Fréttablaðið - 01.02.2006, Blaðsíða 32
MARKAÐURINN 1. FEBRÚAR 2006 MIÐVIKUDAGUR8
NÝJASTA TÆKNI OG VÍSINDI
Aðeins tæpur helmingur Breta telur þróunar-
kenningu Darwins skýra upphaf lífs á jörðinni,
samkvæmt nýrri rannsókn sem framkvæmd var
fyrir breska ríkisútvarpið BBC.
Um fjörutíu prósent þátttakenda voru ennfrem-
ur þeirrar skoðunar að ekki ætti að kenna þróun-
arkenninguna í breskum skólum.
Tuttugu og tvö prósent aðhylltust sköpunar-
kenninguna. Aðrir tóku ekki afstöðu eða aðhylltust
aðrar kenningar.
Andrew Cohen, ritstjóri vísindaþáttarins
Horizon hjá BBC, var undrandi á niðurstöðunni.
„Við bjuggumst við að þróunarkenningin myndi
njóta langmests fylgis en það er greinilegt að
breskur almenningur er ekki á einu máli þegar
kemur að þessum málum.“
Martin Rees lávarður, forseti Samtaka breskra
vísindamanna, sagði ótrúlegt að kenning Darwins
nyti ekki meira fylgis. „Það er fáránlegt að fólk
skuli enn draga kenningu Darwins í efa. Kenningin
er um hundrað og fimmtíu ára gömul og hefur
stöðugt styrkst í sessi.“ -jsk
Bretar tortryggja Darwin
Helmingur Breta dregur þróunarkenningu Darwins í efa.
Fjörutíu prósent telja að ekki eigi að kenna fræði Darwins
í skólum.
CHARLES DARWIN Aðeins tæpur helmingur Breta
tekur þróunarkenningu Darwins trúanlega. Vísindamenn
eru forviða og segja kenninguna standa traustum fótum.
Átta hundruð og tíu milljónir farsíma seldust í heim-
inum á síðasta ári og er það nítján prósenta aukning
frá fyrra ári. Kemur þetta fram í skýrslu banda-
ríska ráðgjafarfyrirtækisins Strategy Analytic.
Aukninguna má að mestu skýra með gríðarlegri
eftirspurn á Indlandi og í Afríku.
Sérfræðingar spá því að eftirspurn eftir farsímum
haldi áfram að aukast. „Að öllu óbreyttu sjáum við
fram á að árið 2007 seljist einn
milljarður farsíma.“ sagði í
skýrslu Strategy Analytic. -jsk
Milljarður farsíma árið 2007
SONY ERICSON FARSÍMI
Sérfræðingar sjá fram á að eftirspurn
eftir farsímum haldi áfram að aukast
og spá því að árið 2007 seljist einn
milljarður síma.
Skólayfirvöld í Vestur-Virginíu
í Bandaríkjunum nýta nú tölvu-
leiki í baráttunni gegn offitu
skólabarna. Offita er gríðar-
legt vandamál í fylkinu; hvergi
í Bandaríkjunum mælast fleiri
með of háan blóðþrýsting auk
þess sem tíðni sykursýki er ein
sú allra hæsta í Bandaríkjunum.
Tölvuleikurinn sem um ræðir
heitir Dance Dance Revolution
og er hannaður fyrir xBox-
leikjatölvurnar frá Microsoft.
Þátttakendur horfa á dansandi
fígúru á skjánum og reyna að
leika sporin eftir á þar til gerðri
mottu, sem síðan mælir hversu
vel hefur tekist til.
Nemendum verður ekki skylt að
taka þátt í leiknum, en hann er
hugsaður sem valkostur fyrir þá
sem telja hefðbundna leikfimi-
tíma ekki nægja.
Prófessor Linda Carson, sem stýr-
ir verkefninu, segir ekki ráð nema
í tíma sé tekið. „Mikilvægast er
að við náum til barna á aldrinum
tíu til fjórtán ára. Á þessum aldri
mótast hugarfar fólks til hreyf-
ingar og líkamsræktar.“
Áætlað er að leikurinn og til-
heyrandi búnaður verði sendur í
alla sjö hundruð fimmtíu og þrjá
ríkisskóla í Vestur-Virginíu og að
tvö hundrað og áttatíu þúsund
nemendur komi til með að taka
þátt. -jsk
Tölvuleikur gegn offitu
Skólar í Vestur-Virginíu láta feita nemendur
dansa fyrir framan tölvuna.
XBOX TÖLVA FRÁ MICROSOFT Nýjasta
ráðið í baráttunni gegn offitu er að halda
fólki heima í stofu. Skólayfirvöld í Vestur-
Virginíu í Bandaríkjunum láta nemendur
sína dansa fyrir framan tölvuna.
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA