Fréttablaðið - 05.05.2006, Side 72
48 5. maí 2006 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
HANDBOLTI Sex af fjórtán þjálfur-
um DHL-deildarinnar völdu Heimi
Örn sem mikilvægasta leikmann-
inn í vetur en fjórir töldu að Sverr-
ir hefði verið sá mikilvægasti.
Aðrir leikmenn sem fengu atkvæði
sem mikilvægasti leikmaðurinn
voru Framararnir Jóhann Gunnar,
Sigfús Sigfússon og markvörður-
inn Egedius Petkevicius, ásamt
Patreki Jóhannessyni hjá Stjörn-
unni.
Kosningin var gerð þannig að
þjálfarar deildarinnar voru beðnir
um að nefna þrjá mikilvægustu
leikmenn tímabilsins að þeirra
mati og setja þá í viðeigandi sæti
eftir því. Fimm stig fékk leikmað-
urinn sem settur var í fyrsta sætið,
þrjú stig fyrir annað sætið og eitt
stig fyrir það þriðja. Þjálfarar
máttu ekki velja leikmenn úr eigin
liði.
Eins og áður segir hafði Heimir
nokkra yfirburði í kjörinu en
aðeins þrír þjálfarar höfðu hann
ekki í hópi þriggja mikilvægustu
leikmanna deildarinnar. „Klárlega
sá leikmaður í deildinni sem gerir
mest fyrir sitt lið. Frábær leikmað-
ur í sókn og vörn. Án hans hefði
Fylkisliðið jafnvel ekki orðið á
meðal átta efstu,“ sagði einn þjálf-
arinn um Heimi og annar rökstuddi
val með því að segja Heimi hafa
nánast allt: „Fjölhæfnin er hans
styrkur. Hann hefur hraða, styrk
og leikskilning auk þess sem hann
er skotviss með afbrigðum.“
Einn fjögurra þjálfara sem
völdu Sverri sem mikilvægasta
leikmanninn hafði á orði að án hans
hefði Fram aldrei orðið Íslands-
meistari. „Ef Sverrir hefði verið
hjá einhverju öðru af sex efstu lið-
unum hefði það lið líklega unnið
deildina.“
Alls fengu tíu leikmenn atkvæði
í vali þjálfaranna en auk þeirra sex
sem áður hafa verið nefndir fengu
einnig atkvæði þeir Birkir Ívar
Guðmundsson, Sergei Serenko, Titi
Kalandadze og Vladimir Duric.
Heimir Örn var óumdeilanlega
leiðtoginn í spútnikliði Fylkis í
vetur og er vel að viðurkenning-
unni kominn. Heimir skoraði 124
mörk í 25 leikjum, eða fimm mörk
að meðaltali í leik, en auk þess er
Heimir af flestum talinn í hópi öfl-
ugustu varnarmanna deildarinnar.
„Þetta er mikill heiður og
gaman að enda tímabilið með
svona viðurkenningu. En ég vil nú
meina að allt Fylkisliðið eigi
stærstan þátt í þessu,“ sagði Heim-
ir við Fréttablaðið í gær, hógværð-
in uppmáluð. „Ég er ekki frá því
að þetta hafi verið mitt besta tíma-
bil á ferlinum. Þetta er búið að
ganga vel, ég neita því ekki, en
það er erfitt að segja hvað veldur.
Ég æfði vel áður en tímabilið hófst
og svo tók ég meiri ábyrgð en ég
hef áður gert. En svo kom fljót-
lega í ljós að við erum einfaldlega
með hörkulið með fullt af strákum
sem geta tekið af skarið,“ segir
Heimir sem þó hefði viljað enda
tímabilið á öðrum nótum.
„Ég er ekki sáttur við frammi-
stöðu mína í síðustu leikjum tíma-
bilsins þar sem ég var eins og
byrjandi. En ég held að ég hafi náð
að rífa mig upp í leiknum gegn
Fram í deildarbikarnum,“ sagði
Heimir og glotti en hann er á leið
til Danmerkur þar sem hann hefur
samið við úrvalsdeildarliðið Bjerr-
ingbro-Silkeborg.
„Þetta er búið að vera í bígerð
lengi og ég vona að ég geti verið
atvinnumaður í einhver ár. Ég tel
að þetta sé eðlilegt skref fyrir mig
á þessum tímapunkti og hlakka
mikið til,“ segir Heimir. Hann
stendur ekki á svari þegar hann er
spurður um mikilvægasta leik-
mann deildarinnar að sínu mati.
„Ég hefði valið Birki Ívar.“
vignir@frettabladid.is
Heimir Örn mikilvægastur í vetur
Heimir Örn Árnason, fyrirliði Fylkis, er mikilvægasti leikmaður DHL-deildarinnar í ár að mati þjálfara
deildarinnar. Heimir fékk alls 41 stig í kjörinu, 10 stigum meira en Sverrir Björnsson hjá Fram. Þeir félagar
höfðu mikla yfirburði í kjörinu en þriðji varð Jóhann Gunnar Einarsson hjá Fram með 13 stig.
SÁ MIKILVÆGASTI OG SÁ BESTI UNGI Heimir Örn Árnason, mikilvægasti leikmaður DHL-
deildarinnar í vetur að mati þjálfara deildarinnar, sést hér halda Sigfúsi Páli Sigfússyni,
besta unga leikmanninum að mati þjálfara, föstum tökum í leik Fram og Fylkis í Safamýr-
inni í fyrradag. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HANDBOLTI Sigfús Páll Sigfússon,
hinn 20 ára gamli leikstjórnandi
Íslandsmeistara Fram, hafði
mikla yfirburði í kjöri þjálfara
DHL-deildarinnar á besta unga
leikmanni deildarinnar.
Ólíkt kosningunni um mikil-
vægasta leikmann deildarinnar
voru þjálfararnir aðeins beðnir
um að nefna eitt nafn þegar kom
að því að velja besta unga leik-
manninn, en skilyrðið var að við-
komandi væri gjaldgengur í U-
21 árs landslið Íslands.
Alls voru það níu þjálfarar
sem völdu Sigfús bestan en aðrir
sem fengu atkvæði voru þeir
Jóhann Gunnar Einarsson, sam-
herji Sigfúsar hjá Fram, sem
fékk þrjú atkvæði, og Arnór Þór
Gunnarsson hjá Þór sem fékk
tvö atkvæði.
Sigfús átti magnað tímabil
fyrir Fram í vetur og stjórnaði
leik Íslandsmeistaranna af mik-
illi festu, þrátt fyrir að hafa verið
að stíga sín fyrstu spor sem lyk-
ilmaður í liðinu. Sigfús var með
rúm þrjú mörk að meðaltali í leik
í vetur en gaf ófáar stoðsending-
ar á samherja sína sem skiluðu
mörkum. - vig
Besti ungi leikmaður DHL-deildarinnar:
Sigfús með yfirburði
SIGFÚS PÁLL SIGFÚSSON Besti ungi
leikmaður DHL-deildarinnar, að mati
meirihluta þjálfara deildarinnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
MIKILVÆGASTI LEIKMAÐURINN
Nafn, félag Stig
Heimir Örn Árnason, Fylki 41
Sverrir Björnsson, Fram 31
Jóhann Gunnar Einarsson, Fram 13
Birkir Ívar Guðmundsson, Haukum 12
Sigfús Sigfússon, Fram 11
Patrekur Jóhannesson, Stjörnunni 8
Sergei Serenko, Fram 3
Edgevicisius, Fram 5
Vladimir Duric, Selfoss 1
Titi Kalandadze, Stjörnunni 1
BESTI UNGI LEIKMAÐURINN
Nafn, félag Stig
Sigfús Sigfússon, Fram 9
Jóhann Gunnar Einarsson, Fram 3
Arnór Þór Gunnarsson, Þór Ak. 2
SVERRIR BJÖRNSSON Var frábær í hjarta
varnarinnar hjá Fram í vetur oig gekk einn
þjálfarinn svo langt að segja að hefði
eitthvert annað lið en Fram haft Sverri
innanborðs hefði það lið líklega orðið
Íslandsmeistari. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Peter Harrison, fyrrverandi umboðs-
maður Eiðs Smára Guðjohnsen, segir
að meintur áhugi Alex Ferguson,
knattspyrnustjóra Manchester United, á
íslenska landsliðsmanninum komi sér
ekki á óvart. Harrison sagði við Frétta-
blaðið að litlu hefði munað að Eiður
Smári gengi til liðs við Man. Utd. fyrir
nokkrum árum síðan, þegar Harrison
var umboðsmaður hans. Harrison vildi
ekki fara nákvæmlega út í hversu mikill
áhugi Man. Utd á Eiði Smára var en
staðfesti að hann hefði verið verulegur.
„Það munaði ekki miklu að Eiður hefði
farið þangað,“ sagði hann.
Nokkrir enskir netmiðlar fjalla um
mál Eiðs Smára og hugsanlega för hans
frá Chelsea. Er hann orðaður við Man.
Utd, Tottenham og nú einnig Blackburn.
Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær
telur blaðið Manchester Evening
News sig hafa heimildir fyrir því að
Eiður vilji spila á Old Trafford og
heldur því fram að Ferguson hafi
lengi verið aðdáandi leik-
mannsins. Á heimasíðu
blaðsins gefst lesendum
kostur á að segja sitt álit
á mögulegum kaupum
Man. Utd á Eiði og
er ljóst að sitt sýnist
hverjum um ágæti
landsliðsfyrirliðans.
Nokkrir Íslendingar tjá sig
eru þeir sammála um að
Eiður yrði mikill fengur fyrir
Man. Utd. Bresku netverj-
arnir furða sig hins vegar
margir hverjir á því að Eiður skuli
vera falur á aðeins fjórar millj-
ónir punda, eins og Manchester
Evening News leiddi líkur að. Tveir
líkja Eiði við Teddy Sheringham og
segja hann því geta orðið frá-
bæran fyrir þá rauðklæddu
en aðrir segja hann vera of
líkan Wayne Rooney sem
leikmaður og því hafi Alex
Ferguson ekkert að gera
við íslendinginn. Flestir eru
þó á því að Eiður sé mjög
hæfileikaríkur leikmaður
sem hafi alla burði til að
gera góða hluti undir stjórn
Fergusons.
FYRRUM UMBOÐSMAÐUR EIÐS SMÁRA: MUNAÐI LITLU AÐ HANN FÆRI TIL MAN. UTD FYRIR ÞREMUR ÁRUM
Meintur áhugi United kemur ekki á óvart
SAMSETT MYND/KIDDI
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen
fær einkunnina 6 hjá stuðnings-
mannaklúbbi Chelsea fyrir
frammistöðu sína með Chelsea á
leiktíðinni. Allir þeir leikmenn
sem komið hafa við sögu hjá Chel-
sea á leiktíðinni eru vegnir og
metnir og fær Eiður lægstu ein-
kunnina af framherjunum.
„Stóð sig oftast vel þó að tæki-
færin hafi ekki verið mörg, eink-
um vegna góðrar frammistöðu
Essiens. Sýndi hins vegar ekki
þann stöðugleika sem hann þarf til
að tryggja sér fast sæti í liðinu.
Eina vikuna var hann „ljóshærður
Maradona“ þá næstu var hann
ekki svipur hjá sjón.“ Svona hljóm-
ar umsögn stuðningsmanna-
klúbbsins um frammistöðu Eiðs
Smára á leiktíðinni.
John Terry varð efstur í kjöri
stuðningsmannanna og sá eini sem
fékk 10 í einkunn, en Frank Lamp-
ard, Joe Cole og William Gallas
fengu allir einkunnina 9. - vig
Eiður Smári Guðjohnsen:
Fær 6 í einkunn
fyrir tímabilið
EIÐUR SMÁRI Átti miðlungsleiktíð, að mati
stuðningsmanna Chelsea.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
> Blikar fá Namibíumann
Landsbankadeildarlið Breiðabliks
mun á morgun fá til sín varnarmann
á reynslu að nafni Oliver Risser. Hann
kemur frá Namibíu og hefur leikið ellefu
landsleiki fyrir þeirra hönd en liðið er
í 163. sæti á heimslista FIFA. Risser
hefur leikið með varaliði
Borussia Dortmund
en hefur verið að
koma sér í fullt form
í neðri deildunum
í Þýskalandi eftir
að hafa meiðst
illa fyrir ári. Risser
er 25 ára gamall
varnarmaður,
188 cm á hæð
og 84 kg. Hann
mun leika æfingaleik
með Blikum gegn KR á sunnudaginn.
Breiðablik hefur þegar fengið til sín
annan erlendan leikmann, Stig Krohn
Haaland, sem einnig er varnarmaður en
hann kom til Blika frá Noregi.
FÓTBOLTI Íslandsmeistarar FH
báru sigur úr býtum í Deildabikar
karla í fótbolta með 3-2 sigri á
Keflavík í úrslitaleiknum sem
fram fór í fyrradag. Þetta er þriðja
árið í röð sem FH-ingar vinna
þessa keppni.
Sigurvin Ólafsson, Freyr
Bjarnason og Tryggvi Guðmunds-
son komu FH í 3-0 í fyrri hálfleik
og stefndi allt í stórsigur Íslands-
meistaranna. Keflvíkingar neit-
uðu þó að gefast upp og náðu með
miklu harðfylgi að minnka mun-
inn í 3-2 þegar um 20 mínútur voru
eftir en mörk liðsins skoruðu
Simun Samuelson og Hólmar Örn
Rúnarsson. Lengra komust Suður-
nesjamennirnir hins vegar ekki og
stóðu FH-ingarnir því uppi sem
sigurvegarar. - vig
Deildabikar karla:
FH meistarar
BIKARINN Á LOFT Tryggvi Guðmundsson,
fyrirliði FH, hampaði deildabikarnum í
leikslok. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Olsen ekki til Fylkis
Fylkir hefur ákveðið að semja ekki við
vinstri bakvörðinn Rasmus Olsen. Hann
heillaði hvorki forráðamenn né þjálfara
liðsins, Leif Garðarsson, á æfingum
í vikunni, né í æfingaleik gegn Víði á
þriðjudaginn og heldur því aftur til síns
heima í Danmörku.