Fréttablaðið - 01.02.2006, Blaðsíða 21
][
KAUPMANNAHÖFN – LA VILLA
Heimagisting á besta stað í bænum.
Býður alla Íslendinga velkomna.
Geymið auglýsinguna.
www.lavilla.dk. S.0045 3297 5530. GSM. 0045 2848 8905
EXIT EHF. KEYPTI Í VIKUNNI FERÐA-
SKRIFSTOFU ÍSLANDS.
Ferðaskrifstofan Exit ehf., eigandi
Sumarferða, hefur keypt Ferðaskrif-
stofu Íslands, sem er eigandi Úrvals
Útsýnar og Plúsferða, af FL Group.
Með kaupunum eru Sumarferðir,
Plúsferðir og Úrval Útsýn orðnar
að sama fyrirtæki og er markaðs-
hlutdeild fyrirtækisins um 60 til 65
prósent. Fyrstu samlegðaráhrifa af
sameiningunni verður vart í sam-
nýtingu flugvélasamninga. Eigendur
Sumarferða eru Helgi Jóhannsson,
Þorsteinn Guðjónsson, Gunnar Fjalar
Helgason og Margrét Helgadóttir.
Sameining á
ferðamarkaði
Dagbækur eru sniðugar á ferðalögum. Það er fljótlegt að skrifa
nokkrar línur á kvöldin um atburði hvers dags og gaman að lesa þær
þegar heim er komið.
Unnið er að stækkun búnings-
og baðaðstöðu í Bláa lóninu.
Einnig verður nýr veitingasalur
tekinn í notkun og verslunarað-
staða stækkuð til muna.
Framkvæmdir eru nú hafnar við
Bláa lónið við stækkun og endur-
hönnun búnings- og baðaðstöðu
lónsins. Gert er ráð fyrir að gestir
fái með þessu aukið rými en hús-
næðið verður alls stækkað um 300
fermetra, sem er tvöfalt stærra en
búningsaðstaðan er í dag.
Einnig verða gerðar breytingar
á núverandi veitingasal og verður
nýr 250 manna salur tekinn í notk-
un. Verslunar- og starfsmannaað-
staða verður einnig stækkuð til
muna.
Stærstur hluti framkvæmd-
anna fer fram bak við núverandi
húsnæði og því ættu gestir Heilsu-
lindarinnar ekki að verða mikið
varir við raskið. Innisundlauginni
og Hellinum hefur þó verið lokað
um stundarsakir.
Áætluð verklok eru vorið 2007
og er áætlaður kostnaður við
framkvæmdirnar 800 milljónir.
Betrumbætur í
Bláa lóninu
Í lok febrúar verður haldin
námstefna undir yfirskrift-
inni Ferðaþjónusta fyrir alla.
Markmiðið er að hvetja ferða-
þjónustuaðila til að hugsa um
aðgengi fatlaðra.
Norræn nefnd um málefni fatl-
aðra hefur stýrt verkefni sem
hefur yfirskriftina Ferðaþjónusta
fyrir alla. Verkefnið er fyrir alla
þá sem starfa í ferðagreinum og
einnig fyrir þá sem bera ábyrgð á
ferðamálum innan stjórnsýslunn-
ar.
Samgönguráðuneytið, Sam-
tök ferðaþjónustunnar, Ferða-
málastofa og Öryrkjabandalagið
standa fyrir námstefnu þann 24.
febrúar undir sömu yfirskrift.
Markmið námstefnunnar er að
hvetja þá er starfa í og við ferða-
þjónustuna til að líta á aðgengi
fatlaðra sem eðlilegt gæðaviðmið.
Ferðaþjónusta fyrir alla snýst um
að allir, óháð hvaða fötlun þeir
búa við, geti ferðast þangað sem
þeir óska og á við allt sem snertir
ferðamennsku.
Jafnframt er vonast til þess
að ferðaþjónustan sjái hag sinn í
því að hafa aðgengi sem hluta af
markaðssetningu og upplýsinga-
gjöf um norræna staði og draga
þannig til sín fleiri viðskiptavini
utan Norðurlanda.
Ferðaþjónusta fyrir alla
Námskeið fyrir
byrjendur
SUNNUDAGINN 5. FEBRÚAR ÆTLAR
ÚTIVIST AÐ SKELLA SÉR Á GÖNGU-
SKÍÐI EF VEÐUR LEYFIR.
Boðið verður upp á námskeið í skíða-
göngu fyrir byrjendur í samvinnu við
Skíðasamband Íslands. Farið verður
í grunntækni í skíðagöngu, kennt
verður í tvo tíma og svo verður farinn
æfingahringur. Námskeiðið hentar
einnig vel fyrir þá sem vilja bæta
göngutækni sína. Leiðbeinandi á
námskeiðinu verður Auður Ebenesar-
dóttir og fararstjórn verður í höndum
Steinars Frímannssonar.
ferðalög }
Verið er að endurhanna þjónustusvæði Bláa lónsins. Fyrirhugað er að bæta við nýjum
matsal, stækka búningsaðstöðu og verslunaraðstöðu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Framundan er ráðstefna sem miðar að því að ferðaþjónustuaðilar líti á aðgengi fatlaðra sem
eðlilegt gæðaviðmið. Yfirskrift námstefnunnar er Ferðaþjónusta fyrir alla. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Á vefsíðunni utivera.is má
finna greinargóðar upplýsingar
um ýmis skíðasvæði víðsvegar
um heiminn.
Nú þegar páskafríið er innan seil-
ingar hyggja margir á skíðaferðir.
Mikilvægt er að vita hvað það er
sem skíðamenn vilja fá út úr ferð
sinni og að skíðasvæðið sem farið
er á uppfylli þær kröfur.
Á vefsíðunni utivera.is er búið
að taka saman upplýsingar um
sex skíðasvæði víða um heim
ásamt nokkrum vatnaskíðastöð-
um fyrir þá sem vilja breyta til. Á
vefsíðunni má finna upplýsingar
um fjölda lyfta og þjónustu á við-
komandi svæði. Einnig eru tengl-
ar inn á viðkomandi skíðasvæði
fyrir nánari upplýsingar.
Hvert skal haldið?