Fréttablaðið - 05.05.2006, Page 53

Fréttablaðið - 05.05.2006, Page 53
FÖSTUDAGUR 5. maí 2006 29 Hugur minn reikar oft til löngu liðinna ára þegar það þótti allt í lagi að hafa skoðanir á öllum hlut- um. Þeir sem stóðu upp úr létu sér ekki nægja að fá einn sjónar- hól málefnis heldur vildu fá hann jafn langt til vinstri og hægri og mögulegt var. „Hann er áskrif- andi að Þjóðviljanum“ heyrðist hvíslað „og líka Morgunblaðinu og Tímanum. Hverslags maður er þetta eiginlega?“ Pólitísk umræða yfir matarborðinu, í vinnunni, við vini sína, er að verða deyjandi íþrótt, frelsið til að tjá hug sinn á heilbrigðan hátt er að hverfa í lognmollu og ládeyðu þess sem enginn skilur. „Hvað fæ ég fyrir minn snúð?“ heyrist spurt. Í dag er það kúgunin og lág- kúran sem ræður ríkjum. „Ekki tjá þig, þá gætirðu misst vinn- una,“ er tönnlast á, hugsunin nógu stutt og hagsmunatengd og á hraðbergi viðvörunin: „Þú getur sjálfum þér um kennt að vera að gaspra þetta. Þú ert nú meira flónið.“ Þessi þróun í okkar samfélagi er ekki jákvæð, jafnvægi í skoð- unum vantar, gagnrýni í hugsun, lestur margra sjónarmiða ekki á boðstólum og stærstu eða næst stærstu stjórnmálaöfl samfélags- ins, til samans, standa ekki í blaðaútgáfu í dag. Hér er ég að tala um Samfylkinguna og Fram- sóknarflokkinn og líka Vinstri- Græna. Ekki batnar það þegar stjórnmálaflokkarnir fara að leita uppi vinsældarmálefnin til að trekkja að kjósendur, horfa í aðra átt ef málefnið er lítið eða snertir dreggjar samfélagsins, hratið, úrkastið sem gæti þó verið ég eða þú. Góðfúslega viðurkenni að það er dálítið hart að setja þetta svona fram en hér kemur „góð spurn- ing“ eins og unga fólkið myndi segja: Nú er vitað að drykkja á áfengum miði hefur aukist um 300% á undanförnum árum og hvaða flokkur, stjórnmálaafl, ætlar að frábiðja sér allt brenni- vínssull í kringum þessar kosn- ingarnar, nú og eftirleiðis? Ég les stórar auglýsingar í blöðum, annan hvern dag, um áhyggjur af velferð þegnanna, forvarnarátak í einu og öðru en sé hvergi minnst á þetta mikilvæga fyrsta skref. Og svo má líka spyrja hvenær við ætlum að gera brennivíninu, drykkjunni, jafn lágt undir höfði og reykingunum og biðja þá unn- endur vinsamlegast að halda sig utandyra við iðju sína rétt eins og fólkinu er gert með smávindling- ana, í veislum, samkomum, hjá hinu opinbera og á matsölu- og vínveitingarstöðum almennt. Nei, þessi ávani er of útbreiddur og tilmælin ekki nógu vinsæl fyrir væntanlegar borgar- og bæjar- stjórnarkosningar. Hvergi er þó efast um skaðsemi reykinga og drykkju á heilsu okkar. En bölvaldurinn brennivínið nær þó sínu lengra í skaðsemi sinni, sljóvgar siðferðiskenndina, ýtir undir öfga og ofbeldi jafn gagnvart börnum sem fullorðn- um og svo má áfram telja. En svona er nú margt skrýtið í okkar veröld. Reykingarnar fyrst og svo kannski vínið á eftir. Höfundur er í framboði fyrir Reykjanesbæjarlistann. Bölvaldur samfélagsins UMRÆÐAN ÁFENGI KONRÁÐ K. BJÖRGÚLFSSON RITHÖFUNDUR Fyrir nokkrum árum efndi núverandi meirihuti borg- arstjórnar til atkvæða- greiðslu um hvort Reykja- víkurflugvöll- ur ætti að vera kyrr eða víkja. Síðan þegar niðurstöður lágu fyrir var haft á orði að þær væru aðeins leið- beinandi. Ég hef alla tíð fylgst með umræðum um flugvöllinn og sitt sýnist hverjum um hvar hann sé best geymdur. Allir segjast hafa rétt fyrir sér í þeim efnum. Það er víst óhagganleg staðreynd að núverandi flugvallarstæði í Vatns- mýrinni er eitt það besta sem völ er á í borgarlandinu. En er það nú svo? Ég hef átt tal af nokkrum mönn- um sem fullyrða að Álftanesið sé allra best kjörið sem staður fyrir innanlandsflugvöll höfuðborgarbúa og þeirra, sem þangað vilja leita. Ég hef engan einasta mann heyrt afneita þessari fullyrðingu. Þar er veðurfar langhagstæðast og land- kostir hentugastir. Sá sem fullyrðir þetta hvað mest er góður vinur minn aldraður, sem hvorki hefur neytt áfengis eða tóbaks þrátt fyrir einhvern vilja, en honum flökrar við þessum vímugjöfum og hann er með afbrigðum rökfastur. Nú er það svo að landrými er mikið á Álftanesinu. En þar hefur mikið verið byggt síðustu árin og þar er aðsetur forseta lýðveldisins. Þar eru engin húsdýr lengur og þar eru ekki beljurnar leiddar undir naut lengur. Nú vill svo til að banda- ríski herinn er að hverfa af Miðnes- heiðinni og skilur eftir sig tóm. Þar sem sú staðreynd virðist ljós að Álftanesið sé besti staður fyrir inn- anlandsflugvöll, þá ætti að leggja fram áætlun um að rýma nesið. Fólkið sem þar býr gæti fengið við- legubúðir í yfirgefnum byggingum hersins á Keflavíkurflugvelli. Landið þar sem Reykjavíkurflug- völlur er nú ætti að láta Álftaness- búa hafa og þannig væri byggðin þétt verulega í höfuðborginni. Á þessu ári eru 295 ár frá fæð- ingu Skúla Magnússonar landfóg- eta, sem reysti myndarlegt stór- hýsi í Viðey. Í Viðey er nú þegar fyrirtaks aðsetur fyrir forseta vorn og hugsanlega ríkisstjórn. Þar hefur hámenning íslensk risið hvað hæst. Í Viðey var starfrækt klaust- ur og prentsmiðja og mikil útgerð, svo að menningin drýpur af hverju strái. Bessastaðir eru því miður tákn danskrar kúgunar og yfir- gangs tilmargra alda. Vonandi næst fullkomin sátt um þessa laus. Það yrði öllum landslýð til góðs og myndi upphafja embætti forseta vors til mikillar virðingar. Slíkan flugvöll, Álftavöll, ætti að taka í notkun 2011. Aðsetur for- seta lýðveldisins yrði um leið flutt til Viðeyjar. Það væri verðugt að sýna 300 ára minningu Skúla Magn- ússonar landfógeta virðingu með þessum hætti. Flugvöll- inn burt GÍSLI HELGASON FORMAÐUR BLINDRAFÉLAGSINS

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.