Fréttablaðið - 25.05.2006, Qupperneq 10
10 25. maí 2006 FIMMTUDAGUR
Tyrkland-Marmaris
Netverð á mann miðað við
að 2-4 fullorðnir ferðist saman.
Brottför 29. maí.
Innifalið: Flug, gisting í 7 nætur á OZAY eða Club Iilayta,
flugvallarskattar og íslensk fararstjórn.
Benidorm
Netverð á mann miðað við að 2-4 fullorðnir
ferðist saman. Brottför 31. maí.
Innifalið: Flug, gisting í 7 nætur á Halley, flugvallarskattar
og íslensk fararstjórn.
Portúgal-Albufeira
Netverð á mann miðað við
að 2-4 fullorðnir ferðist saman.
Brottför 30. maí.
Innifalið: Flug, gisting í 7 nætur á Mirachoro, flugvallarskatt-
ar og íslensk fararstjórn.
Mallorca
Netverð á mann miðað við
að 2-4 fullorðnir ferðist saman.
Brottför 30. maí.
Innifalið: Flug, gisting í 7 nætur
á Pil Lari Playa, flugvallarskatt-
ar og íslensk fararstjórn.
Plúsferðir · Lágmúla 4 · 105 Reykjavík · Sími 535 2100
www.plusferdir.is
2 fyrir 1
TILBOÐ
Bókaðu strax besta
Plúsferðaverðið
30. maí
31. maí
29. maí
29.950kr.
29.770kr.
30. maí 29.980kr.
29.990kr.
NÝTT LÍF Noni fæddist í dýragarði í Indó-
nesíu um síðustu helgi. Hún sést hér í fylgd
móður sinar, Intan. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
GRÆNLAND Lögreglan í Nuuk á
Grænlandi rannsakar mál tveggja
manna sem grunaðir eru um kyn-
ferðisofbeldi gegn samtals yfir
fimmtíu börnum.
Mennirnir tveir voru hand-
teknir, en síðan hefur annar þeirra
framið sjálfsvíg í fangaklefa
sínum, að því er kemur fram í
fréttum danska blaðsins BT.
Grunur um fyrra málið vaknaði
í mars þegar starfsmenn bóka-
safns Nuuk heyrðu börn tala
saman. Þegar farið var að rann-
saka það mál vaknaði grunur um
hið síðara í apríl.
Börnin eru frá sex ára og upp
úr, en svo virðist sem annar mað-
urinn hafi fremur ráðist gegn
stúlkum en hinn gegn drengjum.
Yfirmaður félagsmálastofnunar í
Nuuk, Vibeke Møller Jensen, segir
að á milli fjörutíu og fimmtíu fjöl-
skyldur tengist þessu máli á einn
eða annan hátt.
Møller Jensen telur líklegt að
rannsóknin muni leiða í ljós að um
mun fleiri börn sé að ræða.
„Við frekari yfirheyrslur, og
þegar athygli manna beinist frek-
ar að þessum málum, munu meiri
upplýsingar koma fram í dagsljós-
ið,“ segir Møller Jensen. - smk
Tveir grunaðir barnaníðingar á Grænlandi:
Yfir 50 börn talin fórnarlömb
BRETLAND, AP Fjöldi þeirra sem
sóttu um breskan ríkisborgara-
rétt jókst á árinu 2005 um 64 pró-
sent frá árinu á undan. Þetta
kemur fram í nýbirtum tölum frá
breska innanríkisráðuneytinu.
Fjölgunin er rakin fyrst og
fremst til þess að innflytjendur
hafi viljað sækja um áður en ný
lög tóku gildi sem hertu skilyrðin
fyrir veitingu ríkisborgararéttar.
Alls sóttu 217.475 manns um
breskan ríkisborgararétt í fyrra.
161.780 manns fengu hann.
Frá í nóvember hafa umsækj-
endur þurft að gangast undir próf
þar sem spurt er út í breska sögu,
siði og lög. - aa
Innflytjendur í Bretlandi:
Aukin sókn í
ríkisborgararétt
STJÓRNMÁL Háskóli Íslands hélt í
gær opið málþing um ráðningar
hjá ríkinu. Gunnar Helgi Kristins-
son, prófessor í stjórnmálafræði,
kynnti nýja rannsókn sína á tíðni
pólitískra stöðuveitinga á Íslandi.
Fram kom í máli Gunnars að
þótt mikið hefði verið rætt um pól-
itískar stöðuveitingar hér á landi
vissum við samt sem áður lítið um
þær. Erfitt hefur reynst að rann-
saka viðfangsefnið en Gunnar tók
þann pól í hæðina að rannsaka
stöðuveitingar yfir ákveðið tíma-
bil og máta þær inn í þrjú mis-
munandi líkön yfir opinberar
stöðuveitingar. Hið fyrsta kallar
hann klassíska skrifræðislíkanið
en það einkennist af því að opin-
berir starfsmenn njóta starfsör-
yggis og starfsframa en á móti
kemur að starfsmennirnir binda
sig hjá hinu opinbera alla starfs-
ævina.
Í faglega líkaninu skiptir fag-
leg hæfni mestu þegar til ráðning-
ar kemur en starfsaldur og reynsla
hjá hinu opinbera eru síður mikil-
væg og stöðuveitingar eru álíka
og þekkist hjá einkageiranum.
Að lokum er það pólitíska líkan-
ið en samkvæmt því eru pólitískar
stöðuveitingar lögmætar.
Gunnar skoðaði 111 stöðuveit-
ingar á árunum 2001 til 2005 til
æðstu starfa hjá hinu opinbera, en
82 af þeim voru stöður forstöðu-
manna ríkisstofnana. Síðan skoðaði
hann hvaða líkani, oft fleiri en einu,
hver stöðuveiting tilheyrði. Í ljós
kom að 44 prósent stöðuveitinga til-
heyrðu pólitíska líkaninu en að
sögn Gunnars var það líklega van-
mat. Flestar stöðuveitingarnar, 68
prósent, samrýmdust faglega lík-
aninu en 57 prósent skrifræðis-
líkaninu.
Niðurstaðan er sú að pólitískar
stöðuveitingar séu í dag á æðri stig-
um en áður, en tíðni þeirra svipuð.
Fyrir nokkrum áratugum voru slík-
ar stöðuveitingar algengari á lægri
stigum, en starf stjórnmálaflokk-
anna hefur verið að breytast og
þeir hafa núna minni þörf fyrir fót-
gönguliða, heldur treysta meira á
utanaðkomandi aðstoð við fylgis-
öflun.
Nánar má lesa um niðurstöður
rannsóknarinnar í vefritinu Stjórn-
mál og stjórnsýsla, en málþigið var
haldið í tilefni af útkomu nýjasta
tölublaðs þess. Gudrun@frettabladid.is
Pólitísk stöðuveiting
er ekki á undanhaldi
Ný rannsókn sýnir að pólitískum stöðuveitingum hefur ekki fækkað. Fjörutíu
og fjögur prósent stöðuveitinga sem skoðaðar voru eru talin af pólitískum toga.
PÓLITÍSKAR STÖÐUVEITINGAR Gunnar Helgi
Kristinsson skýrði í gær frá niðurstöðum
rannsóknar sinnar á pólitískum stöðuveit-
ingum. FRÉTTABLAÐIÐ/GUNNAR
FRÁ NUUK Íbúar í Nuuk á Grænlandi eru
harmi slegnir yfir fregnum af tveimur barna-
níðingum þar í bæ. NORDICPHOTOS/AFP