Fréttablaðið - 25.05.2006, Side 4
4 25. maí 2006 FIMMTUDAGUR
ÍÞRÓTTIR Íþróttafélögin í Reykja-
vík fá háar greiðslur frá borginni
til að reka starf sitt en umræðan
undanfarið hefur beinst að því
hversu mikið hvert félag fær.
Styrkir til íþróttafélaga koma
bæði frá Íþrótta- og tómstunda-
ráði Reykjavíkur og Íþrótta-
bandalagi Reykjavíkur. ÍTR veit-
ir framkvæmdastyrki en ÍBR
veitir húsaleigu- og æfingastyrki
til félaganna. Borgin fjármagnar
starf þeirra að öllu leyti en ÍBR
útdeilir einnig tekjum sem koma
frá Íslenskri Getspá.
Styrkirnir fara meðal annars
eftir stærð félaganna og hvort
félögin séu í húsnæði borgarinn-
ar eða eigin húsnæði. Meðfylgj-
andi tafla sýnir framkvæmda-
styrki ÍTR til næstu ára en hún
sýnir að ÍR, Valur og Fylkir fá
hæstu styrkina. KR fær til að
mynda styrk frá ÍTR til að byggja
æfingaaðstöðu og svo styrk til að
reka húsið frá ÍBR. ÍR á hins
vegar ekki eigið húsnæði en notar
ýmis hús á vegum borgarinnar.
Að sögn Ómars Einarssonar
sviðsstjóra hjá ÍTR „rekur
Reykjavíkurborg húsið og ber
ábyrgð á starfsmannahaldi og
viðhaldi en kostnaðurinn við
afnot félagsins af þessum húsum
er reiknaður sem styrkur til ÍR
en ÍR fær ekki þessa peninga“.
Íþróttafélögin eru hætt að
byggja sín eigin hús og gerir borg-
in það nú og íþróttafélögin leigja
síðan húsið með styrk frá borg-
inni. Fyrir nokkrum árum borg-
uðu íþróttafélögin hins vegar sjálf
um 20 prósent á móti borginni.
Reykjavíkurborg borgar einnig
alla húsaleigu fyrir félögin.
ÍBR eru heildarsamtök
íþróttafélaganna í Reykjavík og
fá styrki frá Reykjavíkurborg
sem þau úthluta til félaganna.
Hjá ÍBR fær Fjölnir hæsta
styrkinn en það kemur til vegna
þess að þeir hafa aðsetur í Egils-
höll þar sem hver tími er mjög
dýr. Í raun er um að ræða milli-
færslu frá borginni þar sem
borgin greiðir leigu til húseig-
andans en það reiknast sem
styrkur að sögn Þórðar Berg-
mann hjá ÍBR.
gudrun@frettabladid.is
Fjölnir fær tvöfalt hærri
styrk frá ÍBR en aðrir
Reykjavíkurborg greiðir allan kostnað vegna framkvæmda á æfinga- og keppnisaðstöðu íþróttafélaganna.
ÍR fær hæsta styrkinn til framkvæmda frá ÍTR í áætlun til næstu þriggja ára.INDÓNESÍA, AP Alþjóðaheilbrigðis-málastofnunin, WHO, lætur nú
rannsaka dauða sex meðlima sömu
fjölskyldunnar í Indónesíu úr
fuglaflensu. Sjöundi meðlimur
fjölskyldunnar liggur þungt hald-
inn á sjúkrahúsi.
Óttuðust vísindamenn að veiru-
afbrigðið H5N1 hefði stökkbreyst
og smitast manna í millum meðal
fjölskyldumeðlimanna, en fyrstu
rannsóknir benda ekki til þess.
Slík stökkbreyting gæti orðið til
þess að veiran ylli heimsfaraldri.
Samkvæmt tölum WHO hafa
alls 124 manns farist úr flensunni
síðan árið 2003. - smk
Fuglaflensa í Indónesíu:
Sex úr sömu
fjölskyldu dóu
EINN EFTIR Eini eftirlifandi meðlimur
sjö manna fjölskyldu sem farist hefur úr
fuglaflensu í Indónesíu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÍBR: STYRKIR TIL HVERFAFÉLAGANNA
FYRIR ÁRIÐ 2005 Í MILLJÓNUM KRÓNA:
Ármann/Þróttur 60,3
Fjölnir 117,8
Fram 34,5
Fylkir 36,2
ÍR 53,3
KR 55,7
Valur 51,3
Víkingur 43,8
ÍTR: FRAMKVÆMDASTYRKIR
Á VERÐLAGI Í MAÍ 2006
Í MILLJÓNUM KRÓNA:
FÉLAG 2006 2007 2008 2009
Fjölnir 10 50 150 150
Fram 10 41 45 25
Fylkir 10 60 183 150
ÍR 10 105 300 400
KR 14,2 30 32 0
Valur 250 230 0 0
Víkingur 21 21 34 0
EGYPTALAND, AP Al-Kaída leið-
toginn Osama bin Laden er sagð-
ur hafa sent frá sér hljóðupp-
töku þar sem hann fullyrðir að
hvorki Zacarias Moussaoui né
nokkur þeirra fanga sem sitja í
Guantanamo-fangabúðunum á
Kúbu hafi komið nálægt hryðju-
verkaárásunum á Bandaríkin í
september 2001.
Upptakan var birt á vefsíðu
seint á þriðjudagskvöld, og rann-
saka nú bandarískir sérfræðingar
hana í þeim tilgangi að staðfesta
hvort um rödd bin Ladens sé að
ræða eður ei. Reynist þetta vera
bin Laden er þetta í þriðja sinn
sem hann sendir frá sér skilaboð
á þessu ári, en áður heyrðist afar
sjaldan í foringjanum.
Bandarískir sérfræðingar
telja að bin Laden sé að reyna að
styrkja stöðu sína sem leiðtogi
al-Kaída hryðjuverkanetsins og
vekja meiri athygli, því leiðtogi
al-Kaída í Írak, Abu Musab al-
Zarqawi, hefur undanfarið notið
mikillar hylli stuðningsmanna
heilags stríðs.
Moussaoui var nýverið dæmd-
ur í ævilangt fangelsi í Banda-
ríkjunum fyrir aðild að árásun-
um árið 2001. Hann játaði sök,
en sat í bandarísku fangelsi
þegar árásirnar voru gerðar.
- smk
Bin Laden lætur í sér heyra um árásirnar á Bandaríkin:
Moussaoui kom hvergi nærri
OSAMA BIN LADEN Sendi frá sér hljóðupp-
töku á þriðjudagskvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGREGLA Ökumaður slapp ómeidd-
ur þegar bíll valt um einum kíló-
metra austan við Námaskarð í
Mývatnssveit um þrjúleytið í gær.
Ökumaðurinn, sem var einn í bíln-
um, missti stjórn á jeppabifreið
sinni í krapa sem varð til þess að
bíllinn snerist á veginum og valt.
Lögreglan á Húsavík kom á
staðinn um 40 mínútum síðar. Bíll-
inn var fluttur í burtu af dráttarbíl
og er mjög mikið skemmdur og
jafnvel ónýtur. - sh
Bílslys í Mývatnssveit:
Velti jeppa en
slapp ómeiddur
BÆJARMÁL Samningur um sölu
vatns til Garðabæjar var sam-
þykktur í bæjarstjórn Kópavogs
á þriðjudag. Bæjarfulltrúar Sam-
fylkingarinnar, sem situr í minni-
hluta, greiddu atkvæði gegn
samningnum.
Samningurinn kveður á um að
bærinn skuldbindur sig til að
selja Garðabæ vatn næstu 40
árin. Fyrstu tíu árin greiða Garð-
bæingar 3,44 krónur fyrir hvert
tonn, næstu tíu árin hækkar það
upp í 6,08 krónur og 20 árin þar á
eftir verður tonnið á 8,1 krónur.
Samningurinn er óuppsegjan-
legur af hálfu Kópavogsbæjar.
- sdg
Bæjarstjórn Kópavogsbæjar:
Vatnssamning-
ur samþykktur
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 24.05 2006
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur 72,39 72,73
Sterlingspund 136,43 137,09
Evra 93,13 93,65
Dönsk króna 12,494 12,568
Norsk króna 11,908 11,978
Sænsk króna 9,994 10,052
Japanskt jen 0,648 0,6518
SDR 108,13 108,77
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
128,7262
FRÁ KNATTSPYRNUMÓTI YNGRI FLOKKA Fjölnir fær
hæsta styrkinn frá ÍBR vegna þess hversu dýrir tímarnir
eru í Egilshöll. FRETTABLAÐIÐ/STEFÁN