Fréttablaðið - 05.05.2006, Page 34
5. maí 2006 FÖSTUDAGUR
Gunnar Lárus Hjálmarsson
tónlistarmaður hugsar ekki
mikið um sparnað en ekur þó
um á sparneytnum bíl og kaup-
ir ekki í matinn hvar sem er.
Gunnar segist almennt ekki hugsa
mikið um sparnað. „Ég er mjög
vond fyrirmynd í fjármálum og
djúpt sokkinn í „þetta reddast“
lífsstílinn,“ segir hann.
Gunnar viðurkennir þó að hann
sé svolítið meðvitaður um verðlag
í matvöruverslunum. „Ég versla
helst ekki í einhverjum svona pip-
arsveinabúðum þar sem ekkert er
selt nema tilbúinn pakkamatur á
uppsprengdu verði,“ segir hann.
Gunnar segir að það komi líka
fyrir að hann taki plastpoka með
sér út í búð. „Miðað við hvað ég
hugsa lítið um sparnað að öðru
leyti þá er það svolítið að hirða
aurinn og kasta krónunni,“ segir
hann og hlær. „Ég hef líka stund-
um verið að gæla við þá hugmynd
að fara með fjölskylduna í súper-
markaði á föstudögum til að
sleppa við að elda því þá er svo
mikið af fríum mat á kynningum
en það hefur ekki orðið af því
ennþá.“
Gunnar telur að mesti sparnað-
urinn hjá honum felist í því hvað
bíllinn hans eyðir litlu bensíni.
„Ég er á sparneytnasta bíl á land-
inu, samkvæmt nýjustu upplýs-
ingum, sem er Toyota Aigo. Hann
eyðir að sögn fjórum komma níu
lítrum á hundraðið svo ég ætti að
spara eitthvað á því.“
Gunnari fylgist vel með því sem
er að gerast í menningarlífinu á
Íslandi en það getur verið dýrt að
fara á allt sem er í boði. „Stundum
er ókeypis inn í listasöfn og svoleið-
is á ákveðnum dögum og ég reyni
svolítið að elta það,“ segir hann.
Gunnar segist ekki muna eftir
því að hafa einhvern tímann gert
sérstaklega góð kaup. „Ég man
bara eftir því að hafa gert ótrú-
lega vond kaup. Ég og konan mín
fórum til dæmis í brúðkaupsferð
til Bandaríkjanna þegar dollarinn
var hundrað og tíkall en gengið
virðist alltaf vera óhagstætt þegar
ég fer til útlanda.“
emilia@frettabladid.is
Tekur plastpoka með sér
í matvöruverslunina
Dr. Gunni er ánægður með bílinn sinn, sem hann segir að eyði ekki miklu bensíni.
��������������������������������
����������������������������������
�������������
������
�������������������
Útsölustaðir: Fótaaðgerðastofurnar og Snyrtistofurnar Eygló, Paradís, Líf, Jóna og Aníta Vestmannaeyjum.
Spar Þín Verslun Kópavogi og Fjarðarkaup Hafnarfirði.
NÝTT
Fáðu fæturnar mjúkar
og fínar á aðeins
2 vikum með nýja
Skómarkaðurinn
Vorum að taka upp mikið
af nýjum vörum
T.d. Sanilet sandalar margir litir, Flott dömustígvel
og skór Flottir sumarskór á börnin, Herraskór í
úrvali Sumarsandalar á alla fjölskylduna
ATH. 50-80% afsláttur
Skómarkaðurinn
Skæði og Valmiki
Skúlagötu 61 (Í húsnæði Stálhúsa)
Sími 693 0996
Opið virka daga 11-18 Laugardaga 12-17
Evíta
Hárgreiðsla og gjafavörur
Starmýri 2, 108 Rvík, s. 553-1900 www.evita.is
Stærri búð, full af
fallegum vörum
á betra verði
Hárþjónusta á frábæru verði,
gerið svo vel að panta tíma. 550 5000
AUGLÝSINGASÍMI