Fréttablaðið - 01.02.2006, Blaðsíða 12
12 1. febrúar 2006 MIÐVIKUDAGUR
Öllum Nissan X-TRAIL sem keyptir eru
í febrúar fylgja vetrardekk og dráttarbeisli
ORKUMÁL Landsvirkjun og Þey-
stareykir ehf. skrifuðu síðastlið-
inn föstudag undir samning við
Jarðboranir um borun þriggja
rannsóknarhola á Norðurlandi.
Samningurinn hljóðar upp á um
500 milljónir króna og verður
byrjað að bora fyrstu holuna á
vordögum.
„Tilgangurinn er að afla frek-
ari upplýsinga um nýtanlegt gufu-
afl á Þeystareykjum, í Bjarnar-
flagi og við Kröflu. Ef holurnar
reynast nægilega öflugar verða
þær nýttar vegna væntanlegrar
stóriðju á Norðurlandi sem okkur
hefur verið lofað að taki til starfa
á árinu 2011 eða 2012,“ segir
Hreinn Hjartarson, stjórnarfor-
maður Þeystareykja.
Landsvirkjun keypti í fyrra
31,9 prósenta eignarhlut í Þey-
stareykjum ehf. og greiddi 260
milljónir króna fyrir. Orkuveita
Reykjavíkur hafði einnig áhuga
á að eignast hlut í Þeystareykj-
um en Hreinn segir Landsvirkj-
un hafi orðið fyrir valinu til að
auka líkur á nýju álveri á Norð-
urlandi og hraða framkvæmdum
við það.
Eigendur Þeystareykja eru:
Orkuveita Húsavíkur (31,9 %)
Norðurorka (31,9 %) Landsvirkjun
(31,9 %) Þingeyjarsveit (3,6 %) og
Aðaldælahreppur (0,4 %). - kk
ÞEYSTAREYKJASVÆÐIÐ Gufuaflsvirkjun á
Þeystareykjum mun anna um þriðjungi af
orkuþörf nýs álvers í nágrenni Húsavíkur.
Rannsóknir á gufuafli á Norðurlandi:
Borað fyrir hálfan milljarð
RANNSÓKNIR Háskólasetrinu í
Hveragerði hefur með nýjum
samstarfssamningi verið tryggt
fjármagn til rekstrarins.
Að samningnum standa Háskóli
Íslands, Landbúnaðarháskóli
Íslands, Hveragerðisbær, Prok-
oria rannsóknir ehf., Rannsókna-
stofnunin Neðri Ás, Sunnlensk
orka og Orkuveita Reykjavík-
ur, sem bætist nú í hópinn í stað
Heilsustofnunar Náttúrulækn-
ingafélags Íslands í Hveragerði.
Samningurinn tryggir sem
fyrr segir rekstur setursins en
það sem á vantar fæst væntanlega
með sjálfsaflafé, styrkjum og
útseldri vinnu. -shá
Samstarfssamningur í höfn:
Háskólasetrinu
tryggt fjármagn
FERÐAMÁL Alls höfðu 90 prósent
erlendra ferðamanna í Reykjavík
góða eða frábæra reynslu af borg-
inni síðasta sumar. Þetta kemur
fram í könnun sem Höfuðborgar-
stofa lét gera.
Hæstu einkunn fá sundlaug-
arnar og heilsurækt af ýmsu tagi
þegar spurt er um afþreyingu. Æ
fleiri ferðamenn heimsækja söfn
og um 90 prósent aðspurðra töldu
Reykjavík vera hreina og örugga
borg. - sdg
Erlendir ferðamenn:
Ánægðir með
Reykjavík
REYKJAVÍK Borgin fær afburðaeinkunn í
nýrri könnun Höfuðborgarstofu.
SVEITARSTJÓRNARMÁL Biðlistinn í
Fjarðabyggð ætlar að bjóða fram
lista í sveitarstjórnarkosning-
unum eystra í vor. Frá þessu er
greint í Austurglugganum og segir
þar að stofnað hafi verið til fram-
boðsins fyrir síðustu kosningar til
að berjast fyrir því að álver rísi
örugglega í Reyðarfirði.
Ásmundur Páll Hjaltason, bæj-
arfulltrúi listans, segir að eng-
inn skortur sé á málefnum til að
berjast fyrir og að málefni syðstu
byggða Fjarðabyggðar, Fáskrúðs-
fjarðar og Stöðvarfjarðar, séu
aðkallandi þar sem ljóst sé að
uppgangurinn á Austurlandi nái
ekki nema að takmörkuðu leyti
þangað. -shá
Framboð í Fjarðabyggð:
Biðlistinn býð-
ur fram á ný
ÍSRAEL, AP Hamas-samtökin í Pal-
estínu neituðu í gær kröfum Sam-
einuðu þjóðanna um að viðurkenna
tilverurétt Ísraelsríkis og að afneita
ofbeldisverkum. Þó báðu talsmenn
samtakanna um áframhaldandi
fjárframlög Evrópusambandsins
til Palestínu, en sögðust vera farnir
að líta eftir styrkjum frá araba- og
múslimaríkjum. Hamas-samtökin
unnu kosningasigur í síðustu viku
og munu því líklega leiða heima-
stjórn Palestínu í nýrri stjórn.
Helstu stofnanir Palestínumanna
eru reknar á erlendum fjárfram-
lögum, en Bandaríkin og Evrópu-
sambandið skilgreina Hamas sem
hryðjuverkasamtök og það getur
hindrað fjárstyrki til heimastjórnar
sem samtökin leiða.
Utanríkisráðherra Sádi-Arabíu
gagnrýndi í gær hótanir Evrópu-
sambandsins um að hætta fjárfram-
lögum til Palestínu, sérstaklega þar
sem aðildarríki þess hvöttu mjög til
kosninganna sem Hamas vann sigur
í. Þá lögðu Sádi-Arabía og Jórdanía
fast að Hamas að milda afstöðu sína
gagnvart Ísrael og fá Fatah-hreyf-
inguna með sér í stjórn. - smk
Hamas-samtökin hafna kröfum Sameinuðu þjóðanna:
Hamas neitar að viðurkenna Ísrael
GENGIÐ GEGN HAMAS Meðlimir Fatah-hreyfingarinnar mótmæla í Nablusborg í gær þeim áformum að Hamas-hreyfingin leiði nýja heima-
stjórn Palestínu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP