Fréttablaðið - 05.05.2006, Side 8

Fréttablaðið - 05.05.2006, Side 8
8 5. maí 2006 FÖSTUDAGUR VEISTU SVARIÐ 1 Hvað heitir bandaríski hagfræðing-urinn sem hélt fyrirlestur um íslenskt efnahagskerfi í New York í fyrradag? 2 Gaslindir þjóðar í Rómönsku-Am-eríku hafa verið þjóðnýttar. Í hvaða landi? 3 Hvað heitir kvennasveitin sem Nylon-sönghópurinn ætlar að hita upp fyrir á næstunni? SVÖR Á BLS. 54 Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mán – fös kl. 9-18 og lau kl. 12-16 FRÁBÆRT VERÐ OG RÍKULEGUR STAÐALBÚNAÐUR! Rafstýrð leðursæti, 17" álfelgur, 4x4, litað gler, 6 diska geislaspilari, 3 drifstillingar, loftkæling, sjálfskipting, útvarpsfjarstýring í stýri, sóllúga. E N N E M M / S ÍA / N M 2 15 9 0 Nissan X-Trail Elegance 3.250.000 kr. NISSAN X-TRAIL BORGAÐU MINNA FYRIR MEIRI LÚXUS! NISSAN X-TRAIL HEFUR HLOTIÐ ÓTAL VERÐLAUN OG VIÐURKENNINGAR ... BANDARÍKIN, AP „Þú munt deyja vælandi,“ sagði Leonie Brinkema, dómari í máli Zachariasar Moussa- oui, þegar hún hafði kveðið upp dóminn yfir honum í gær. Sjálfur lét Moussaoui engan bilbug á sér finna: „Ég verð frjáls og frelsun mín verður sönnun þess að við erum hermenn Guðs og þið eruð her Satans,“ sagði hann eftir að dómurinn hafði verið kveðinn upp. „Guð verndi Osama bin Laden,“ bætti hann síðan við. Hann talaði ekki í meira en fimm mínútur, en þá hafði dómar- inn áminnt hann um að nota ekki dómsuppkvaðninguna til þess að flytja pólitíska ræðu. Hann er eini maðurinn sem hlot- ið hefur dóm fyrir árásirnar á Bandaríkin 11. september árið 2001. Sjálfur sat hann reyndar í fangelsi meðan árásirnar voru gerðar, en dómurinn er byggður á því að hann hafi haft vitneskju um árásirnar fyrir fram og hafi því getað komið í veg fyrir þær með því að greina stjórnvöldum frá vitneskju sinni í tæka tíð. Kviðdómur komst að þeirri nið- urstöðu á miðvikudag að Moussa- oui ætti að hljóta lífstíðarfangels- isdóm. Moussaoui verður nú sendur í rammgirt fangelsi í Colo- rado, þar sem hann fær ekki að eiga nein samskipti við umheim- inn. Frönsk stjórnvöld sögðust í gær hugsanlega ætla að krefjast þess að Bandaríkjamenn framseldu Moussaoui svo hann gæti afplánað dóm sinn í Frakklandi. Moussaoui er franskur ríkisborgari af mar- okkóskum uppruna. Víða í bandarískum fjölmiðlum mátti aftur á móti heyra hneykslis- raddir út af því að kviðdómurinn komst að þeirri niðurstöðu að Moussaoui hlyti ævilangt fangelsi í stað þess að verða líflátinn. Móðir hans, Aicha El Wafi, sem er búsett í Frakklandi, vandaði á hinn bóginn frönskum stjórnvöld- um ekki kveðjuna í gær. „Sonur minn verður grafinn lif- andi vegna þess að Frakkland hafði ekki hugrekki til að andmæla Bandaríkjamönnum,“ sagði hún og hvatti frönsku stjórnina til þess að láta nú loks til sín taka í máli sonar síns. „Ég er ekki sammála hugmynd- um og orðum sonar míns í réttar- salnum,“ sagði hún, en bætti því við að það væri „vegna orða hans, litarháttar hans, kynþáttar hans, sem hann var dæmdur í ævilangt fangelsi.“ gudsteinn@frettabladid.is MÓÐIR MOUSSAOUIS Móðir hins dæmda sakar frönsk stjórnvöld um að hafa ekki beitt sér nægilega í máli hans. Hér sést hún ásamt lögmanni sínum í Frakklandi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Þið eruð her Satans Zacharias Moussaoui segist verða frjáls, þrátt fyrir að hafa verið dæmdur í ævilangt fangelsi. Dómar- inn segir að hann muni „deyja vælandi“. DÓMSMÁL Nektarstaðurinn Óðal hefur verið sýknaður í héraðs- dómi af kröfu dansara um ríflega 435 þúsund króna laun. Brasilísk kona hóf störf, ásamt tveimur öðrum í september 2003. Áður en tíu daga atvinnuleyfið rann út var samningurinn fram- lengdur og samið um að hún ynni á staðnum fram í mars fyrir 150 þúsund krónur á mánuði. Hún hætti í janúar. Ágreiningur er milli konunnar og eigenda Óðals. Hún segist hafa verið rekin en hann neitar því. Vitni, sem störf- uðu á Óðali, sögðust aldrei hafa heyrt um að hún hefði verið rekin og því var Óðal sýknað. - gag Nektarstaðurinn Óðal: Sýknaður af kröfu dansara ZACHARIAS MOUSSAOUI Moussaoui gaf sigurmerki þegar hann kom í réttarsalinn í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP TÓNLISTARHÚS Jón Bjarnason, þing- maður vinstri grænna, kveðst ekki mótfallinn tónlistarhúsi. „En þing- ið og fjárlaganefnd hafa ekki feng- ið að sjá samninginn sem felur í sér 6,5 milljarða skuldbindingar ríkissjóðs. Þetta er fráleitt og ég óskaði eftir því á fundi fjárlaga- nefndar að samningurinn um millj- arðastyrk til einkafélags yrði afhentur. A.P. Möller og sjóður í einkaeigu gaf Dönum nýverið óperuhúsið á Hólminum í Kaup- mannahöfn. Það var umdeilt. Hér styrkir ríkið einkaaðila um millj- arða og skattborgarar fá ekkert að vita,“ segir Jón. Sérstök heimild var veitt fjár- málaráðherra á fjáraukalögum fyrir árið 2005 til að ganga til samn- inga um byggingu og rekstur tón- listarhúss Reykjavíkur. Þetta tekur ríkisendurskoðandi fram eftir að hafa afhent fjárlaga- nefnd greinargerð og segir að umrædd heimild hafi ekki komið til umræðu á fundi hans með fjárlaga- nefnd. Formaður og varaformaður nefndarinnar telja að einungis Alþingi geti heimilað skuldbinding- ar um byggingu tónlistarhússins. Engu að síður telur ríkisendurskoð- andi að gera hefði átt grein fyrir fjárskuldbindingunum við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 2006 og telur að úr því þurfi að bæta. - jh Fjárlaganefnd fái aðgang að trúnaðarsamningi um byggingu tónlistarhúss: Fráleitt að fá ekkert að vita JÓN BJARNASON „Ég óskaði eftir því á fundi fjárlaganefndar að samningurinn um millj- arðastyrk til einkafélags yrði afhentur.“

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.