Fréttablaðið - 01.02.2006, Blaðsíða 4
4 1. febrúar 2006 MIÐVIKUDAGUR
SPÁNN, AP Forsætisráðherra Spán-
ar, Jose Luis Rodriguez Zapatero,
hélt í gær í heimsókn í hólmlendur
Spánar á strönd Norður-Afríku,
borgirnar Melilla og Ceuta. Þetta
er fyrsta opinbera heimsókn for-
sætisráðherra þangað í aldar-
fjórðung.
Íbúar borganna, sem og Afr-
íkubúar sem vonast eftir innflytj-
endaleyfum til Spánar, fögnuðu
honum vel, en búast má við að
heimsóknin auki stirðleika í sam-
skiptum Spánar og Marokkó, því
stjórnvöld í Marokkó gera tilkall
til yfirráða yfir borgunum tveim-
ur sem hafa verið undir spænskri
stjórn öldum saman. Í haust
flykktust hundruð langt að kom-
inna Afríkubúa yfir til borganna
í von um betra líf í Evrópu. - smk
Forsætisráðherra Spánar:
Heimsækir
hólmlendur
BAUGSMÁL Héraðsdómur Reykja-
víkur synjaði í gær kröfum verj-
enda í Baugsmálinu um að átta
ákæruliðir, sem eru til meðferðar
dómstóla, yrðu teknir allir fyrir í
senn þann 9. og 10. febrúar næst-
komandi. Þar með stendur fyrir
ákvörðun dómara um að fjórir
ákæruliðir, sem snúa að endur-
skoðendum Baugs, verði teknir
til aðalmeðferðar áðurgreinda
daga en hinir fjórir í byrjun
marsmánaðar.
Dómstóllinn vísaði jafnframt
frá kröfu verjenda um að mál
allra sakborninga yrði tekið fyrir
samtímis.
„Það hefur engin ákvörðun
verið tekin um það hvort úrskurð-
urinn verður kærður til Hæsta-
réttar. Niðurstaðan er andstæð
því sem við höfum verið að sækj-
ast eftir. Við höfum eindregið leit-
að eftir því að hinir ákærðu fái
málið dæmt og það gildir um þá
alla,“ segir Gestur.
Sigurður Tómas Magnússon,
settur saksóknari, vildi ekki tjá
sig um niðurstöðu dómsins í gær
en hann mótmælti því einnig í
síðustu viku að málið yrði slitið í
sundur. Ólíkt verjendunum vildi
hann að allt málið yrði tekið fyrir
í byrjun mars.
Hann kannar jafnframt grund-
völl fyrir nýrri málshöfðun á
grundvelli þeirra 32 ákæra í
Baugsmálinu sem Hæstiréttur
vísaði frá dómi í fyrra. - jh
SIGURÐUR TÓMAS MAGNÚSSON SAKSÓKN-
ARI OG GESTUR JÓNSSON VERJANDI Mál
stjórnenda Baugs verður að mestum líkum
tekið til aðalmeðferðar í byrjun mars.
Héraðsdómur synjar einni kröfu verjenda í Baugsmálinu og vísar annarri frá:
Baugsmálinu verður skipt
FRÉTTABLAÐIÐ Þorsteinn Pálsson,
fyrrverandi ráðherra og síðast
sendiherra í Danmörku, hefur
verið ráðinn ritstjóri Frétta-
blaðsins en hann mun starfa við
hlið Kára Jónassonar, núverandi
ritstjóra, frá 23. febrúar.
Þorsteinn starfaði sem blaða-
maður á Morgunblaðinu meðfram
námi frá 1970 til 1974 en þá lauk
hann lögfræðinámi og réð sig í
fullt starf til Morgunblaðsins. Ári
síðar var hann ráðinn ritstjóri
Vísis og gegndi því embætti í
fjögur ár.
Þorsteinn segist hlakka til þess
að snúa aftur í ritstjórastólinn.
„Það er rúmur aldarfjórðungur
síðan ég yfirgaf ritstjórastólinn
á Vísi og síðan hefur ýmislegt á
daga mína drifið. Það hefur mikið
breyst á fjölmiðlamarkaði hér á
landi á síðustu árum og það eru
ögrandi verkefni framundan. Ég
trúi því ekki öðru en að þetta verði
skemmtilegt viðfangsefni.“
Þorsteinn segist ekki gera
ráð fyrir því að breyta ritstjórn-
arstefnu Fréttablaðsins mikið.
„Fréttablaðið hefur verið í mjög
örri framþróun og það hefur verið
ánægjulegt að fylgjast með henni.
Það hefur þróast vel fram á við
og vonandi gerir Fréttablaðið
það áfram. Mér finnst miklu máli
skipta að blöð þróist en taki ekki
kollsteypum og ég mun leggja mitt
lóð á þá vogarskálar í samvinnu
við það fólk sem hér starfar. Það
eru engin áform um miklar breyt-
ingar með minni komu en vonandi
getum við haldið áfram að gera
Fréttablaðið sterkara og öflugra
en það er.“ Þorsteinn segist ekki
geta leynt því að blaðamennsk-
an hafi staðið honum nærri frá
gamalli tíð og því hafi það heillað
hann sérstaklega að snúa aftur
á þessum tímamótum í heim
fjölmiðlanna að nýju. „Ég hef nú
setið á friðarstóli sendiherrans í
sex ár og því var það vandasamt
að ákveða hvað ég tæki mér fyrir
hendur þegar heim kæmi. En það
hefur alltaf freistað mín að takast
aftur á við blaðamennsku að lokn-
um störfum á vettvangi stjórn-
málanna. Blaðamennska var
fyrsta starfið sem ég gegndi eftir
að ég lauk háskólaprófi og þetta
hefur staðið nærri mér síðan, þar
sem mér þótti þetta einstaklega
gefandi og skemmtilegt starf.“
Fréttablaðið hefur af sumum
verið talið draga taum eigenda
sinna í umfjöllun í blaðinu og hafa
þá spjótin oft og tíðum beinst að
ritstjórn, sem ber ábyrgð á skrif-
um í blaðinu. Þorsteinn segir það
vera eitt af mest áríðandi verk-
efnum fjölmiðla að geta þolað
gagnrýni úr öllum áttum. „Þegar
ég var ritstjóri á Vísi þá voru
miklar deilur um útgáfu blaðsins
og ég þekki því þess konar álag af
eigin raun. Ég held að það sé eitt
af því sem allir fjölmiðlar verða
að geta sætt sig við, að þeir geta
með einhverjum hætti dregist inn
í þjóðfélagsumræðuna um leið og
þeir taka þátt í henni. Ef það á að
gusta um fjölmiðla á annað borð
þá verða menn að vera reiðubúnir
til þess að standa gustinn af sér.“
magnush@frettabladid.is
Fjölmiðlar þoli gagnrýni
Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, sendiherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, mun senn
taka við ritstjórastarfi hjá Fréttablaðinu. Ritstjórnarstefna Fréttablaðsins mun að sögn Þorsteins ekki
breytast mikið með hans tilkomu. Álagið sem starfinu fylgir er honum mikið tilhlökkunarefni.
ÞORSTEINN RÆÐIR VIÐ BLAÐAMANN Á HEIMILI SÍNU Eftir langan feril í stjórnmálum hefur Þorsteinn ákveðið að snúa sér að nýju að
blaðamennsku. Hann starfaði sem blaðamaður á Morgunblaðinu eftir að hann lauk lögfræðinámi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 31.01.2006
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur 62,28 62,58
Sterlingspund 110,37 110,91
Evra 75,33 75,75
Dönsk króna 10,09 10,15
Norsk króna 9,305 9,359
Sænsk króna 8,163 8,211
Japanskt jen 0,5312 0,5344
SDR 90,13 90,67
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
105,5128
BANDARÍKIN, AP Bandaríkjaþing
staðfesti nýjan hæstaréttardóm-
ara í gær, þann 110. í sögu lands-
ins. Samuel A. Alito Jr. var kosinn
með afar naumum meirihluta,
58 atkvæði gegn 42. Hann hlaut
öll atkvæði repúblikana nema
eitt á meðan allir demókratarnir
nema fjórir greiddu atkvæði gegn
honum.
Alito var lögmaður fyrir ríkis-
stjórn Ronalds Reagan og hefur
jafnframt starfað sem lögmað-
ur og dómari í áfrýjunardómstól
Bandaríkjanna. George W. Bush
tilnefndi Alito, en störf hans innan
Reagan-stjórnarinnar ollu mestum
deilum meðal þingmanna. - smk
Bandaríkjaþing:
Nýr hæstarétt-
ardómari
STJÓRNMÁL Valgerður H. Bjarna-
dóttir, bæjarfulltrúi Vinstri
grænna á Akureyri, hefur ákveð-
ið að taka ekki annað sæti á lista
flokksins fyrir bæjarstjórnarkosn-
ingarnar í vor. Valgerður hlaut 73
atkvæði í efsta sætið en Baldvin
H. Sigurðsson 139 atkvæði.
„Ég hlaut aðeins átta atkvæði
í annað sætið þannig að þetta var
spurning um hvort okkar hefði
betur í baráttunni um efsta sætið.
Þetta kom mér í opna skjöldu. Ég
sit út kjörtímabilið og starfa vitan-
lega áfram með Vinstri grænum,“
segir Valgerður. - jh
Vinstri grænir á Akureyri:
Valgerður
tekur ekki sæti
VALGERÐUR H. BJARNADÓTTIR