Fréttablaðið - 25.05.2006, Page 6
6 25. maí 2006 FIMMTUDAGUR
Græn
framtíð!
Við Vinstri-græn viljum að Reykjavík
verði til fyrirmyndar á sviði umhverfis-
mála. Við viljum flétta umhverfis-
sjónarmið inn í allar ákvarðanir. Stunda
nútímaleg vinnubrögð við sorpflokkun
og gera það eftirsóknarvert að ferðast
með strætó og nota hjólið.
Forgangsröðum í
þágu náttúru og
umhverfis
Kjósum
Vinstri-græn
Svandís Svavarsdóttir
1. sæti í Reykjavík
KJÖRKASSINN
Viltu opinbera rannsókn vegna
upplýsinga um símhleranir?
Já 66,5%
Nei 33,5%
SPURNING Í DAG
Viltu að íbúðalánasjóði verði
breytt í heildsölubanka?
Segðu þína skoðun á visi.is
MOSFELLSBÆR Fulltrúar minni-
hlutaflokkanna í Mosfellsbæ
mættu ekki á hefðbundinn sam-
eiginlegan kosningafund í gær-
kvöldi. „Sjálfstæð-
ismenn vildu ráða
fyrirkomulagi
fundarins. Þeir
kröfðust þess að
D-listafulltrúar
fengju að svara
helmingi spurn-
inga en fulltrúar
hinna framboðs-
listanna þriggja
afganginum. Jafnframt ætluðu
þeir að gera formann Sjálfstæðis-
flokksfélags Mosfellsbæjar að
fundarstjóra. Við þetta sættum
við okkur ekki,“ segir Gerður
Pálsdóttir á lista Samfylkingar-
innar í Mosfellsbæ.
„Við gerðum kröfu um að bæj-
arbúar fengju að spyrja frambjóð-
endur á fundinum en minnihluta-
flokkarnir sættu sig ekki við svo
lýðræðislegt fyrirkomulag. Þess í
stað sendu þeir bæjarbúum bréf
og sökuðu okkur um gerræði og
óbilgirni,“ segir Elín Reynisdóttir
hjá D-listanum í Mosfellsbæ.
Samfylkingarmenn saka Ragn-
heiði Ríkharðsdóttur bæjarstjóra
um ámælisverða misnotkun á
almannavaldi með því að senda
íbúum í Mosfellsbæ ávísun vegna
afsláttar á fasteignagjöldum, en
hún er undirrituð af bæjarstjóra.
Elín segir endurgreiðslu hluta
fasteignagjalda bera vott um góðan
fjárhag bæjarins og Ragnheiður
hafi leyfi til þess að undirrita ávís-
anirnar sem prókúruhafi. - jh
Fulltrúar minnihlutans í Mosfellsbæ mættu ekki á hefðbundinn kosningafund:
Heitt í kolunum í Mosfellsbæ
ÁVÍSUN FRÁ BÆJARSTJÓRA Eigendur fasteigna í Mosfellsbæ fengu ávísun í pósti 11. maí
síðastliðinn vegna afsláttar á fasteignagjöldum. Ávísunin var undirrituð af bæjarstjóra.
Fulltrúar Samfylkingarinnar segja þetta grófa misnotkun á almannavaldi.
BRUSSEL, AP Evrópusambandið
mun sjá Spánverjum fyrir flug-
vélum, varðbátum og sérþjálfuð-
um viðbragðsteymum frá öðrum
aðildarríkjum sambandsins til að
aðstoða við að fást við vaxandi
straum ólöglegra innflytjenda frá
Afríku til Kanaríeyja. Frá þessu
greindi Franco Frattini, sem fer
með dóms- og innanríkismál í
framkvæmdastjórn ESB.
Teresa Fernandez de la Vega,
varaforsætisráðherra Spánar,
sagði að spænska ríkisstjórnin og
héraðsyfirvöld á Kanaríeyjum
réðu ekki lengur við ástandið og
þyrftu á bráðaaðstoð að halda.
- aa
Flóttamenn á Kanaríeyjum:
Spánverjar fá
hjálp frá ESB
VARNARSAMNINGUR „Það er ekki
tímabært á þessu stigi, fyrr en
við vitum hver niðurstaðan verð-
ur, að segja upp varnarsamningn-
um. Það er síðara tíma mál að
taka þá ákvörðun. Við þurfum að
ræða það meðal annars við Atl-
antshafsbandalagið,“ segir Hall-
dór Ásgrímsson forsætisráð-
herra.
Eins og kom fram í Fréttablað-
inu í gær hótaði Davíð Oddsson
þáverandi forsætisráðherra, í
bréfi til George Bush Bandaríkja-
forseta í júní 2003, að segja upp
varnarsamningnum tækju Banda-
ríkjamenn einhliða ákvörðun um
brottflutning orrustuþotnanna á
Keflavíkurflugvelli. Kemur þetta
fram í nýrri grein Vals Ingimund-
arsonar prófessors í sagnfræði í
tímaritinu Skírni.
Bandarísk stjórnvöld tilkynntu
einhliða í mars á þessu ári að
orrustuþotur
og herþyrlur
yrðu farnar
frá Íslandi
fyrir lok sept-
ember næst-
komandi.
Halldór
segir að bréf
Davíðs Odds-
sonar hafi
verið ritað í
fullu samráði við hann. Engin
stefnubreyting hafi orðið á stefnu
íslenskra stjórnvalda í varnar-
málum. Alltaf hafi verið lögð
áhersla á nauðsyn loftvarna í
kringum landið. Ekkert sé útilok-
að í því sambandi og viðræður
standi yfir. Hann muni hitta fram-
kvæmdastjóra Atlantshafsbanda-
lagsins í næsta mánuði meðal
annars til að fara yfir þetta mál.
Valur segir í grein sinni að
Davíð Oddsson hafi fengið trygg-
ingu fyrir því á fundi með Bush
sumarið 2004 að ekki yrði gripið
til einhliða ákvarðana af hálfu
Bandaríkjamanna varðandi fram-
tíð varnarliðsins. Beðið hafi verið
með endanlega ákvörðun að kalla
þoturnar á brott þangað til Davíð
hvarf úr stjórnmálum. „Banda-
ríkjamenn töldu sig ekki eiga
Geir Haarde eða Halldóri
Ásgrímssyni skuld að gjalda,“
segir Valur.
„Ég veit ekki um neinar slíkar
tryggingar og hef ekki séð neitt
um það,“ segir Halldór. Afar ólík-
legt sé að beðið hafi verið með
þessa endanlegu ákvörðun þangað
til Davíð hætti í stjórnmálum. ¿Ef
Bandaríkjamenn vinna með þeim
hætti væri það mikill álitshnekkir
fyrir þá - ekki eingöngu gagnvart
Íslendingum heldur á alþjóðlegum
vettvangi.“ bjorgvin@frettabladid.is
Ótímabært að segja
upp varnarsamningi
Davíð Oddsson hótaði bréflega uppsögn varnarsamningsins færu herþoturnar.
Halldór Ásgrímsson segir enga breytingu hafa orðið á varnarstefnu stjórnvalda.
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON
BROTTFÖR FRÁ KEFLAVÍK Halldór Ásgrímsson telur að herþotur geti haft hér tímabundna viðdvöl til að sinna loftvörnum.
FORSETAHEIMSÓKN „Því meira sem
menn vita um Ísland og því leng-
ur sem sérfræðingar hafa fylgst
með Íslendingum, því jákvæðari,
upplýstari og bjartsýnni hafa nið-
urstöður þeirra orðið,“ sagði Ólaf-
ur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, þegar hann ávarpaði lið-
lega 100 stjórnendur helstu fyrir-
tækja í finnsku atvinnulífi í Hels-
inki í gær.
Forsetinn flutti jafnframt
erindi á um 400 manna viðskipta-
ráðstefnu sem KB banki efndi til
í höfuðborg Finnlands í gær, en
hana sóttu forystumenn úr
finnsku fjármála- og atvinnulífi.
Ólafur Ragnar færði rök fyrir
því að smáríki gætu horft fram á
velsældartíma í opnu viðskipta-
umhverfi. „Mjög arðbært getur
verið að afla sér fótfestu innan
smáríkja fyrir nýsköpun í við-
skiptalífinu. Þar er auðveldara að
fylgjast með því hvernig mis-
munandi grunnþættir tengjast,
hvernig viðskiptum manna er
hagað og hvernig þeir afla sér
reynslu og upplýsinga. Smáríkin
eru sem tilrauna- eða rannsókna-
stofa á þeim sviðum sem ríkjandi
eru í efnahagsþróun tuttugustu
og fyrstu aldarinnar.“
Forseti Íslands flytur ræðu á
ráðstefnu Útflutningsráðs sem
haldin er í London í dag. - jh
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, ávarpaði forkólfa í finnsku viðskiptalífi:
Smáríki sem tilraunastofur
TARJA HALONEN OG ÓLAFUR RAGNAR
GRÍMSSON Forsetinn hitti Halonen, forseta
Finnlands, í heimsókn sinni í Helsinki í
fyrradag.
AÞENA, AP Grísk herþota og önnur
frá Tyrklandi rákust á í háloftun-
um yfir Eyjahafi á þriðjudag.
Tyrkir og Grikkir deila um það
hvor þjóðin eigi lofthelgina á
þessu svæði.
Flugmanni tyrknesku þotunnar
var bjargað um borð í vöruflutn-
ingaskip, en hann skaut sér út úr
þotunni áður en áreksturinn varð.
Misvísandi fréttir bárust af örlög-
um gríska flugmannsins.
Utanríkisráðherrar beggja
ríkjanna sögðu atvikið ekki verða
til þess að auka á stirðleika milli
þeirra. - gb
Grísk og tyrknesk herþota:
Árekstur varð í
háloftunum
Ók út af og brotnaði Ökumaður
handleggsbrotnaði í fyrrakvöld þegar
bifreið hans fór út af veginum í Vatns-
dal. Tveir farþegar meiddust lítillega.
Vörubíll valt í vindi Vörubíll með
tengivagn fauk á hliðina á Kjalarnesi
um áttaleytið á þriðjudagskvöld.
Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild en
meiðsl hans voru ekki alvarleg. Bíllinn
vó um 40 tonn, en verið var að flytja
steinull og mjólkurvörur.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Prodi fær stuðning þingsins
Neðri deild ítalska þingsins samþykkti
á þriðjudag stuðning við ríkisstjórn
Romanos Prodi. Áður hafði Prodi tryggt
sér stuðning efri deildarinnar, þannig að
nú er ríkisstjórninni ekkert að vanbúnaði
að taka til starfa.
ÍTALÍA
RAGNHEIÐUR
RÍKARÐSDÓTTIR