Fréttablaðið - 05.05.2006, Síða 66
5. maí 2006 FÖSTUDAGUR42
Silvía Night fékk höfðinglegar mótttökur í
Eistlandi í gær. Hún kom fram í síðdegis-
þætti í ríkisútvarpinu og tekið var viðtal
við hana í sjónvarpinu. Þegar blaðið náði
í hana var hún að undirbúa sig fyrir fjöl-
mennan blaðamannafund með öllum
stærstu miðlum Eistlands. Ekki fékkst við-
tal við stjörnuna vegna anna hjá henni.
Silvía er á þvælingi um Evrópu. Hún
verður í Finnlandi í dag og fer í viðtal hjá
finnska ríkissjónvarpinu. Silvía er ekki ein
um að spóka sig um í löndum keppinaut-
anna fyrir Eurovision. Hin sænska Carola,
sem enn er spáð öðru sæti hjá veðbönk-
unum, er í Slóveníu. Þar hitti hún sló-
venska keppandann, Anzej Dezan, og
reyndi fyrir sér á slóvensku. Bæði þurfa
þau að keppa í undanúrslitunum, en
samkvæmt veðbönkunum situr Anzej
eftir. Rúmenski keppandinn, Mihai Traist-
ariu, fór einnig til Slóveníu og verður á
næstu dögum á Möltu og í Belgíu, en
þaðan fór belgíska Kate Ryan til Kýpur,
svo nokkur dæmi séu nefnd. Bæði Kate
og Mihai er spáð góðu gengi, en hann á
tryggt sæti í aðalkeppninni.
Í Aþenu er keppnissviðið í ólympísku
höllinni nær tilbúið. 250 menn leggja
lokahönd á uppsetninguna. Sviðið verður
þrettán metra vítt, allt úr plexígleri. Á
heitasta vef aðdáenda keppninnar, oikoti-
mes.com, er greint frá því að Silvíu hafi
verið boðið í japanskt sjónvarp. Hún sé
einnig hársbreidd frá því að landa plötu-
samningi við Sony. Í samningnum sé
ákvæði um að hún mæti í japanska MTV.
Eins og alþjóð veit heillaði Silvía Japana
upp úr skónum nýlega.
Annars greinir finnska blaðið Ilta
Sanoma frá því að aðalsöngvari finnsku
hljómsveitarinnar Lordi hafi tognaði á
fæti á tónleikum í Hämeenlinna. Togn-
unin er ekki svo alvarleg að hann geti
ekki keppt í undankeppninni í Euro-
vision þann átjánda, en fregnir um
að Lordi verði dregið úr keppni
hafa engan byr fengið og þeir
halda ótrauðir áfram.
Aðstandendur tónlistarhátíðarinn-
ar Iceland Airwaves, sem verður
haldin verður í miðborg Reykja-
víkur í áttunda sinn 18. til 22. okt-
óber, eru byrjaðir að taka við
umsóknum frá innlendum hljóm-
sveitum og listamönnum sem vilja
koma fram á hátíðinni í ár.
Líkt og undanfarin ár munu
yfir eitt hundrað íslenskir flytj-
endur koma fram á Airwaves 2006
og er áfram stefnt að því að bjóða
upp á gott úrval af hljómsveitum
og listamönnum sem ekki hafa
áður komið fram á hátíðinni.
Meðal þeirra rúmlega þrjátíu
flytjenda sem komu í fyrsta sinn
fram á Airwaves í fyrra má nefna
Benna Hemm Hemm, Mammút og
Jakobínarínu, en þær hafa vakið
verðskuldaða athygli innanlands
sem utan á síðustu misserum.
Til að sækja um að koma fram
á hátíðinni þarf að fylla út eyðu-
blað á www.icelandairwaves.com
sem undir liðnum „Industry“ og
skila til Hr. Örlygs ásamt fylgi-
gögnum.
Þau gögn sem skulu fylgja
umsókn eru diskur með tónlist og
diskur með upplýsingatexta um
flytjanda ásamt mynd.
Umsóknarfrestur er til 10. júlí.
Hr. Örlygur vill leggja áherslu á
að ekki er tekið við umsóknum
eftir þann tíma. Umsækjendum
verður svarað eins fljótt og auðið
er, þó ekki síðar en 1. september.
Umsóknir vegna Airwaves
MAMMÚT Hljómsveitin Mammút spilaði í fyrsta sinn á Iceland Airwaves-hátíðinni í fyrra.
MIHAI TRAISTARIU
Rúmenska keppandanum er
spáð góðu gengi í aðalkeppn-
inni. Rúmenar sendu danslag
í fyrra, urðu í fjórða sæti
og ákváðu að reyna annað
danslag í keppninni í ár.
EUROVISION 2006 GUNNHILDUR A. GUNNARSDÓTTIR SKRIFAR UM SILVÍU OG KEPPINAUTANA
Silvía Night slær í gegn í Eistlandi
Pönkarinn ódauðlegi, Iggy Pop,
hélt tónleika í Listasafni Reykja-
víkur í fyrrakvöld ásamt hljóm-
sveit sinni The Stooges.
Ágætis stemning myndaðist þó
svo að ekki hafi verið troðfullt á
tónleikunum. Iggy var í essinu
sínu, glansandi ber að ofan og í
bláum gallabuxum eins og honum
einum er lagið, og söng alla helstu
slagara sína. Iðaði hann vítt og
breitt um sviðið eins og ormur í
transi og átti að vonum auðvelt
með að fanga athygli viðstaddra.
Eftir eitt uppklapp tók hann
lagið Little Electric Chair og fór
síðan af sviðinu í hinsta sinn eftir
heldur stutta tónleika. Hljómsveit-
in Dr. Spock hitaði upp fyrir Iggy
og stóð sig með prýði.
Ódauðlegur pönkari
ALVÖRU PÖNKARI Bjartur Gunnlaugsson
skartaði þessum forláta hanakambi. Halla
Kristjánsdóttir stendur við hlið hans.
DR. SPOCK Rokksveitin Dr. Spock sem
hefur vakið mikla athygli að undanförnu
bæði hér heima og erlendis hitaði lýðinn
upp með skemmtilegri sviðsframkomu.
IGGY POP Pönkarinn síungi iðaði um sviðið í einkennisbúningi sínum, bláum gallabuxum,
einum fata. Honum til halds og trausts voru félagar hans úr hljómsveitinni goðsagna-
kenndu, The Stooges. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR SVEINSSON
Hljómsveitin Sign spilar þann 19.
maí á tónlistarhátíðinni Great
Escape í Brighton í Englandi.
Í framhaldi af því mun sveitin
fara í tónleikaferðalag í boði rokk-
tímaritsins Kerrang sem stendur
yfir frá 21. til 26. maí. „Kerrang! er
það tímarit sem hefur hvað mest
áhrif í okkar geira og það er gott að
fá stuðning hjá þeim,“ segir Ragn-
ar Zolberg, söngvari og gítarleik-
ari Sign. „Við erum að safna aðdá-
endum í Bretlandi og byggja upp
eftirspurn eftir tónleikahaldi fyrir
hljómsveitina og þetta er góður
stökkpallur fyrir okkur.“
Sign er að fylgja eftir útgáfu á
plötu sinni, Thank God for Silence,
í Bretlandi en platan fékk jákvæða
dóma í þungarokkstímaritinu
Playpower sem gaf plötunni 8 af 10
mögulegum í einkunn. Í dómnum
sagði m.a. að Sign væri markaðs-
vænt jaðarband sem spilaði klass-
ískt gítarrokk í ferskum búning.
Þá verður lagið When Demons
Win á safnplötu sem fylgir tímarit-
inu Metal Hammer sem kemur út
10. maí nk. Tímaritið Kerrang!
birtir einnig heilsíðuviðtal við
hljómsveitina í næsta hefti sínu.
Sign er komið á mála hjá einni
stærstu bókunarskrifstofu Bret-
lands, The Agency, og er ráðgert að
hljómsveitin haldi allavega í eina
aðra tónleikaferð til Bretlands í
sumar.
Þá hefur sveitinni verið boðið
að spila á Subverse-klúbbnum í
Bretlandi sem rekinn er af Visible
Noise, sem er plötufyrirtæki Lost
Prophets og Bullet for My Valent-
ine.
Til að hita upp fyrir tónleika-
ferðina til Bretlands mun Sign
spila á Akureyri, Ísafirði, í Reykja-
vík og Götusmiðjunni dagana 12.
til 16. maí.
Sign ferðast í boði Kerrang
SIGN Hljómsveitin Sign nýtur vaxandi vinsælda í Bretlandi um þessar mundir.
SMS LEIKUR
9. HVER VINNUR!
Vinningar verða afhendir hjá BT Sm
áralind. Kóp
avogi. M
eð þ
ví að taka þ
átt ertu kom
inn í SM
S klúb
b. 99 kr/skeytið.
FRUMSÝND 28. APRÍL
MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
SENDU SMS SKEYTIÐ JA HOF Á
NÚMERIÐ 1900 OG ÞÚ GÆTIR
UNNIÐ MIÐA FYRIR TVO!
VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR FYRIR TVO
• DVD
MYNDIR • TÖLVULEIKIR • VARNINGUR
TENGDUR
MYNDINNI OG MARGT FLEIRA