Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.05.2006, Qupperneq 62

Fréttablaðið - 05.05.2006, Qupperneq 62
 5. maí 2006 FÖSTUDAGUR38 Stuttverkahátíðin Margt smátt, sem nú verður haldin í þriðja sinn, er samstarfsverkefni Borgarleik- hússins og Bandalags íslenskra leikfélaga. Vilborg Árný Valgarðs- dóttir, framkvæmdastjóri Banda- lagsins, segir Borgarleikhúsið hafa átt frumkvæði að hátíðinni en markmiðið frá upphafi var að vekja athygli á því góða starfi sem unnið er í íslensku áhugaleikhús- hreyfingunni í ritun og flutningi styttri leikverka en mörg félög innan hennar hafa lagt sérstaka rækt við þetta leikhúsform. Hátíðin er nú haldin í þriðja sinn en í fyrsta skipti að vori. „Enda þótt sýningar hafi verið ágætlega sóttar afréðum við að kanna hvort aðsóknin yrði enn meiri að vori en hausti,“ segir Vil- borg. Átta aðildarfélög í Bandalagi íslenskra leikfélaga taka þátt í hátíðinni en þrettán stuttverk, sem langflest eru samin af leikskáldum innan raða þess, verða flutt á Litla sviði Borgarleikhússins í kvöld. „Flest félögin semja, leikstýra og flytja verkin sjálf en hvert stuttverkanna er um fimmtán mínútur að lengd. Fólk á öllum aldri sækir oftast sýningarnar en hafa ber í huga að aðeins er um eina sýningu að ræða.“ Nánari upplýsingar um Stuttverkahátíðina er að finna á vefsetri Bandalags íslenskra leikfélaga og Borgarleikhússins. ■ ÚR LEIKRITINU HANNYRÐIR EFTIR SIGURÐ H. PÁLSSON Stuttverk úr öllum áttum sýna grósku í íslenskri leikritun. Margt smátt gerir eitt stórt Eldri félagar í Karlakór Reykjavík- ur halda árlega lokatónleika í Digraneskirkju á sunnudaginn. Kórinn er skipaður liðlega fimmtíu félögum úr Karlakór Reykjavíkur sem að sögn Kjartans Sigurjóns- sonar kórstjóra hafa viljað minnka aðeins við sig en halda þó ótrauðir áfram að syngja. Á efnisskrá tón- leikanna eru íslensk og erlend söng- lög sem kórinn hefur flutt í gegn- um árin. „Karlakór Reykjavíkur fagnar 80 ára starfsafmæli á þessu ári en kór eldri félaganna 40 ára afmæli,“ segir Kjartan og útskýrir að mörg laganna séu kórfélögunum hjartfólgin og hafi fylgt þeim lengi. „Við bjuggum til dæmis til spyrpu úr lögum sem Kvartettinn Leik- bræður sungu hér í eina tíð en svo vill til að báðir eftirlifandi Leik- bræðurnir, Friðjón Þórðarson og Ástvaldur Magnússon, syngja ein- mitt með okkur í kórnum.“ Einsöngvari á tónleikunum verð- ur Óskar Pétursson tenór og með- leikari Bjarni Þór Jónatansson. Það stendur til að gefa út hljómdisk með kórnum í tilefni af afmælisárinu og munu kórfélag- arnir taka upp þráðinn við hljóðrit- anir í haust. Tónleikarnir í Digra- neskirkju hefjast kl. 17.00. - khh Gamalkunnir tónar ELDRI FÉLAGAR Í KARLAKÓR REYKJAVÍKUR Flytja hjartfólgin íslensk og erlend lög í Digra- neskirkju á sunnudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI Útskriftartónleikar Gróu Mar- grétar Valdimarsdóttur fiðluleik- ara fara fram í Salnum í kvöld kl. 20. Gróa Margrét hefur spilað með ýmsum sinfóníuhljómsveitum og má þar nefna Orkester Norden, Hljómsveit Tónlistarskólans í Reykjavík, Hljómsveit Óperustúd- íós Austurlands og Sinfóníuhljóm- sveit unga fólksins en hún hefur verið konsertmeistari í þremur síðastnefndu sveitunum. Á efnisskrá tónleikanna verða verk eftir Bach, Jón Nordal, Brahms, Pablo de Sarasate og Eugène Ysaÿe en meðleikarar eru Árni Heimir Ingólfsson og Richard Simm. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. - khh Fiðlutónar í Salnum GRÓA MARGRÉT VALDIMARSDÓTTIR FIÐLU- LEIKARI Útskrifast frá tónlistardeild LHÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/ STEFÁN HVAÐ? HVENÆR? HVAR? MAÍ 2 3 4 5 6 7 8 Föstudagur ■ ■ TÓNLEIKAR  16.00 Kvintett Egils Benedikts Hreinssonar leikur á vegum Jazzakademíunnar, jazzklúbbs Háskóla Íslands. Aðgangur ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir.  17.00 Hljómsveitin Hate Breath heldur tónleika í 12 Tónum á Skólavörðustíg 15. Léttar veitingar í boði.  20.00 Guðbjörg Sandholt heldur útskriftartónleika í Íslensku óperunni. Guðbjörg útskrifast úr söngdeild Tónlistarskólans í Reykjavík.  20.00 Gróa Margrét Valdimars- dóttir fiðluleikari heldur útskriftar- tónleika í Salnum í Kópavogi. Meðleikarar eru Árni Heimir Ingólfsson og Richard Simm. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.  22.30 Skátar, Mongoose og Bobby Breiðholt halda föstu- dagspartý á vegum Grandmother Records á Grand Rokk. ■ ■ OPNANIR  15.00 Nemendur í Fjölmennt, fullorðinsfræðslu fatlaðra, opna ljósmyndasýningu í Hafnarborg. Sýningarstjóri er Gréta Guðjónsdóttir ljósmyndari.  17.00 Þrettán myndlistarnemar úr Garðabæ opna málverkasýningu í húsnæði Bókasafns Garðabæjar. Sýningin verður opin til 26. maí. ■ ■ SKEMMTANIR  22.00 Danshljómsveit Friðjóns leikur fyrir dansi í Vélsmiðjunni á Akureyri. Húsið opnar kl. 22.  Hljómsveit Geira Sæm og Tryggva Hubner verða með dansleik á Kringlukránni. ■ ■ SÍÐUSTU FORVÖÐ  Sýningu Þorvaldar Þorsteinssonar á Café Karolínu lýkur í dag. Þorvaldur sýnir ljósmyndaröð sem birta sýnishorn af markaðssetningu og landkynningu Íslands á uppboðs- vefnum eBay. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síðar en sólarhring fyrir birtingu. ��������������������������������� ����������������������������������������������������� �� ����������������������������������������� ���������� ������������������������������ ������������ �������������� �� ����������� ���������������� ��� ��������������������� ������ ��������� ��� �������� ��������������� �������������� �������������������������������������������������� ������������������ ������� ���������� ����������� �������������� ������ ������������� ��������� ��� ������� ��������������� ��������� ��� �������� ��������� ��������� ��� �������� ���������� ���������� ��� �������� ��������������� ����������������������������������� �������� ��������������� ������������������� Hljómsveit Geira Sæm og Tryggvi Hubner með dansleik um helgina Stór og fjölbeittur sérréttaseðill ásamt tilboðsseðli öll kvöld.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.