Fréttablaðið - 05.05.2006, Side 68
[UMFJÖLLUN]
TÓNLIST
Það er gífurlegur sprelligosa-
keimur yfir tónlist The Zutons
sem gerir það að verkum að það
er nánast ómögulegt að taka þau
of alvaralega.
Yfir þeim er svipuð ára og
sveif yfir Madness á sínum tíma.
Öll lögin eru hönnuð til þess að
skemmta. Það er líka erfitt að sjá
þessa sveit spila á tónleikum án
þess að fyllast ódrepandi hvöt til
þess að hrista beinagrindina örlít-
ið. Enda voru heilmargir að sveifla
sér með tónlist þeirra í Hafnar-
húsinu á síðustu Airwaves-hátíð.
Það sem er líklegast mest heill-
andi við tónlist The Zutons er
hversu tímalaus hún er. Þessi lög,
og þessi hljómur gæti alveg eins
verið þrjátíu ára gamall. Tónlistin
vegur salt einhvers staðar á milli
The Commitments og T-Rex eða
Rolling Stones. Það ætti því bókað
að vera eitthvað sem margir ættu
að geta tengt sig við. Kirsuberið
ofan á ísnum er svo frábær rokk-
söngur Davids McCabe. Rödd
hans rifnar örlítið á hárréttum
stöðum, sem gerir lögin beittari
einhvern veginn.
Fyrsta smáskífan, Why Won´t
You Give Me Your Love, gefur
hárrétta mynd hvernig plata þetta
er. Það er nánast eins og The
Zutons hafi ákveðið að eyða öllum
sínum lífsins sálar kröftum í að
reyna gera eins skemmtilega
plötu og mögulegt er. Og í þeim
geira sem þau eru, þá heyrist mér
þeim bara hafa tekist ágætlega
til. Ég fékk a.m.k. aldrei þá til-
finningu að mig langaði til þess að
skipta yfir á næsta lag. Sem segir
heilmikið í mínu tilviki, því oft
hvílir þungt á skip-takkanum í
þessu starfi.
Svo gerist líka svolítið á þess-
ari plötu sem maður heyrir aldrei.
Besta lagið er síðast. Það heitir I
Know I´ll Never Leave, og er bæði
hugljúft, beitt og svalt á réttum
stöðum. Hamrandi gítarar og
Robert Plant-legur söngur.
Ef The Zutons væri íslensk
væri hún bókað á sveitaballa-
markaðnum. Og það yrði líka því-
lík skemmtun! Þetta er akkúrat
tónlistin sem mig langaði alltaf að
heyra í Njálsbúð í þau fáu skipti
sem ég rataði þangað. Mér fannst
rigningin nefnilega ekkert sér-
staklega góð. Þetta er tónlist sem
er svo trú grunni rokksins að jafn-
vel afi þinn gæti haft gaman af
þessu. Birgir Örn Steinarsson
Einn, tveir og rokka!
THE ZUTONS
TIRED OF HANGING AROUND
Niðurstaða: Önnur breiðskífa stuðboltanna
í The Zutons stenst allar væntingar, og gott
betur. Ávísun á gott skap, dillandi mjaðma-
hreyfingar og töffaralegan lúftgítar.
Ólátabelgurinn og forsprakki
hljómsveitarinnar Babyshambles,
Pete Doherty, er í vondum málum
eftir myndbirtingu The Sun á
föstudaginn en þar sést hann
sprauta heróíni í handlegg stúlku
sem liggur meðvitundarlaus
á klósettgólfi. Stúlkan, sem er 21
árs og mikill áhangandi Dohert-
ys, hefur fylgt honum og hljóm-
sveitinni í þrjú ár og er að sögn
vina algjörlega með hann á heil-
anum. Doherty á yfir höfði sér
allt að tíu ára fangelsisvist fyrir
athæfið en hann segist hafa verið
að taka blóð úr handlegg stúlk-
unnar í listrænum tilgangi og
ætlað að nota það sem málningu í
listaverk sitt. Doherty hefur oftar
en ekki gerst sekur um lögbrot
vegna fíkniefnaneyslu og mun
eflaust ekki sleppa með áminn-
ingu í þetta skiptið.
Það verður síðan að koma í ljós
hvort kærasta Petes, Kate Moss,
sætti sig við þessa framkomu.
Moss ætlaði að gefa kærastanum
sínum eitt tækifæri í viðbót
en parið er nýbyrjað saman aftur
eftir að Moss kom úr meðferð.
Enn og aftur í vondum málum
HRIKALEG AFGLÖP Söngvarinn Pete
Doherty gæti verið í verulega slæmum
málum vegna myndar sem birtist í bresk-
um fjölmiðlum.
Miðasala á tónleika danska plötu-
fyrirtækisins Crunchy Frog á
Nasa 26. maí hefst í dag.
Hljómsveitirnar Heavy Trash,
Powersolo og The Tremelo Beer
Gut munu troða upp ásamt
íslenskri gestasveit sem verður
valin á næstu dögum.
Aðalnúmerið á tónleikunum er
rokkabillýbandið Heavy Trash
sem Jon Spencer úr Jon Spencer
Blues Explosion og Pussy Galore
leiða ásamt Matt Verta Ray.
Miðasala fer fram í Skífunni og
á midi.is og er miðaverð 1.800
krónur auk miðagjalds.
Miðasala hefst í dag
HEAVY TRASH Hljómsveitin Heavy Trash
spilar á Nasa 26. maí.
Sveitapilturinn og sjónvarps-
stjarnan Gísli Einarsson heldur
áfram að flakka um landið í sumar
í þættinum Út og suður á RÚV.
Þetta verður fjórða þáttaröðin
sem Gísli vinnur fyrir sjónvarpið
en alls verða þættir sumarsins 16
talsins. Eins og í fyrri þáttum mun
Gísli grafa upp skemmtilegt fólk
sem fæst við áhugaverða hluti.
„Það er svo yfirdrifið nóg af
áhugaverðu fólki hér á Íslandi að
ég færi létt með að fylla nokkrar
þáttaraðir,“ segir Gísli sem segir
engan skort vera á viðmælendum.
Fyrsti þátturinn verður á dagskrá
næsta sunnudag, strax að loknu
Kastljósi en þá heimsækir Gísli
tvær listakonur úr Reykjavík.
Síðasta sumar var Gísli tölu-
vert gagnrýndur fyrir klæðaburð
sinn sem var sagður sundurleitur
og mörgum fannst hann æði oft
líta út fyrir að vera nýkominn úr
víðavangshlaupi. „Ég hef verið að
lesa tískublöðin í vetur og ráðfært
mig við stílista svo það verður
meira lagt upp úr útlitinu í sumar,“
segir Gísli og hlær. Hann segist þó
ekki ætla að vera í jakkafötum og
með bindi nema þar sem það á við
og gúmmískórnir verða að sjálf-
sögðu á sínum stað. Það hefur ann-
ars verið brjálað að gera hjá Gísla
í vetur. Auk þess að sinna starfi
fréttamanns á Vesturlandi fyrir
RÚV þá hefur hann komið fram á
ýmsum uppákomum að meðaltali
tvisvar til þrisvar sinnum í viku í
vetur og þar að auki skrifar hann
vikulega pistla í blaðið Skessu-
horn. -snæ
Út og suður í nýjum fötum
MEÐVITAÐUR UM TÍSKUNA Gísli hefur kynnt
sér nýjustu tískustraumana og ráðfært sig
við stílista fyrir næstu þáttaröð.
Hljómsveitin Skátar spilar á
Grand Rokki á föstudag ásamt
Mongoose og Bobby Breiðholti.
Skátar eru að vinna að nýrri plötu
sem hefur fengið vinnuheitið Einu
sinni eitthvað, ávallt eitthvað. Er
hún væntanleg á markað síðla
sumars. Hljómsveitin Retron mun
jafnframt sýna gagnvirkt mynd-
bandsverk.
Tónleikarnir hefjast klukkan
22.30 og kostar 500 krónur inn.
Skátar spila
SKÁTAR Hljómsveitin Skátar spilar á Grand
Rokki í kvöld.
Trúbadorinn Halli Reynis heldur
tvenna útgáfutónleika í kvöld og
annað kvöld klukkan 22.00 á Kaffi
Rósenberg.
Þar mun hann kynna nýjustu
plötu sína, Leiðin er löng, auk þess
sem hann mun taka gömul og góð
lög. Halli skrifaði nýverið undir
útgáfusamning við Músík ehf. um
útgáfu næstu plötu sinnar sem er
væntanleg í september. Á þeirri
plötu verður hann með hljómsveit
sinni en á nýju plötunni er hann
einn með kassagítarinn.
„Þessi diskur er sá fyrsti sinn-
ar tegundar hérna. Það er klárlega
út af því að menn hafa ekki þorað
þessu áður,“ segir Halli og á þar
við að ekki hafa menn áður tekið
upp plötur hérlendis einir með
kassagítarinn í hljóðveri. Íris mun
hita upp fyrir Halla í kvöld en
Hilmar Garðarsson
hitar upp á laugar-
dagskvöld.
Fagnar nýrri plötu
HALLI REYNIS Trúbadorinn Halli
Reynis heldur tvenna útgáfutónleika
á föstudags- og laugardagskvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
400 kr. í bíó!
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
INSIDE MAN kl. 8 og 10.25 B.I. 16 ÁRA
RAUÐHETTA M/ÍSL. TALI kl. 6
ÍSÖLD 2 M/ÍSL. TALI kl. 6
LUCKY NUMBER SLEVIN kl. 8 og 10 B.I. 16 ÁRA
RAUÐHETTA M/ENSKU TALI kl. 6, 8 og 10
RAUÐHETTA M/ÍSLENSKU TALI kl. 6
PRIME kl. 5.30, 8 og 10.30
THE HILLS HAVE EYES kl. 8 og 10.30 B.I. 16 ÁRA
WHEN A STRANGER CALLS kl. 6, 8 og 10 B.I. 16 ÁRA
MISSION IMPOSSIBLE 3 kl. 3.20, 6, 9 og 11.40
SÝND Í LÚXUS kl. 3.20, 6, 9 og 11.40
RAUÐHETTA M/ENSKU TALI kl. 4, 6, 8 og 10
RAUÐHETTA M/ÍSLENSKU TALI kl. 4 og 6
PRIME kl. 8 og 10.30
THE HILLS HAVE EYES kl. 10 B.I. 16 ÁRA
ICE AGE 2 M/ENSKU TALI kl. 8
ÍSÖLD 2 M/ÍSLENSKU TALI kl. 4 og 6
Mannbætandi og þrælfyndin
rómantísk gamanmynd með
Uma Thurman og Meryl
Streep í fantaformi!
„Ég var ónýtur eftir
myndina. Hún var
svo fyndin“
- Svali á FM957
EIN FYNDNASTA MYND ÁRSINS
SEM ENGIN MÁ MISSA AF!
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
Birgitta Haukdal fer á
kostum sem Rauðhetta
í íslensku talsetningunni
ÓHUGNANLEGASTA MYND ÁRSINS!
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA
HVAÐ SEM ÞÚ GERIR,
EKKI SVARA Í SÍMANN!
- SV, MBL - LIB, Topp5.isSÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
STÆRSTA MYND ÁRSINS
- VJV, Topp5.is
- HJ MBL
- JÞP Blaðið
- Ó.Ö.H. - DV
- SV - MBL
- LIB. - TOPP5.IS
STRANGLEGA BÖNN
UÐ
INNAN 16 ÁRA
DYRAVERÐIR VIÐ
SALINN!
FYRSTA STÓRMYND SUMARSINS ER KOMIN!
AF MÖRGUM TALIN VERA BESTA MISSION
IMPOSSIBLE MYNDIN TIL ÞESSA!
DOLBY DIGITAL
POWER
SÝNING Í SMÁR
ABÍÓ
KL. 23.40