Fréttablaðið - 01.02.2006, Blaðsíða 54
1. febrúar 2006 MIÐVIKUDAGUR12
„Uppáhaldsstaðurinn minn er í afslöppun og kósí fíling heima hjá mér,“ segir
Gunnar Hansson leikari.
...að handbolti á rætur sínar að
rekja til þriggja landa? Þýskalands,
Slóvakíu og Danmerkur.
...að handbolti er samsuða þriggja
íþróttagreina?
...að þessar greinar eru hazena frá
Slóvakíu, handbold frá Danmörku
og og Torball frá Þýskalandi?
...að allar þrjár byggðust á reglum
knattspyrnunnar?
...að 1892 hófu Slóvenar að spila
hazena en opinberar reglur komu
fyrst út árið 1906?
...að 1898 bjó danski kennarinn
Holger Nielsen til handbold? 1906,
sama ár og reglur hazena komu út,
breytti Nielsen reglum handbold
umtalsvert og byrjaði að skipu-
leggja mót utan skóla síns?
...að 1915 bjó þýski leikfimikennar-
inn Max Heiden til Torball?
...að árið 1919 sameinaði Carl
Schelenz, þýskur háskólaprófess-
or, reglur handbold og Torball og
bætti við reglum úr körfuknattleik?
...að það var Schelenz sem bætti
við að drippla mætti boltanum?
...að árið 1925 var handbolti orðin
vinsæl íþróttagrein í Evrópu og árið
1928 var Alþjóðahandknattleiks-
sambandið (IHF) stofnað?
...að handbolti var sýningargrein á
Ólympíuleikunum 1928 og 1932?
...að 1936 varð handbolti að
Ólympíugrein á leikunum í
München?
...að á þeim tíma voru 11 menn í
liði og spilað á útivelli á stærð við
knattspyrnuvöll?
...að meðan á þessu stóð þróaðist
leikurinn í þá átt sem við þekkjum
í dag, það er sjö menn í liði á
innanhússsvelli? Þetta gerðist í
Skandinavíu.
...að 1938 var haldin fyrsta heims-
meistarakeppnin í handknattleik
með sjö manna liði?
...að 1972 varð nútímahandbolti að
ólympíugrein?
VISSIR ÞÚ...
Heima í afslöppun
Gunnari Hanssyni leikara finnst gott að vera heima hjá sér.
FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
UPPÁHALDSSTAÐURINN
�������� ���
������� ��
��������������������
Valdís Gunnarsdóttir
Sunnudagsmorgna 9-12