Fréttablaðið - 05.05.2006, Síða 64

Fréttablaðið - 05.05.2006, Síða 64
 5. maí 2006 FÖSTUDAGUR40 tonlist@frettabladid.is > Plata vikunnar Ghostface Killah: Fishscale „Ghostface Killah er í fantaformi og fimmta sólóplatan hans gæti vel verið hans besta til þessa. Fyrsta flokks austurstrandar-hip- hop.“ BÖS Í SPILARANUM HJÁ RITSTJÓRNINNI Jet Black Joe: Full Circle, Lára Rúnarsdóttir: Þögn, Gnarls Barkley: St. Elsewhere, The Streets: The Hardest Way to Make an Easy Living, Eurovision: Song Contest Athens 2006 og Echo and the Bunn- ymen: Siberia. Mammút: Mammút „Fyrsta plata Mammúts hefur að geyma fjölmörg ljúfsár en kraftmikil gítarrokklög og með frekari hljóðversvinnu getur hljómsveitin aðeins orðið enn betri.“ SHA Morrissey: Ringleader of the Tormentos „Morrissey fylgir bestu plötu sinni til þessa eftir með annarri ágætis plötu. Kappinn er fullur af sjálfsöryggi þessa dagana, og virðist njóta þess að vera til... en er samt auðvitað ennþá á bláu nótunum.“ BÖS The Vines: Vision Valley „Þriðja breiðskífa The Vines, og þeirra fyrsta sem tríó, er hin sæmilegasta plata. Öllu meira um ballöður en áður og Bítlaáhrifin leyna sér ekki.“ BÖS The Streets: The Hardest Way to Make an Easy Living „Þriðja breiðskífa The Streets er hrein og klár vonbrigði. Fljótfærnisleg útgáfa frá listamanni sem hefði frekar átt að bíða þangað til að hann hafði upp á eitthvað áþreifanlegt að bjóða, eins og góð lög og texta.“ BÖS The Flaming Lips: At War With the Mystics „Enn önnur frábær plata frá The Flaming Lips. Þó þessir menn þrammi sinn stíg ekki varlega virðast þeir ekki geta misstigið sig. Álíka súr og síðasta plata með nokkrum popplögum á milli.“ BÖS Graham Coxon: Love Travels at Illegal Speeds „Sjötta breiðskífa Coxon er hrá pönkuð og keyrð áfram með sóðalegum gítarstefjum. Hljómar eins og tilraun til að komast aftur inn í bílskúrinn.“ BÖS Ghostigital: In Cod We Trust „Platan sannar sérvisku og snilligáfu Ghostigital með dansvænum og taktföstum hip-hop tökt- um sem blandast við (ó)hljóð í skreytistíl.“ SHA Yeah Yeah Yeahs: Show Your Bones „Önnur breiðskífa Yeah Yeah Yeahs gerir allt sem hún á að gera. Stenst allar væntingar og á bara eftir að auka hróður sveitarinnar.“ BÖS SMS UM NÝJUSTU PLÖTURNAR Andy Rourke, fyrrum bassaleikari bresku hljóm- sveitarinnar The Smiths, verður plötusnúður á Manchester-tónleikunum í Laugardalshöll annað kvöld auk þess sem hann mun troða upp á Nasa ásamt Óla Palla. Freyr Bjarnason átti gott spjall við Rourke í heimaborg hans Manchester. Á Knott Bar við Castle Street í Manchester sat Andy Rourke, bassaleikarinn goðsagnarkenndi úr The Smiths, sötrandi stóran bjór ásamt góðvini sínum Mani [Gary Mounfield], fyrrum bassa- leikara The Stone Roses, annarri merkri Manchester-sveit, og núverandi bassaleikara Primal Scream. Eftir að hafa tekið vel á móti blaðamanni færði hinn hressi Mani sig yfir á næsta borð til að rýma til vegna viðtalsins og eftir sat Andy, sem skartaði ekta Manchester-hárgreiðslu í anda félaga sinna frá Manchester, þeirra Liam Gallagher og Ian Brown, fyrrum söngvara The Stone Roses. Byrjaði fyrir slysni Andy Rourke segist hafa byrjað að spila sem plötusnúður fyrir um það bil fimm árum. „Þetta byrjaði eiginlega fyrir slysni. Vinur minn, sem spilaði áður með Inspiral Carpets, fékk mig til að vera plötusnúður á klúbbi í Manchester. Hann sagði að ég þyrfti ekki að mixa eða neitt svoleiðis heldur spila bara plöturnar sem ég fíla. Eftir það fór síminn að hringja og ég fékk mér umboðsmann og síðan annan umboðsmann og það hefur verið nóg að gera. Ég var að koma heim út þriggja vikna ferð um Banda- ríkin,“ segir Andy og virkar bæði sjálfsöruggur og afslappaður í návígi. Framsæknasta hljómsveit Bret- lands The Smiths eru eitt af stóru nöfn- unum í sögu breska poppsins með söngvarann Morrissey fremstan í flokki. Starfstími hennar var ekki langur, eða frá 1982 til 1987, en áhrifa hennar átti eftir að gæta víða í tónlist breskra sveita á borð við The Stone Roses, Radiohead, Blur, Suede, Oasis, The Libertines og Doves. The Smiths gaf út fjórar hljóð- versplötur á ferli sínum, þar á meðal hina öflugu The Queen is Dead, þar sem Andy fékk mikið hrós fyrir bassaleik sinn. Á meðal þekktustu laga sveitarinnar eru Girlfriend in a Coma, Heaven Knows I´m Miserable Now, Big- mouth Strikes Again og The Boy With the Thorn in His Side. Áður en Andy gekk til liðs við The Smiths hafði hann spilað á gítar og bassa í ýmsum rokk- sveitum, þar á meðal fönksveit- inni Freak Party, oftast með skólafélaga sínum Johnny Marr í för. Þegar Johnny og Morrissey stofnuðu The Smiths gekk Rourke fljótlega til liðs við sveit- ina og var fastur meðlimur allt til endaloka. Reyndar var hann rekinn úr sveitinni í skamma hríð vegna ofneyslu eiturlyfja og þurfti m.a. að dúsa í fangelsi í eina viku. Sjö ára hringrás Eftir að The Smiths lögðu upp laupana spilaði Rourke á plötu Sinéad O´Connor, I Do Not Want What I Haven´t Got, auk þess sem hann spilaði eitthvað með Mor- risey á sólóferli hans. Einnig hefur Rourke tekið upp og spilað með The Pretenders, Killing Joke, Badly Drawn Boy, Aziz Ibrahim [fyrrum meðlimi The Stone Roses], og Bonehead, fyrr- um gítarleikara Oasis. Mikið hefur verið talað um Manchester-senuna í gegnum árin, enda hefur borgin getið af sér stór nöfn á borð við Joy Division, New Order, The Smiths, The Stone Roses, Oasis, James, Elbow og Badly Drawn Boy. Andy segir ýmislegt vera að krauma undir í dag en enn sem komið er sé senan í töluverðri lægð. „Ég held að það hafi verið Tony Wilson [sem kvikmyndin 24 Hour Party People fjallaði að miklu leyti um] sem sagði að senan færi í sjö ára hringrás; að eftir sjö ár kæmu stór nöfn fram. Það hlýtur því að fara að koma að því,“ segir hann og glottir. „Það er allavega kominn tími á það.“ Minnist hann á hljómsveitina Nine Black Alps sem eina þá efni- legustu um þessar mundir. Enginn rígur í Manchester Andy segir að andrúmsloftið í Manchester, þegar The Smiths var uppi, hafi verið skemmtilegt. „Við spiluðum á tónlistarhátíð með New Order, The Buzzocks og öllum stóru nöfnunum og það var frábært man ég eftir. Það var aldrei rígur á milli Manchester- bandanna og allir mjög vingjarn- legir hver við annan. Á þessum tíma voru bara nokkur æfingar- herbergi í borginni þar sem sveitirnar gátu æft og því voru allir að hitta alla og góður vin- skapur myndaðist. Þannig verð- ur það líklega alltaf, en í London er til dæmis miklu meiri rígur í gangi. Hér í Manchester er miklu afslappaðri stemning í gangi og hljómsveitirnar fara saman á djammið og skemmta sér vel saman,“ segir hann. Meira lýðræði í Freebass Andy stofnaði nýverið hljóm- sveitina Freebass ásamt vini sínum Mani og Peter Hook úr New Order. „Þetta er svona Spin- al Tap-dæmi,“ segir Andy. „Við erum þrír bassaleikarar en ég spila á gítar í þetta sinn. Við Mani áttum í dálitlum erfiðleikum með að finna söngvara í sveitina enda vanir góðum mönnum á borð við Morrissey og Ian Brown. Ég held að við höfum fundið einn núna sem lítur ágætlega út og hljómar líka ágætlega. Við höfum samið 18 lög og vonandi gerum við eitt- hvað saman á næstu mánuðum,“ segir hann. „Það er miklu meira lýðræði í þessari sveit heldur en í The Smiths þar sem ég fékk bara smá bita af kökunni en Morrisey risa- stóran. Ég held að það sé út af þessu að sveitir eins og U2 halda velli. Þær skipta öllu jafnt á milli sín en þegar söngvararnir eða þeir sem semja lögin vilja eiga allan heiðurinn af velgengninni held ég að þá fari að halla undan fæti.“ Andy er einnig að hasla sér völl í útvarpinu og hóf nýverið störf á útvarpsstöðinni XFM í Manchester þar sem hann verð- ur með þátt á hverju föstudags- kvöldi. Er hann spenntur fyrir verkefninu og segir það eðilegt framhald af því að vera plötu- snúður. Stanley Clarke í uppáhaldi Fjölmargir hafa haft áhrif á bas- saleik Andy í gegnum tíðina. Fyrst nefnir hann hljómsveitina Echo and the Bunnymen þegar hún var að byrja sinn feril, en sú sveit spilar einmitt í Höllinni annað kvöld ásamt Andy, Badly Drawn Boy, Elbow, Trabant, For- eign Monkeys og Benna Hemm Hemm. „Ég hlustaði líka mikið á gamla tónlist þar sem bassaleik- arinn var mikið notaður. Ég hlustaði mikið á Stanley Clarke og Motown-tónlist. Þegar þú eld- ist áttarðu þig á því að minna er meira. Það skiptir meira máli hvað þú spilar ekki heldur en hvað þú spilar. Ég held að stíllinn sem ég noti núna sé óþekkjanleg- ur frá því að ég var í The Smiths. Ég er samt mjög stoltur af því efni sem við gerðum og horfi stundum til baka og hugsa: Hvað- an kom þetta eiginlega? Ég held að ég hafi verið andsetinn eða eitthvað,“ segir hann og hlær. Framtíðarupptökustjóri Hvað varðar framtíðaráform segist Andy ætla að halda áfram sem plötusnúður auk þess sem hann hefur trú á að Freebass geti gert fína hluti. Hann segist einnig vel geta hugsað sér að gerast upptöku- stjóri og reyna um leið að koma öðrum sveitum á framfæri. Að auki var hann einn af helstu hvatamönnum tónleika sem voru haldnir í Manchester fyrr á árinu. Þar komu margir af þekkt- ustu listamönnum Manchester- borgar á góðgerðartónleikum fyrir bættum krabbameinsrann- sóknum. Stefnir Andy að því að halda tónleikana á hverju ári í framtíðinni og láta þannig gott af sér leiða til styrktar mætu mál- efni. Allir eru vinir í Manchester ANDY ROURKE Andy Rourke er fyrrverandi liðsmaður The Smiths. Hann verður plötusnúður í Laugardalshöll annað kvöld og á Nasa síðar um kvöldið. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA 1. TOOLVICARIOUS 2. PEARL JAMWORLD WIDE SUICIDE 3. THE EDITORSALL SPARKS 4. RED HOT CHILI PEPPERSDANI CALIFORNIA 5. CHARLATANSBLACKEND BLUE EYES 6. THE VINESDON´T LISTEN TO THE RADIO 7. RICHARD ASHCROFTMUSIC IS POWER 8. WULFGANGMACHINERY 9. DIKTALOSING EVERY DAY 10. FOO FIGHTERSNO WAY BACK X-DÓMÍNÓSLISTINN TOPP TÍU LISTI X-FM TOOL Hljómsveitin Tool er á toppi X-Dóm- ínóslistans með lagið Vicarious af sinni nýjustu plötu. Hljómsveitin CocoRosie, með bandarísku systrunum Sierra og Bianca Casady innanborðs, heldur tónleika á Nasa þann 17. maí. Sveitin, sem hefur gefið út tvær plötur sem hafa fengið mjög góða dóma, er þekkt fyrir að nota ýmis hljóð í tónlist sinni, þar á meðal dýrahljóð og leikföng. Tvö stór tjöld verða sett upp á tónleikunum og því má búast við miklu sjónarspili. Í stuttu spjalli við Fréttablaðið sögðust þær hlakka mikið til tónleikanna á Íslandi og vita ekkert við hverju þær eigi að búast. Þær hafa verið á tónleikaferð um Bandaríkin, Evrópu og Ástralíu að undanförnu en brátt spila þær í Japan, Brasilíu, Kína. CocoRosie var stofnuð árið 2003 og hafa vinsæld- ir sveitarinnar farið stöðugt vaxandi. „Við vorum bara að gera okkar hluti og allt í einu áttum við fullt af lögum sem við bjuggumst ekki við að nokkur myndi heyra eða myndi hafa áhuga á að heyra,“ segja þær. „Við litum allavega ekki á okkur sem hljómsveit eða eitthvað slíkt.“ Áhrifavaldar CocoRosie eru margir og má þar nefna Jean Genet, SWV, New Kids on the Block, Vashti, Lars Von Trier, mömmu þeirra, Línu langsokk, T-Riza og Bill Cosby. En hvernig myndu þær lýsa CocoRosie á tónleikum? „Við eru kynæsandi og klikk- aðar,“ segja þær ákveðnar og lofa miklu stuði á Nasa. Aðeins eru eftir um 100 miðar á tónleikana og því fer hver að verða síðastur að tryggja sér miða. Kynæsandi og klikkaðar COCOROSIE Bandaríski dúettinn spilar á Nasa 17. maí.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.