Fréttablaðið - 05.05.2006, Side 24
5. maí 2006 FÖSTUDAGUR24
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 5.461 +2,31% Fjöldi viðskipta: 631
Velta: 18.612 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 60,00 +1,52% ... Alfesca
3,81 +0,53%... Atorka 5,80 +0,87% ... Bakkavör 49,20 +2,29% ...
Dagsbrún 5,30 +0,57% ... FL Group 18,20 +2,25% ... Flaga 3,98
+3,65% ... Glitnir 16,90 +1,20% ... KB banki 743,00 +3,48% ...
Kögun 74,00 +0,00% ... Landsbankinn 21,00 +1,94% ... Marel
70,70 +0,57% ... Mosaic Fashions 17,60 +1,15% ... Straumur-
Burðarás 16,70 +2,45% ... Össur 107,00 +0,47%
MESTA HÆKKUN
Flaga +3,65%
KB banki +3,48%
Bakkavör +2,50%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSPUNKTAR...
Ingólfur Helgason, forstjóri Kaup-
þings banka hf. á Íslandi, hefur
keypt 500.000 hluti í bankanum á
genginu 750 krónur á hlut. Á hann
eftir viðskiptin 3.300.075 hluti í
bankanum.
Glitnir banki hf. hefur lokið við kaup
á 50,1 prósenti hlutafjár í UNION
Group ASA í Noregi. Fjármálaeftir-
lit í Noregi og á Íslandi hafa veitt
Glitni banka formlegt samþykki fyrir
kaupunum.
Samkvæmt bráðabirgðatölum
Hagstofunnar var útflutningur í apríl
17,7 milljarðar króna en innflutning-
ur 27,4 milljarðar. Vöruskiptajöfn-
uður var því óhagstæður um 9,7
milljarða.
Stjórn bresku kráarkeðjunnar Mit-
chells & Butlers hefur hafnað yfir-
tökutilboði frá fjárfestingahópi
undir forystu Roberts Tchenguiz
upp á 550 pens á hvern hlut.
Stjórnin segir að boðið endur-
spegli ekki raunverulegt virði
pöbbakeðjunnar sem hefur vaxið
hvað hraðast innan geirans.
Boðið hljóðaði upp á 2,7 millj-
arða punda auk vaxtaberandi
skulda að upphæð 1,6 milljarða
punda en samanlagt gerir þetta
570 milljarða króna.
Að tilboði Tchenguiz koma
meðal annars KB banki, Apax
Partners, HBOS og Barclays Capi-
tal. KB banki og Tchenguiz hafa
starfað náið saman í fjárfestingum
og reka saman Laurel-kráarkeðj-
una.
Hlutabréf M&B féllu niður í 500
pens á markaði í Lundúnum í gær.
M&B rekur um tvö þúsund pöbba,
meðal annars þá sem reknir eru
undir merkjum O´Neill og Har-
vester.
- eþa
M&B segja lágt boðið
Stýrivextir óbreyttir í Evrópu
Bæði Seðlabanki Evrópu og Seðlabanki Bretlands
tilkynntu í gær að stýrivöxtum yrði haldið óbreyttum.
Stýrivextir á evrusvæðinu eru 2,5 prósent en þeir
voru síðast hækkaðir um 25 punkta í mars. Stýrivextir
í Bretlandi hafa hins vegar staðið óbreyttir í 4,5
prósentum síðastliðna níu mánuði.
Fréttaveitan Bloomberg segir frá því að
Jean-Claude Trichet, bankastjóri Seðla-
banka Evrópu, hafi gefið til kynna
á fundi stjórnar bankans að
vaxtahækkun sé ekki ólíkleg um
næstu mánaðamót. Hagvöxtur
á evrusvæðinu fari hratt vaxandi,
olíuverð sé í hæstu hæðum og
mikil eftirspurn eftir lánum sem
kyndi undir verðbólgu. Að sögn
breska ríkisútvarpsins fylgist breski
seðlabankinn jafnframt náið með
þróun heimsmarkaðsverðs á olíu.
Engar líkur eru hins vegar á öðru en að Seðla-
bankinn hér hækki stýrivexti á næsta vaxtaákvörðun-
ardegi, 18. þessa mánaðar.
Húsnæði hækkar víðar í verði en hér
Að sögn félags norskra fasteignasala hefur fasteigna-
verð hækkað nokkuð í Noregi á milli mánaða en verð
á húsnæði er 13 prósentum hærra nú en í apríl í
fyrra. Þá hefur fasteignaverð hækkað um heil 9
prósent það sem af er þessu ári.
Fasteignaverð hækkaði um 1,9 prósent á
milli mars og apríl, samkvæmt félaginu.
Sölusamningar voru hins vegar færri í apríl
en mars. Ástæðan er páskahelgin en þá
voru mörg fyrirtæki lokuð. Að sögn norska
dagblaðsins Aftenposten tók að meðaltali
23 daga að selja hverja fasteign í Noregi,
en það er heldur lengri tími en tekið hefur
að moka út íbúðum hér, að minnsta kosti á
höfuðborgarsvæðinu.
Peningaskápurinn...
Sjávarútvegsteymi Glitnis hefur
sent frá sér ítarlega skýrslu um
bandarískan sjávarútveg.
Megin niðurstöður eru þær að
vinsældir sjávarafurða í Banda-
ríkjunum fari mjög vaxandi en 88
prósent af neyslunni eru innflutt-
ar vörur. Innflutningur á sjávaraf-
urðum jókst um 66 prósent frá
1995 til ársins 2004.
Með aukinni stærð markaðar-
ins vex krafan um að fyrirtæki
innan iðnaðarins renni saman í
stærri og hagkvæmari einingar til
að geta veitt bandarísku stórversl-
anakeðjunum betri kjör og þjón-
ustu.
Mikill vöxtur er í einstökum
tegundum á borð við lax, rækju og
eldistegundina tilapia. Enn er
Alaska ufsinn vinsælasta tegund-
in á borðum bandarískra neyt-
enda. - eþa
Glitnir sér tækifæri í
Bandaríkjunum
HUMARVEIÐAR VIÐ AMERÍKU Í nýrri skýrslu
sem Glitnir vann um bandarískan sjávarút-
veg kemur fram að vinsældir sjávarafurða
fari þar vaxandi. NORDICPHOTOS/AFP
Krónan styrktist talsvert í gær
og endaði gengisvísitalan í 124,6
stigum sem var 2,50 prósenta
hækkun frá deginum áður. Krón-
an styrkist mest gagnvart jeni og
bandaríkjadal, sem kostaði rúma
71 krónu í dagslok.
Greiningardeild KB banka
telur að skýrsla um fjármála-
stöðugleika á Íslandi, sem kynnt
var í New York á miðvikudaginn,
hafi haft jákvæð áhrif á markað-
inn og fullvissað erlenda aðila að
neikvæð umræða um íslenskt
efnahagslíf hafi verið of hávær.
Úrvalsvísitalan hækkaði einn-
ig mikið eða um 2,31 prósent í
nærri nítján milljarða viðskipt-
um. Endaði Úrvalsvísitalan í
5.461 stigi eftir að hafa farið yfir
5.500 stig um tíma. Af stóru fyrir-
tækjunum hækkaði gengi KB
banka mest eða um 3,48 prósent,
Straumur-Burðarás um 2,45 pró-
sent og Bakkavör og FL Group
um tæp 2,3 prósent. Landsbank-
inn hækkaði um tæp tvö pró-
sent.
Mikill kaupáhugi var á skulda-
bréfamarkaði í gær og námu
heildarviðskipti með skuldabréf
ellefu milljörðum króna. Að mati
KB banka er vaxandi áhugi
erlendra fjárfesta fyrir íslensk-
um skuldabréfum, einkum verð-
tryggðum, eftir veikingu krón-
unnar að undanförnu og vegna
væntinga um mikla verðbólgu á
næstunni. - eþa
FJÖR Á INNLENDUM FJÁRMÁLAMARKAÐI
Úrvalsvísitalan hækkaði um 2,3 prósent í
gær á sama tíma og krónan styrktist mikið
og skuldabréf hækkuðu í verði.
Líf og fjör á öllum mörkuðum
Krónan styrkist talsvert, verðmæti hlutabréfa og skuldabréfa hækkaði.
Seðlabanki Íslands sendi
í gær frá sér skýrslu um
fjármálastöðugleika hér.
Davíð Oddsson seðla-
bankastjóri segist vilja
sjá meiri merki um að
viðskiptabankar dragi
úr útlánum og að staða
Íbúðalánasjóðs sé óvið-
unandi. Á heildina litið
segir bankinn stöðuna
þó góða.
Þjóðhagslegt ójafnvægi hefur auk-
ist frá því að Seðlabanki Íslands
gaf síðast út rit um fjármálastöð-
ugleika fyrir ári síðan. Bankinn
kynnti síðdegis í gær nýja úttekt á
fjármálastöðunni þar sem yfir-
skrift aðfararorða hennar
er „vandasöm sigling
framundan“.
Í fyrra var niðurstaða
greiningar bankans sú að
fjármálakerfið væri í meg-
inatriðum traust þrátt
fyrir mikla siglingu og það
þyrfti næstu árin að glíma
við ójafnvægi. Sú niður-
staða er óbreytt þótt horf-
ur séu nú í fyrsta sinn
síðan í nóvember 2001
sagðar neikvæðar. „En
boðarnir framundan eru
nú sýnilegri og meiri,“
sagði Davíð Oddsson, formaður
bankastjórnar Seðlabankans,
þegar hann kynnti skýrsluna.
Davíð segir að frá því í fyrra
hafi tvennt gerst, annars vegar
hafi aukist ójafnvægi í þjóðarbú-
skapnum og hins vegar orðið
umskipti í fjármögnun viðskipta-
bankanna. Þar koma meðal annars
til neikvæð umræða um íslenska
hagkerfið og fleiri hlutir. Þá geta
sveiflur í gengi krónunnar í kjöl-
far mikils viðskiptahalla og verð-
lækkun eigna haft töluverð áhrif á
skuldsett heimili og fyrirtæki, auk
rekstrarskilyrða fjármála-
fyrirtækja. „Gengislækk-
unin kom bæði fyrr og
hraðar en vonast var til,“
segir Davíð en bætir við
að til lengri tíma sé hún þó
holl, enda hafi gengið
verið orðið töluvert hærra
en samrýmst hafi getað
jafnvægi í þjóðarbúskapn-
um. „Viðbrögð við breytt-
um aðstæðum eru þegar
hafin og mikilvægt að þétt
sé haldið um stjórnvölinn
og gætt fyllstu varfærni,“
segir Davíð og áréttar að á
umbrotatímum sé ávallt áhætta
fyrir hendi, en hlutverk skýrsl-
unnar sé að meta getu fjármála-
kerfisins til að mæta hugsanlegu
áfalli. Hann segir breyttar aðstæð-
ur krefjast þess að bankarnir hægi
á vextinum, enda bendi allt til að
aðgengi þeirra að fjármagni og
kjör verði ekki eins hagstæð og
verið hafa. „Bankarnir hafa sagt
við okkur að þeir séu byrjaðir að
draga úr útlánum en við sjáum það
ekki með skýrum hætti enn,“ segir
hann en áréttar um leið að Seðla-
bankinn treysti þó fyllilega orðum
bankanna um að málið sé á réttri
leið, en vari um leið við því að við
þessar aðstæður sé viðbúið að
útlánatap þeirra eigi eftir að auk-
ast. „En við vildum gjarnan sjá
skýrari merki um að menn hefðu
dregið úr lánum.“
Davíð segir að staða Íbúðalána-
sjóðs sé óviðunandi og brýnt að
koma á boðuðum breytingum á
rekstri hans. Hann segur skilning
bankans vera þann að ný lög um
sjóðinn eigi að liggja fyrir um
næstu áramót. „Og seinna má það
ekki vera,“ bætir hann við, en
tekur ekki afstöðu til þess hvaða
rekstrarform skuli taka við. „Meg-
inatriðið er að ekki er hægt að
vera með sérstakan sjóð með rík-
isábyrgð í samkeppni við bank-
ana.“
Sömuleiðis sagði Davíð Seðla-
bankann ekki hafa tekið afstöðu
til þess hvort rétt væri að sameina
Fjármálaeftirlitið bankanum, en
benti á að báðar stofnanir væru til-
tölulega litlar með tilliti til manna-
forráða og að þróunin hefði víða
frekar verið í þá átt að sameina
slíkar stofnanir.
olikr@frettabladid.is
TRYGGVI PÁLSSON
Framkvæmdastjóri
fjármálasviðs Seðla-
bankans hafði yfir-
umsjón með nýrri
skýrslu bankans.
BANKASTJÓRN SEÐLABANKANS Jón Sigurðsson, Eiríkur Guðnason og Davíð Oddsson
seðlabankastjórar við upphaf kynningarfundar bankans á skýrslu um fjármálastöðugleik-
ann. Bankinn er bjartsýnn á stöðugleika fjármálakerfisins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Seðlabankinn segir vanda-
sama siglingu framundan