Fréttablaðið - 05.05.2006, Page 10
10 5. maí 2006 FÖSTUDAGUR
KOSNINGAR Tveir listar hafa kynnt
framboðslista sína í Garðabæ,
Sjálfstæðisflokkur og Bæjarlist-
inn. Sjálfstæðisflokkurinn hefur
setið í meirihluta í Garðabæ á
kjörtímabilinu, eins og öll önnur,
síðan flokkspólitískar kosningar
hófust í bænum. Samfylking og
Framsóknarflokkur hafa setið í
minnihluta á kjörtímabilinu og
bjóða nú saman ásamt óháðum
sem Bæjarlistinn. Að sögn Stein-
þórs, sem leiðir Bæjarlistann,
hefur það aldrei áður gerst að
minnihlutaflokkarnir sameinist á
þennan hátt. „Ástæðan fyrir þessu
er að minnihlutinn hefur unnið
mjög vel saman í nefndum og í
bæjarstjórn. Framboðið hefur
verið í undirbúningi frá því í des-
emeber 2004.“ Að sögn Steinþórs
hefur mestur styr staðið um skipu-
lagsmálin og þá helst varðandi
uppbyggingu miðbæjarins sem
Bæjarlistinn vill fara að klára.
Erling, oddviti D-lista, segir
mikið verk hafa verið unnið í
skipulagsmálunum og nýtt aðal-
skipulag fyrir allan bæinn liggi nú
fyrir. „Mjög fagmannlega var
staðið að því með víðtæku samráði
við íbúa bæjarins.“
Íbúaaukning í Garðabæ var 4,5
prósent á seinasta ári og mikil
ásókn í að flytja til bæjarins að
sögn Erlings. „Ástæða þess að
íbúðaverð er hátt er sú að það er
mikil eftirspurn.“ - sdg
Sjálfstæðisflokkur og Bæjarlisti bjóða fram í Garðabæ:
Tveggja flokka
barátta um völdin
Garðabær fékk kaupstaðarréttindi
1. janúar árið 1976 og voru íbúar þá
4.108. Garðabær er sjötta stærsta
sveitarfélag landsins með 9.423 íbúa
samkvæmt tölum Hagstofunnar frá 1.
desember árið 2005.
ÚRSLIT KOSNINGANNA 2002
Fjöldi íbúa á kjörskrá: 6.178
Fjöldi greiddra atkvæða: 5.033
(81,5%)
Fjöldi auðra og ógildra seðla: 127
Listi óháðra og framsóknarmanna í
Garðabæ (B)
1.307 atkv., 2 fulltr.
Listi Sjálfstæðisflokksins (D)
2.659 atkv., 4 fulltr.
Garðabæjarlistinn - Listi Bæjarmála-
félags Garðabæjar (S)
940 atkv., 1 fulltr.
Bæjarfulltrúar B-listans:
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur.
Sigurlaug Garðarsdóttir gjaldkeri
Bæjarfulltrúar D-listans:
Ásdís Halla Bragadóttir
framkvæmdastjóri
Erling Ásgeirsson
framkvæmdastjóri
Laufey Jóhannsdóttir
framkvæmdastjóri
Páll Hilmarsson framkvæmdastjóri
Bæjarfulltrúar S-listans
Sigurður Björgvinsson skólastjóri
KOSNINGAR 2006
D-listi Sjálfstæðisflokks
1. Erling Ásgeirsson, framkvæmdastjóri
og bæjarfulltrúi
2. Páll Hilmarsson, framkvæmdastjóri
og bæjarfulltrúi
3. Ragnhildur I. Guðbjartsd., flugfreyja.
4. Stefán Snær Konráðsson fram-
kvæmdastjóri
5. Sturla Þorsteinsson kennari
Bæjarlistinn, sameiginlegur listi
Samfylkingar, Framsóknarflokks
og óháðra
1. Steinþór Einarsson skrifstofustjóri
2. Sigrún Aspelund húsfreyja
3. Hjördís Eva Þórðardóttir
sálfræðinemi
4. Þorgeir Pálsson hagfræðingur
5. Bergþóra Sigmundsdóttir
lögfræðingur
Erling Ásgeirsson framkvæmda-
stjóri leiðir lista sjálfstæðismanna
í Garðabæ að þessu sinni en
hann var í öðru sæti listans síðast.
Allar götur frá því flokkspólitískar
kosningar hófust í bæjarfélaginu
hefur Sjálfstæðisflokkurinn verið í
meirihluta bæjarstjórnar.
Meðal helstu stefnumála
D-listans að þessu sinni að sögn
Erlings eru málefni fjölskyld-
unnar og þá sérstaklega eldri
bæjarbúa. „Við leggjum einnig áherslu á valfrelsi í skólum
og sjálfstæði þeirra,“ segir hann. Af öðrum forgangsmálum
listans nefnir hann traustan fjárhag bæjarins og umhverfis-
og skipulagsmál. „Við höfum unnið mikið í skipulagsmálum
á þessu kjörtímabili og má þar nefna nýtt aðalskipulag
fyrir allan bæinn.“ Hann segir mikla eftirspurn eftir búsetu í
Garðabæ og bendir á að íbúaaukning hafi verið 4,5 prósent
á síðasta ári samanborið við 1,5 prósenta landsmeðaltal.
„Útsvar hjá okkur er með því lægsta sem gerist og við erum
með lægstu fasteignagjöldin á höfuðborgarsvæðinu. Það
hefur verið hornsteinninn í stefnu D-listans að halda traust-
um fjárhag og álögum á íbúana í lágmarki,“ segir Erling.
Erling Ásgeirsson D-lista:
Traust fjármálastjórn
Steinþór Einarsson Bæjarlista:
Uppbygging miðbæjarins
Steinþór Einarsson skrifstofustjóri
er efsti maður á Bæjarlistanum,
sem er sameiginlegt framboð
Samfylkingar, Framsóknarflokks og
óháðra kjósenda, en þessir hópar
hafa ekki boðið fram sameiginlega
áður. „Minnihlutinn hefur unnið vel
saman í nefndum og í bæjarstjórn
þannig að þetta lá beinast við,“
segir Steinþór.
Helstu stefnumál Bæjarlist-
ans snúa að sögn Steinþórs að
skipulagsmálum, álögum og þjónustu. „Við viljum klára
uppbyggingu miðbæjarins þannig að hann þjóni sem best
hagsmunum íbúa, atvinnulífs og þjónustu.“
Lækkun þjónustugjalda er einnig á stefnuskránni og
segir Steinþór Garðabæ með ein hæstu þjónustugjöld af
stærri sveitarfélögum. „Einnig viljum við að bæjarfélagið
úthluti lóðum til yngra og eldra fólks til að sporna við brott-
flutningi þessara hópa.“ Hann segir Bæjarlistann enn fremur
vilja taka upp viðræður við ríkið um Hafnarfjarðarveginn.
„Umferðarþunginn þarna er gífurlegur og við viljum setja
veginn í stokk og tengja þannig Ásana og Sjálandshverfið
betur við sjálfan bæinn,“ segir Steinþór.
GARÐABÆR
Garðabær
SVEITARSTJÓRNAR-
KOSNINGAR
2006
GARÐABÆR íbúar Garðabæjar hafa um tvo skýra valkosti að velja í komandi kosningum.
Sjálfstæðisflokkur hefur stýrt bænum frá því flokkpólitískar kosningar hófust en minnihluta-
flokkarnir hafa nú sameinast í einu framboði.
MÆÐUR GEFA BRJÓST Nýtt heimsmet var
sett í Maníla á Filippseyjum í gær þegar
samtals 3.738 mæður komu saman og
gáfu börnum sínum brjóst. Tilgangurinn
var að hvetja mæður til brjóstagjafar. Nýja
metið sló út annað sem sett var árið 2002
í Kalíforníu í Bandaríkjunum, þar sem
1.130 mæður gáfu börnum sínum brjóst.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DANMÖRK Ekki er útlit fyrir að
danski herinn verði kallaður heim
frá Írak 1. júlí eins og stjórnar-
andstöðuflokkarnir hafa farið
fram á. Sagði Anders Fogh
Rasmussen forsætisráðherra í
viðtali við dönsku sjónvarpsstöð-
ina TV2 að ekki hefði verið tekin
ákvörðun innan ríkisstjórnarinnar
um málið. Lét hann þessi ummæli
falla í kjölfar frétta um að Danir
hygðust fækka í herliði sínu um
100 manns, en nú eru 500 danskir
hermenn í Írak.
Mogens Lykketoft, málsvari
Jafnaðarmannaflokksins í utan-
ríkismálum og fyrrum formaður
flokksins, sagði í ræðu sinni hinn
1. maí að flokkurinn myndi ekki
styðja áframhaldandi veru hers-
ins í Írak, en þingmenn flokksins
greiddu í byrjun árs atkvæði með
framlengingu á störfum hersins í
Írak til 1. júlí. Samkvæmt frétt
Politiken í gær er von á nýju frum-
varpi frá Per Stig Møller, utanrík-
isráðherra Dana, um málið hinn
18. maí. - ks
Anders Fogh Rasmussen segir ákvörðun ekki enn hafa verið tekna:
Danir líklega áfram í Írak
DANSKUR HERMAÐUR Í ÍRAK Óvissa ríkir um framhald veru danskra hermanna í Írak.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
DÓMSMÁL Karlmaður hefur verið
dæmdur í 45 daga skilorðsbundið
fangelsi fyrir fíkniefna- og
vopnalagabrot. Hann hefur alls
sjö sinnum áður komist í kast við
lögin.
Fann lögregla talsvert magn
kannabisefna og amfetamíns við
húsleit hjá manninum í lok árs
2004 og að auki skotvopn sem
hann hafði ekki leyfi fyrir. Hefur
maðurinn áður hlotið dóma vegna
þjófnaða og fíkniefnabrota en
þar sem hann játaði brot sín fús-
lega og sex ár voru liðin frá síð-
asta dómi ákvað dómari að skil-
orðsbinda dóminn. - aöe
Átta sinnum í kast við lögin:
Sakamaður
slapp á skilorði