fyrir
um 3 milljónir að þeim fram-
kvæmdum á sfðasta sumri. Þótt
sú upphæö þyki ekki há á lands-
mælikvarða, sagöi Kristján, er þó
æöi mikiö átak fyrir okkur aö
leggja þaö mikið fé til þessa
málaflokks. 1 gatnagerö var unn-
iö fyrir 2,5 millj. kr.