Fréttablaðið - 05.05.2006, Qupperneq 4
4 5. maí 2006 FÖSTUDAGUR
FLUGVÖLLUR Hjálmar Árnason,
þingflokksformaður Framsóknar-
flokksins, spurði á Alþingi í gær
hvort þjóðin hefði efni á að byggja
10 til 12 milljarða króna flugvöll
ef Reykjavíkurflugvöllur yrði að
víkja.
Í umræðum í gær á Alþingi um
ráðstafanir á Keflavíkurflugvelli
lýsti hann efasemdum um þá
stefnu framsóknarmanna í
Reykjavík að byggja nýjan flug-
völl á Lönguskerjum. „Ég hef efa-
semdir um þá leið vegna þess að
hún er dýrari en sú leið sem mér
hugnast,“ sagði Hjálmar. Hann
efaðist um það stefnumið fram-
sóknarlistans í Reykjavík að þjóð-
arsátt næðist um þá lausn.
Hjálmar kvaðst taka undir með
samgönguráðherra að flytja bæri
innanlandsflugið til Keflavíkur.
„Ef til þess kemur að flugvöllur-
inn fari úr Vatnsmýri, að þá telji
hann skynsamlegast og hagkvæm-
ast að nýta flugvöllinn í Keflavík.“
Hjálmar benti á að yfirstandandi
samgöngubætur og frekari bætur
í náinni framtíð yrðu til þess að
stytta ferðatímann milli vallarins
og höfuðborgarsvæðisins í um 20
mínútur. Kristinn H. Gunnarsson,
þingmaður Framsóknarflokks-
ins, lýsti andstöðu við hugmyndir
Hjálmars og Lönguskerjahug-
myndina. „Nú fyrir borgarstjórn-
arkosningarnar er enginn flokkur
sem boðar það að flytja Reykja-
víkurflugvöll til Keflavíkur... Það
er mikil bót í umræðunni að menn
skuli vera fallnir frá þeim hug-
myndum að flytja innanlandsflug-
ið til Keflavíkur... Nú er aðeins
tekist á um það hvort flytja eigi
flugvöllinn úr Vatnsmýrinni og
eitthvert annað innan höfuðborg-
arinnar eða í nágrenni hennar,“
segir Kristinn.
Hann segir að umræðan um að
flytja völlinn til Keflavíkur snúist
um að ganga á hagsmuni fólks
utan höfuðborgarsvæðisins. „Mér
finnst reyndar miklu meiri rök
fyrir því að flytja millilandaflugið
frá Keflavík til Reykjavíkur.“
Kristinn telur víst að kosninga-
baráttunni í Reykjavík ljúki í sátt
um að völlurinn verði áfram í
Vatnsmýrinni. „Ef Lönguskerja-
flugvöllur er kostur, þá dæmir sá
kostur flugvöllinn úr leik vegna
þess að ef hagkvæmt er að hafa
flugvöll á Lönguskerjum þá er
hægt að vera þar með íbúðabyggð.
Og það er væntanlega miklu meira
upp úr því að hafa að byggja íbúð-
arhúsnæði og atvinnuhúsnæði þar
en að byggja flugbrautir,“ sagði
Kristinn.
johannh@fretetabladid.is
HJÁLMAR
ÁRNASON
KRISTINN H.
GUNNARSSON
FLUGVÖLLUR Á LÖNGUSKERJUM
Borgarstjórnarflokkur framsóknarmanna vill
færa flugvöllinn úr Vatnsmýri á Löngusker.
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 04.05.2006
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur 72,06 72,4
Sterlingspund 132,81 133,45
Evra 90,77 91,27
Dönsk króna 12,171 12,243
Norsk króna 11,715 11,783
Sænsk króna 9,737 9,795
Svissneskur franki 58,16 58,48
SDR 106,34 106,98
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
126,1538
LAGERSALA
50%
AFSLÁTTUR
AF ÖLLU !
OPIÐ 11-19
FELLSMÚLA 28
(GAMLA WORLD CLASS HÚSINU)
Framsóknarmenn deila
innbyrðis um Löngusker
Hjálmar Árnason og Kristinn H. Gunnarsson, þingmenn Framsóknarflokksins, lýsa efasemdum og beinni
andstöðu við það stefnumið Framsóknarlistans í Reykjavík að flytja Reykjavíkurflugvöll út á Löngusker.
DÓMSMÁL Maður á þrítugsaldri
var í gær dæmdur í fjögurra mán-
aða skilorðsbundið fangelsi fyrir
líkamsárás. Hæstiréttur mildaði
dóm Héraðsdóms Reykjavíkur en
þar hafði maðurinn verið dæmd-
ur í átta mánaða fangelsi, þar af
fimm mánuði skilorðsbundið.
Fyrir rúmum tveimur árum
lamdi maðurinn annan mann í
andlitið, í heimahúsi á Seltjarnar-
nesi, með þeim afleiðingum að
hann fékk mikla áverka í andliti.
Meðal annars brotnuðu þrjár
framtennur. - mh
Dæmdur fyrir árás:
Skilorð fyrir
harkalega árás
SPARISJÓÐIR Einar Oddur Kristj-
ánsson, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, og Lúðvík Bergvinsson,
þingmaður Samfylkingarinnar,
hafa sameiginlega lagt fram frum-
varp um slit sparisjóða.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að
þegar sparisjóður breytir rekstr-
arformi sínu, skuli ráðstafa eigin
fé hans, öðru en stofnfé, til sveit-
arfélags þar sem sjóðurinn hefur
starfað eða stjórn eða samþykktir
hafa skilgreint sem viðskipta-
svæði hans.
Flutningsmenn segja að undan-
farin misseri hafi staðið átök um
rekstur og starfsemi sparisjóða.
Þeir hafi á löngum tíma byggt upp
eigið fé, annars vegar í eigu stofn-
fjáreigenda en hins vegar annað
eigið fé.
„Almenningur fengi eign sína
afhenta í samræmi við uppruna-
legan tilgang viðkomandi spari-
sjóðs um uppbyggingu í sínu hér-
aði. Þetta væri í samræmi við
samþykktir sparisjóðanna. Stofn-
fjáreigendur mundu halda sínu,“
segir Lúðvík. Flutningsmennirnir
undrast að stjórnvöld hafi ekki
enn gripið til aðgerða í ljósi
umrótsins um sparisjóðina í land-
inu. Sagan geymi dæmi þess að
aðilar hafi komist yfir fé við sam-
bærilegar aðstæður án þess að
hafa átt skýra kröfu til þess. - jh
Tveir þingmenn stærstu flokkanna sameinast um frumvarp um slit sparisjóða:
Fólkið fái eign sína afhenta
SPARISJÓÐUR Megnið af eigin fé sparisjóða
er ekki eign stofnfjáreigenda. Þingmennirn-
ir tveir telja að íbúar í héraði sparisjóðsins
eigi rétt á að fá þessa eign afhenta komi til
slita á sjóðnum.
BRETLAND, AP Baráttusamtök fyrir
réttindum ófæddra barna hafa
brugðist harkalega við fréttum af
63 ára gamalli breskri konu sem
komin er sjö mánuði á leið.
Barnasálfræðingurinn Patricia
Rashbrook á tvö börn fyrir, en er
nýgift og gekkst undir frjósemis-
aðgerð erlendis, og var notast við
egg úr yngri konu, að sögn læknis
hennar á Ítalíu, sem jafnframt
bætti við að eldra fólk reynist iðu-
lega betri foreldrar.
Hjónin verja rétt sinn til að
vera aldraðir foreldrar og segjast
fullkomlega fær um að sjá fyrir
barninu. - smk
Ófrísk á sjötugsaldri:
Öldruð móðir
sætir ásökunum
ALDRAÐIR FORELDRAR Patricia Rashbook,
63 ára, og eiginmaður hennar, John Far-
rant, eiga von á barni eftir tvo mánuði.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Tveir á sjúkrahús Ökumenn fólks-
bíls og jeppa voru fluttir á sjúkrahús
eftir árekstur á Snæfellsnesvegi, við
Borgarnes, á þriðja tímanum í gær.
Meiðsl þeirra voru ekki lífshættuleg.
Lögreglan í Borgarnesi telur beltin hafa
bjargað ökumönnunum en bifreiðarnar
eru báðar ónýtar.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Játaði líkamsárás Karlmaður hlaut
skilorðsbundinn dóm í Héraðsdómi
Vesturlands fyrir líkamsárás við Hótel
Stykkishólm í desember síðastliðnum.
Gekkst maðurinn greiðlega við brotinu.
Sektaður fyrir torfæruakstur
Maður hefur verið dæmdur til að greiða
25 þúsund króna sekt fyrir að hafa ekið
KTM torfærubifhjóli á nokkur hundruð
metra kafla utan vega í suðurhlíð Selja-
fells í Helgafellssveit. Hjólför mynduðust
í hraunmölina sem er lítillega gróin
mosa og grasi.
DÓMSMÁL
Björn Ingi og umræða á þingi:
Hreppapólitík
Björn Ingi Hrafnsson, efsti maður á
lista Framsóknarflokksins í Reykja-
vík, kallar umræðurnar á Alþingi
hreppapólitík.
Framboðin í
Reykjavík vilji
ekki að Reykja-
víkurflugvöllur
fari til Kefla-
víkur. „Nefnd
á vegum
samgöngu-
ráðherra og
borgarstjórnar
hefur skoðað
sérstaklega tvö flugvallarstæði, ann-
ars vegar Hólmsheiði og hins vegar
Löngusker. Forsvarsmenn Flugfélags
Íslands hafa þegar lýst því yfir að
þeim lítist betur á Löngusker,“ segir
Björn Ingi á vefsíðu sinni.