Fréttablaðið - 05.05.2006, Side 2
2 5. maí 2006 FÖSTUDAGUR
VELFERÐ UMHVERFI NÝSKÖPUN
Margrét K. Sverrisdóttir,
framkvæmdastjóri og
varaborgarfulltrúi
2 sæti
„ Björgum 19. aldar
götumynd
Laugavegarins.“
KJARAMÁL Hópur leikskólastarfs-
manna á 27 leikskólum Reykjavíkur-
borgar, eða á þriðjungi þeirra,
fengu ofgreidd laun í febrúar, mars
og apríl.
Starfsfólkið átti að fá fimm
flokka launahækkun en fékk tíu.
Einnig eru dæmi um að leikskóla-
stjórar, aðstoðarleikskólastjórar
og deildarstjórar hafi fengið
ofgreidd laun. Ófaglærðir starfs-
menn eru ekki í hópnum. Starfs-
mennirnir þurfa að greiða
mismuninn til baka.
„Mistök urðu hjá launadeild-
inni. Okkur þykir það miður og við
viljum setja kraft í að leiðrétta
þau,“ segir Kristján Kristmanns-
son, verkefnisstjóri launaaf-
greiðslu hjá Reykjavíkurborg.
Hann fundaði með leikskólastjórn-
um leikskólanna og tveimur full-
trúum menntasviðs í gær.
„Ég hef hvorki nákvæmar tölur
um fjölda starfsmannanna né hve
háa upphæð þeir þurfa að greiða
til baka,“ segir Kristján: „Málið er
í vinnslu.“
Samkvæmt launatöflu Félags
leikskólakennara má reikna með
að starfsmennirnir hafi fengið á
bilinu 13.766 til 15.750 krónum
hærri laun en þeim bar. Þeir þurfa
því að greiða allt að rúmum 46
þúsund krónum til baka hver.
Mistökin urðu við breytingarnar
á laununum eftir 28. janúar þegar
laun starfsmanna Reykjavíkur-
borgar voru hækkuð. Þrír launa-
fulltrúar sjá um launagreiðslur til
starfmanna leikskólanna og gerði
einn, sem er nýr í starfi, mistök
við breytingarnar. Kristján segir
að mistökin hafi uppgötvast þegar
leikskólastjórar höfðu samband
við launadeildina með áhyggjur
vegna hás launakostnaðar skól-
anna.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir
borgarstjóri, segir að ákveðinn
friður hafi myndast um leikskóla-
málin þegar borgin tók af skarið og
hækkaði laun borgarstarfsmanna:
„Þegar svona mistök uppgötvast, á
hvorn veginn, er eðlilegt að leið-
rétta þau. En það er alltaf verra
þegar laun eru ofgreidd heldur en
vangreidd. Ákveða þarf í samstarfi
við starfsmennina á hve löngum
tíma þau verða endurgreidd.“
Björg Bjarnadóttir, formaður
Félags leikskólakennara, hafði
ekki heyrt af mistökunum. Hún
sagði að þau yrði skoðuð kæmu
þau inn á borð félagsins.
gag@frettabladid.is
Leikskólakennarar
fengu ofgreidd laun
Mannleg mistök urðu til þess að leikskólakennarar og yfirmenn þeirra á 27 leik-
skólum borgarinnar þurfa að endurgreiða tugþúsundir króna. Starfsmennirnir
voru hækkaðir um tíu launaflokka í stað fimm við launabreytingarnar í janúar.
LEIKSKÓLAKENNARAR FENGU MEIRA EN ÞEIM BAR Laun leikskólakennara, deildarstjóra, aðstoðarleikskólastjóra og stjóranna sjálfra á 27
leikskólum borgarinnar hafa fengið of mikið greitt í þrjá mánuði. Þessi mynd er frá opnu húsi í Brekkuborg í Grafarvogi. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
VIÐSKIPTI FL Group, næst stærsti
hluthafinn í Glitni, hefur keypt
hlutabréf í bankanum fyrir rúma
6,3 milljarða króna á genginu 16,7.
Þetta er ríflega 2,6 prósent hluta-
fjár.
Eftir viðskiptin er eignarhlutur
FL Group í Glitni kominn yfir nítján
prósent. Nemur markaðsvirði
hlutarins um 47 milljörðum króna
og er þetta stærsta einstaka fjár-
festingin í safni FL Group. - eþa
FL Group kaupir í Glitni:
Á yfir nítján
prósenta hlut
HANNES SMÁRASON FORSTJÓRI FL Group
hefur aukið hlut sinn í Glitni.
DANMÖRK Tólf ungir hryðjuverka-
menn eru á leið til Danmerkur til
að drepa teiknarana sem teiknuðu
myndir af Múhameð spámanni
fyrir Jótlandspóstinn síðastliðið
haust. Þetta hefur palestínski
blaðamaðurinn, Hamid Mir eftir
heimildarmönnum sínum meðal
Talibana. En Hamid varð þekktur
fyrir viðtal sem hann náði við
Osama Bin Laden.
Danskur hryðjuverkasérfræð-
ingur segir í viðtali við Politiken í
gær að hann telji ólíklegt að menn-
irnir kæmust inn í landið ef þeir á
annað borð væru á leiðinni. Hann
sagði þó að fréttir sem þessar
væru mjög sláandi fyrir teiknar-
ana sem hafa lifað í ótta frá því að
teikningarnar voru birtar. - ks
Skopmyndir Jótlandspóstsins:
Hryðjuverka-
menn á leiðinni
DÓMSMÁL Karlmaður á þrítugs-
aldri var í Hæstarétti í gær dæmd-
ur í tólf mánaða fangelsi fyrir
vopnað rán í lyfjaverslun í Reykja-
vík.
Í dómi Héraðsdóms voru níu
mánuðir af tólf skilorðsbundnir en
Hæstiréttur sá ekki ástæðu til
þess að skilorðsbinda dóminn.
Maðurinn ruddist inn í lyfjaversl-
un, ásamt öðrum manni, og ógn-
uðu þeir starfsmönnum með egg-
vopni. Félagi mannsins sem
dæmdur var í gær hafði áður verið
dæmdur í átta mánaða skilorðs-
bundið fangelsi vegna ránsins en
þeim dómi var ekki áfrýjað. - mh
Dæmdur fyrir vopnað rán:
Ógnaði fólki
með eggvopni
ÍSRAEL, AP Ísraelska þingið Kness-
et samþykkti í gær nýja ríkis-
stjórn Ehuds Olmerts forsætis-
ráðherra. Olmert segir að helsta
verkefni stjórnarinnar verði að
draga „endanleg landamæri“ milli
Ísraels og svæða Palestínumanna.
Þá hyggjast Olmert og félagar
hans skipta Jerúsalem upp í þrjá
hluta, þar sem Palestínumenn fá
til umráða næstum því öll araba-
hverfin í austurhluta borgarinnar,
en Ísraelar stjórna gyðingahverf-
unum í vesturhlutanum auk þess
sem Ísraelar hafa einnig yfirráð
yfir elsta bæjarhlutanum, þar sem
helgidómar jafnt gyðinga, mús-
lima og kristinna manna eru stað-
settir.
Otnier Schiller, þingmaður í
flokki Olmerts og einn helsti höf-
undur þessara áforma, segir að
gamli borgarhlutinn verði „sér-
stakt svæði með sérstökum skil-
málum,“ en þó undir yfirráðum
Ísraelsmanna.
Palestínumenn hafa miklar efa-
semdir um þessi áform, en Olmert
hyggst hrinda þeim í framkvæmd
annað hvort með samþykki Palest-
ínumanna eða einhliða ef slíkt
samþykki fæst ekki. - gb
MÚRINN Í PALESTÍNU Palestínumaður sat í gær og beið eftir fari við ísraelska aðskilnaðar-
múrinn sem reistur hefur verið milli Ramallah á Vesturbakkanum og Jerúsalem.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Ríkisstjórn Olmerts tekur við í Ísrael:
Hyggst skipta upp Jerúsalem
SPURNING DAGSINS
Jónas, ættirðu ekki að kalla
nýju búðina matargat frekar
en rottuholu?
Það ætti að kalla hana matarfrat því
það er búið að setja mig í megrun.
Jónas Halldórsson, antíksali, er að opna nýja
verslun sem hann kallar þægilega rottuholu.
Hann segist jafnframt vera sá stærsti í brans-
anum, bæði að ummáli og úrvali.
LÓÐAMÁL Bauhaus hefur samþykkt
að greiða 616 milljónir fyrir lóðina
við Úlfarsfells. Fermetraverðið
nemur um 31 þúsund krónum.
Dagur B. Eggertsson, formaður
skipulagsráðs, segir að fermetra-
verðið sé hærra en bæði BYKO og
Húsasmiðjan greiddu fyrir sína.
Hins vegar efist hann um að Bau-
haus hefði fengið lóðina hefðu
sjálfstæðismenn farið með völdin
í öllum bæjarfélögum höfuð-
borgarsvæðisins: „Árangurslausar
tilraunir Bauhaus til að fá lóð í
öðrum sveitarfélögum kristallar
það.“ - gag
Bauhaus fær lóð:
Greiðir 616
milljónir fyrir
BAUHAUS TIL ÍSLANDS Bauhaus byggir á
minni bláa reitnum en BYKO með öðrum
á þeim stærri.
STJÓRNMÁL Svandís Svavarsdóttir,
leiðtogi vinstri grænna í borginni,
segir ekki sjálfgefið að íbúabyggð
rísi á svæði Árbæjarsafnsins verði
það flutt út í Viðey. Elliðaárdalur-
inn, Heiðmörk og Viðey rammi
borgina inn og beri að varðveita.
Borgarstjóri ákvað í gær að sam-
fara mati starfshóps á kostum og
göllum þess að flytja Árbæjarsafn
út i Viðey myndi hann skoða hugs-
anlega íbúabyggð á svæði þess.
Hugmyndir að flutningnum eiga
Minjavernd og Þyrping.
Dagur B. Eggertsson, Samfylk-
ingu, segir að verði af flutningn-
um væri spennandi að taka upp
tíðar ferjusiglingar frá tónlistar-
og ráðstefnuhúsinu um sundin og
gera Viðey að aðgengilegri perlu í
borgarlandinu.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
oddviti sjálfstæðismanna, segir
tillöguna einnig spennandi: „Ef af
þessu verður þarf að tryggja
góðar samgöngur við eyjuna, því
mikið af börnum og unglingum
fara í safnið og þurfa að geta kom-
ist í það á öruggan máta.“
Björn Ingi Hrafnsson, Fram-
sóknarflokki, sagðist ekki hafa
velt hugmyndinni mikið fyrir sér:
„Við höfum talað fyrir að skoða
nýtingu Hljómsskálagarðsins í
þessu tilliti.“ Allar hugmyndir
sem leiði til þess að fleiri njóti
Viðeyjar séu af hinu góða.
Borgarstjóri ákvað að fela hug-
myndina starfshópi sem auk mats-
ins á að skoða hvort íbúabyggð
geti risið á svæðinu sem Árbæjar-
safnið stendur á nú. Ekki náðist í
Ólaf F. Magnússon, fyrir frjáls-
lyndaflokkinn og óháða. - gag
Þverpólitísk sátt um að skoða flutning Árbæjarsafns út í Viðey:
Íbúabyggð gæti risið á svæðinu í Árbæ
VIÐEY Borgarráð ákvað í gær að skoða hugmyndir um að færa Árbæjarsafn út í Viðey.