Fréttablaðið - 05.05.2006, Síða 78

Fréttablaðið - 05.05.2006, Síða 78
 5. maí 2006 FÖSTUDAGUR54 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 Myndasögubúðin Nexus, ásamt um tvö þúsund verslunum víða um heim, mun á laugardag taka þátt í „Free Comic Book Day“ þar sem gefin verða sérútgefin mynda- sögublöð frá ýmsum útgefendum. Þetta er fimmta árið sem þessi dagur er haldinn og hafa vinsæld- ir hans aukist ár frá ári. Hátt í tvær milljónir blaða verða gefnar víða um heim. Nexus mun gefa yfir eitt þúsund blöð fyrir börn og fullorðna, meðal annars Superman, Batman, Andr- és og félaga, Simpsons-fjölskyld- una, glæpasögur og drama. „Það eru fyrirtæki úti í Banda- ríkjunum sem taka sig saman og prenta sérstaklega blöð fyrir þennan dag,“ segir Þórhallur Björgvinsson, umsjónarmaður myndasagna hjá Nexus. „Þetta hefur verið gert í kringum útgáfu- dag kvikmynda og nú er X-Men 3 á leiðinni. Þetta er gert til að auka vinsældir myndasagna og við höfum alltaf tekið þátt,“ segir hann og bætir við að langar bið- raðir hafi myndast fyrir utan Nexus undanfarin ár. Viðburðurinn byrjar klukkan 14.00 í Nexus og verða blöðin gefin á meðan birgðir endast. Fer það eftir aðsókn hvort fólk fær eitt blað eða fleiri gefins. - fb Þúsund myndasögur gefnar ÞÓRHALLUR BJÖRGVINSSON Myndasögu- búðin Nexus mun gefa yfir eitt þúsund blöð á laugardaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR SVEINSSON HRÓSIÐ ...fær stúlknasveitin Nylon sem mun hita upp fyrir hina vinsælu hljómsveit Girls Aloud á tónleika- ferð þeirra. LÁRÉTT: 2 gáski 6 í röð 8 keyra 9 keyra 11 klafi 12 glatast 14 móðir 16 í röð 17 andi 18 pota 20 þreyta 21 spik. LÓÐRÉTT: 1 teikning af ferli 3 guð 4 skotskífa 5 draup 7 veitti gleði 10 karlfugl 13 skilaboð 15 vingjarnleiki 16 hrós 19 bardagi. LAUSN: Um daginn var ég að ræða ákveðinn mann við vinnufélaga minn. Þegar ég hafði lokið mér af að lýsa honum sagði hann: ég skil, hann er sem sagt A4 týpan. Mér fannst þessi lýsing hans stórkostleg þar sem hún sagði allt sem ég vildi segja með þessum tveimur stöf- um. Týpan sem ég hafði verið að lýsa fyrir honum var gæi sem var akkúrat og hundrað prósent að öllu leyti. Hann klæddi sig eins og klipptur út úr Boss auglýsingu, vann vinnu sem var skotheld og stabíl, kom fram við mig eins og ég væri merkilegasta kona í heimi og sagði aldrei neitt hið minnsta vitlaust. Einhverra hluta vegna gekk þetta þó ekki upp hjá okkur. Ég hef margoft spurt mig að því hvers vegna ég henti mér ekki í arma hans og leyfði hamingjunni að hefjast. Ég er ansi hrædd um að staðreyndin sé sú að það sem er of akkúrat sé akkúrat það sem má alls ekki. Það er samt svo hrikalegt að segja það því allar, eða flestar, erum við að leita að manni sem er fullkominn. Það lítur hins vegar út fyrir að einhver lítill djöfull á öxlinni á mér hafi sagt við mig: hey... ekkert krydd, ekkert fjör! Og ég asnaðist til að hlýða. Þegar ég fór að ræða þetta við vinkonurnar komumst við að því að við vorum flestar sammála um að við leit- uðum allar í menn sem væru næstum því fullkomnir en hefðu þó einhverja hnökra til að vera ósáttar við. Okkur þótti mjög erfitt að viðurkenna staðreyndina og fannst við heldur sorglegar eftir umræðuna. Ein vinkonan sagðist reyndar hafa fundið hinn full- komna mann. Og að hann væri einmitt akkúrat gæinn sem okkur finnst stundum aðeins of lítið spennandi. Nema hvað, hann væri ekki bara akkúrat heldur hefði hann svo miklu meira í sér falið að það gerði allt betra, og svo miklu betra! Hann er víst þannig að ofan á hundraðprósentin sem hann var búinn að sýna henni hafði hann farið með hana á mótorhjól, í köfun og í ævintýraóvissuferð út á land. Og allt þetta eftir að hafa verið að deita í aðeins einn mánuð! Þá sagði hún okkur að sér fyndist hann svo óendanlega spennandi þar sem hann væri í því að koma henni á óvart með óvæntum dinnerum, ferðum og leyndri ævintýraþrá. Ég er ekki frá því að hún hafi einmitt fundið hinn eina sanna fullkomna mann. Mig grunar að við séum of fljótar að stimpla menn. Að við gefum þeim ekki tækifæri á því að sýna okkur allt sem í þeim býr og förum of fljótt að fela okkur og finna afsakanir hvers vegna við komumst ekki á næsta deit. Eins og svo oft áður ráðlegg ég okkur öllum að gefa fólki séns á að sanna sig og skína. REYKJAVÍKURNÆTUR: HÖRPU PÉTURSDÓTTUR FINNST AKKÚRAT MENN SKÍNANDI FÍNIR! A4 týpan LÁRÉTT: 2 ærsl, 6 rs, 8 aka, 9 aka, 11 ok, 12 ferst, 14 mamma, 16 lm, 17 sál, 18 ota, 20 lú, 21 fitu. LÓÐRÉTT: 1 graf, 3 ra, 4 skotmál, 5 lak, 7 skemmti, 10 ara, 13 sms, 15 alúð, 16 lof, 19 at. Gumball 3000 kappaksturinn hefur að vonum vakið mikla athygli hér á landi enda keppa íslenskir fjárfestar á borð við Hannes Smárason og Jón Ásgeir Jóhannesson við stórstjörnur í kappakstri. Eins og greint var frá í vikunni flýgur flugvél frá Icelandair með þotuliðið innanborðs á milli staða en heimasíðan alk.com/gumball býður upp á skemmtilega þjónustu því þar geta íslenskir áhugamenn um ökuleikni ríka fólksins fylgst með þeim aksturs- leiðum sem keppendur keyra. Í gær voru auðkýfingarnir staddir í Phuket en síðan verður gert stutt hlé því á morgun er farið til Salt Lake City og þaðan keyrt til Las Vegas en frá spilaborginni í Nevada er brunað til Los Angeles þar sem Hugh Hefner tekur á móti þreyttum ferðalöngum. FRÉTTIR AF FÓLKI Iggy Pop og hljómsveitin The Stooges, tryllti lýðinn í Listasafni Reykjavík- ur í fyrrakvöld. Á meðal þeirra sem hlýddu á pönkarann síunga var rithöfundurinn Einar Már Guðmundsson, tónlistarspekúlantinn Dr. Gunni, tónleikahald- arinn Grímur Atlason, tónlistarkonan Rósa Guðmundsdóttir og sjónvarpskonan Dóra Takefusa. Svo virtist sem Iggy hefði staðið undir væntingum því flestir gengu út með bros á vör inn í nóttina. VEISTU SVARIÐ svör við spurningum á bls. 8 1 Frederic Mishkin 2 Bólivíu 3 Girls Aloud I llugi Jökulsson og Jónas Örn Helgason áttust við í fyrri undanúr- slitaviðureign Meistarans í gærkvöldi. Úrslitin hafa vafalítið komið mörgum á óvart því Illugi var talinn sigurstranglegri en verkfræðineminn ungi. Illugi hafði eins stigs forskot á Jónas þegar kom að síðustu spurningu, en valflokkurinn var þess eðlis að Illugi var handviss um að andstæðingurinn vissi svarið. Ritstjórinn fyrrverandi lagði því allt undir en gat ekki svarað. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins kom Logi Bergmann, stjórnandi þáttarins, að máli við Illuga, sem tjáði honum að hann hefði vitað svarið en minnið hefði brugðist sér á ögurstundu. Yngsti keppandinn í Meist- aranum færist því einu skrefi nær því að hreppa fimm milljónir en hver andstæðingur hans verður skýrist í næstu viku þegar Erlingur Sigurðsson og Inga Dóra Ingvarsdóttir mætast. - fgg / fb Sigurjón Sighvatsson verður áber- andi á kvikmyndahátíðinni í Cann- es. Heimildarkvikmyndin Zidane, andlitsmynd 21. aldarinnar, hefur verið valin í flokkinn Official Sel- ection á Cannes-kvikmyndahátíð- inni. Myndin gerist á rauntíma og fylgist með knattspyrnugoðsögn- inni Zinidine Zidane í leik með félagsliði sínu Real Madrid á móti Villarreal. Þá var stuttmyndasafn- ið Destricted valið í Critics Week á sömu hátíð en hún kemur einnig úr smiðju Sigurjóns auk þess sem The Hawk is Dying verður kynnt. Kvikmyndaframleiðandinn er öllum hnútum kunnugur í Cannes enda vann hann Gullpálmann árið 1992 með hinni mjög svo umdeildu Wild at Heart í leikstjórn Davids Lynch auk þess að hafa mætt með myndir á borð við Arlington Road og In Bed with Madonna. Fram- leiðandinn var staddur í Kaup- mannahöfn þegar Fréttablaðið náði tali af honum og var að vonum mjög ánægður með þennan heiður. „Það er mjög erfitt að komast þarna að en auðvitað er eitt að komast inn en annað að skila árangri,“ segir Sigurjón. Heimildarmyndin um Zidane er utan keppni en til marks um þá eftirvæntingu sem ríkir í kringum hana að þá eru bæði þriðja X-Men myndin og Da Vinci Code í sama flokki. „Myndin verður sýnd 22. maí og síðan dreift í fjögur hundruð kvikmyndahús víðs vegar um Frakkland,“ bætir Sigurjón við en það var varla til að draga úr spennunni að Zidane tilkynnti að hann hygðist leggja skóna á hill- una eftir heimsmeistarakeppnina í Þýskalandi. „Þetta er algjör tilvilj- un því við ákváðum að gera hana fyrir nokkrum árum. Henni var síðan frestað um eitt ár vegna fjár- skorts,“ útskýrir Sigurjón sem þurfti lengi að kljást við stjórn- endur Real Madrid um leyfi til að gera myndina. „Hún einblínir á listformið sem þessi vinsælasta íþrótt heims er í stað úrslitanna.“ Destricted er af allt öðru meiði en heimildarmyndin um Zidane en það eru sjö stuttmyndir sem reyna sig við mörkin á milli listar og erótíkur. „Klámiðnaðurinn er hálf- gert bannorð en engu að síður getur hver helvita maður sem kann á netið nálgast það,“ segir Sigurjón sem er þekktur fyrir að fara ótroðnar slóðir í sinni kvik- myndagerð. Myndin vakti mikla athygli á Sundance-hátíðinni og verður því for- vitnilegt að sjá hvernig Frakkar taka henni. Árið hjá Sigur- jóni hefur verið gott því hann hlaut Menningar- verðlaun DV fyrir framlag sitt til kvikmyndagerðar, A Little Trip to Heaven var valin besta myndin á spennumyndahátíð í Frakklandi auk þess sem Gargandi snilld hefur farið sigurför um heiminn. „Það er gott að vera ennþá að gera kvikmyndir sem valdar eru á bestu kvikmyndahátíðirnar og fólki þykir áhugavert að sjá.“ freyrgigja@frettabladid.is SIGURJÓN SIGHVATSSON: ÁBERANDI Á CANNES-KVIKMYNDAHÁTÍÐINNI Með knattspyrnugoðsögn og erótík upp á arminn SIGURJÓN SIGHVATSSON Kvikmyndaframleiðandinn er öllum hnútum kunnugur á Cannes- hátíðinni enda vann hann Gullpálmann árið 1992 fyrir Wild at Heart.FRÉTTABLAÐIÐ / TEITUR ZIDANE Heimildarkvikmyndin um þessa miklu knattspyrnugoðsögn hefur verið valin í Official Selection flokkinn á Cannes-hátíðinni. opið alla laugardaga 10-14 GRILLPINNAR KRYDDLEGINN LAX LÚÐA, STEINBÍTUR, KEILA, LANGA OG SILUNGUR SIGNA GRÁSLEPPAN ER KOMIN 1 dálkur 9.9.2005 15:20 Page 7

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.