Fréttablaðið - 05.05.2006, Side 74
5. maí 2006 FÖSTUDAGUR50
FÓTBOLTI Eftir margra mánaða
vangaveltur er arftaki Svens
Göran-Eriksson loksins fundinn.
Steve McClaren hættir með
Middlesbrough eftir tímabilið og
tekur við liðinu eftir HM í sumar
en hann er núverandi aðstoðar-
landsliðsþjálfari. Luiz Felipe
Scolari var fyrsti kostur enska
knattspyrnusambandsins, en
þegar hann afþakkaði starfið var
McClaren næstur á listanum og
skrifaði hann undir fjögurra ára
samning í gær.
„Þér hlotnast ekki meiri heið-
ur en að vera boðið þetta starf og
augljóslega er þetta mjög stór
stund fyrir mig. Þetta er gríðar-
leg áskorun, en ég tek henni með
opnum örmum. Ég hef notið tím-
ans hjá Middlesbrough til fulln-
ustu og ég er mjög þakklátur
klúbbnum. Þetta var aftur á móti
tilboð sem ómögulegt var að
hafna,“ sagði McClaren.
„Í augnablikinu er úrslitaleik-
urinn í UEFA-bikarkeppninni í
algjörum forgangi hjá mér áður
en ég fer að vinna með Sven að
undirbúningi fyrir HM í sumar.
Síðan mun ég snúa mér að undir-
búningi fyrir undankeppni EM
2008,“ sagði McClaren sem hefur
verið viðloðinn enska landsliðið
frá því að hann var aðstoðarmað-
ur Sir Alex Ferguson hjá
Manchester United.
McClaren verður á hliðarlín-
unni með Eriksson á HM í sumar
og góður árangur Englands þar
gæti hækkað hann mikið í áliti á
efasemdarmönnum, sem eru
margir á Englandi. Slakur árang-
ur í Þýskalandi myndi samstund-
is setja McClaren undir mikla
pressu, en ljóst er að starfið er
ekki tekið með sældinni.
- hþh
Steve McClaren tekur við enska landsliðinu:
Meiri heiður er ekki til
Í SKÝJUNUM „Ég er ótrúlega
stoltur,“ sagði McClaren
þegar hann var útnefndur
knattspyrnustjóri Englands
í gær. NORDICPHOTOS/AFP
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
MAÍ
2 3 4 5 6 7 8
Föstudagur
■ ■ LEIKIR
19.30 Fylkir og Fram mætast
í deildarbikar HSÍ í handbolta í
Árbænum.
19.30 Valur og Haukar mætast
í deildarbikar HSÍ í handbolta í
Laugardalshöll.
■ ■ SJÓNVARP
19.00 Gillette sportpakkinn á Sýn.
19.30 Motorworld á Sýn.
20.00 Meistaradeild Evrópu á
Sýn. Fréttaþáttur.
Deildabikar kvenna:
VALUR-ÍBV 26-24
Mörk Vals: Alla Georgijsdóttir 8, Ágústa Edda
Björnsdóttir 6, Arna Grímsdóttir 3, Kristín Collins
3, Sigurlaug Rúnarsdóttir 3, Anna Guðmundsdótt-
ir 1, Drífa Skúladóttir 1, Hafrún Kristjánsdóttir 1.
Varin skot: Berglind Íris Hansdóttir 26.
Mörk ÍBV: Pavla Plaminkova 8, Simona Vintila 8,
Ragan Karen Sigurðardóttir 5, Elísa Sigurðardóttir
1, Elísa Viðarsdóttir 1, Ester Óskarsdóttir 1.
Varin skot: Florentina Grecu 25.
Enska úrvalsdeildin:
MAN.CITY-ARSENAL 1-3
0-1 Frederik Ljungberg (30.), 1-1 David Sommeil
(38.), 1-2 Jose Antonio Reyes (78.), Jose Antonio
Reyes (84.).
SUNDERLAND-FULHAM 2-1
1-0 Antony Le Tallec (32.), 2-0 Chris Brown (57.),
2-1 Thomaz Radzinsky (76.).
Heiðar Helguson spilaði allan leikinn fyrir Fulham.
Danska knattspyrnan:
ÁLABORG-SILKEBORG 1-0
1-0 Poul Hübertz
Hörður Sveinsson og Bjarni Ólafur Eiríksson léku báðir
allan leikinn fyrir Silkeborg.
Norska knattspyrnan:
STABÆK-ROSENBORG 1-1
0-1 Thomas Helstad (63.), 1-1 Daniel Nannskog
(79.).
Veigar Páll Gunnarsson lék allan leikinn fyrir Stabæk.
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
Lúxus sturta m/eimbaði og sambyggðum
saunaklefa með ofni kr. 251.000,- 180x100x220 sm.
Nuddpottur m/útvarpi kr. 338.000,- 238x218x100 sm.
Hringlaga nuddpottur m/útvarpi kr. 287.000,-
220 sm
Sturtuklefi m/nuddstútum kr. 92.000,-
100x100x219 sm.
Hornbaðkar m/nuddstútum kr. 116.000,-
150x150x64 sm.
Klefi m/infrarauðum geislum. Indælt að hafa t.d. í
kjallara eða bílskúr verð 214.000,- 160x105x190 sm.
FÓTBOLTI Arsenal vann góðan úti-
sigur á Manchester City í gær, 1-3.
Frederik Ljungberg kom Arsenal
yfir en David Sommeil jafnaði
metin fyrir City í fyrri hálfleik.
Jose Antonio Reyes átti góðan dag
fyrir Arsenal og hann lauk sókn
sem hann byrjaði sjálfur með frá-
bæru marki á 78. mínútu. Reyes
gulltryggði svo sigurinn eftir
undirbúning Thierry Henry.
Heiðar Helguson lék allan leik-
inn fyrir Fulham sem tapaði mjög
óvænt fyrir Sunderland, sem fyrir
löngu er fallið. Antony Le Tallec
kom Sunderland yfir og Chris
Brown jók forystuna. Thomas
Radzinsky minnkaði muninn en
Sunderland bjargaði sér þar með
frá því að vera fyrsta liðið í sögu
enska boltans til að vinna ekki
heimaleik á keppnistímabili. - hþh
Enska úrvalsdeildin í knattspyrnu í gærkvöldi:
Arsenal á sigurbraut
HANDBOLTI „Þetta var ótrúlegt og
það gerist varla sætara en þetta.
Þetta sýnir bara hvað liðsheildin
okkar er sterk og það er frábært
að geta kvatt Val með titli,“ sagði
Berglínd Íris Hansdóttir, mark-
maður Vals, en hún er á leiðinni út
í atvinnumennskuna í Danmörku.
Berglind átti frábæran dag í mark-
inu, varði 26 skot, einu fleira en
stalla hennar í ÍBV, Florentina
Grecu.
Hún sigraði þar með í einvígi
markmannanna, en báðar báru
þær af í sínum liðum í gær. „Ég
segi bara að ef liðið mitt sigrar, þá
sigra ég bara í einvíginu hvernig
sem fer,“ sagði Berglind glaðbeitt
og tók við faðmlögum í gríð og erg
fyrir frábæra frammistöðu í
vetur.
Valsstúlkum gekk erfiðlega í
byrjun leiks og Eyjastúlkur voru
skrefinu á undan í fyrri hálfleik.
Það var einungis fyrir tilstilli
Berglindar að ÍBV náði ekki enn
meira forskoti en þeim fimm
mörkum sem þær höfðu þegar
lokaflautan í fyrri hálfleik gall.
Fátt virtist benda til annars en
hreins úrslitaleiks í Eyjum um
helgina þegar tíu mínútur voru
búnar af síðari hálfleik og Eyja-
stúlkur sex mörkum yfir, 14-20. Þá
hrökk Berglind aftur í gang og
Valsstúlkur tóku öll völd á vellin-
um. Alla Georgijsdóttir hafði hægt
um sig þar til á lokakaflanum
þegar hún skoraði meginþorra
átta marka sinna í leiknum.
Lokamínúturnar voru æsi-
spennandi en Valsstúlkum tókst
að jafna leikinn í 24-24 og skoruðu
svo tvö síðustu mörkin og tryggðu
sér sigurinn. Alfreð Finnsson,
þjálfari ÍBV, missti sig á hliðarlín-
unni vegna ósættis við dómarana
og þrumaði harpixfati Eyjastúlkn-
anna upp í blaðamannastúku, en
Valsstúlkur leyfðu sér að dansa
trylltan stríðsdans í lokin. - hþh
Berglind tryggði Val titilinn
Valsstúlkur eru deildabikarmeistarar eftir frækinn sigur á ÍBV í Laugardalshöll.
Þeim tókst að leggja ÍBV, 26-24, eftir að hafa lent sex mörkum undir í leiknum.
Í SIGURVÍMU Berglind gat leyft sér að fagna rækilega í leikslok. Hér hampar hún deildabik-
armeistaratitlinum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM