Fréttablaðið - 25.05.2006, Blaðsíða 12
12 25. maí 2006 FIMMTUDAGUR
Bókaðu bílinn heima
- og fáðu 500 Vildarpunkta
Ef þú bókar bílaleigubílinn heima á Íslandi
bíður hann þín á áfangastað. Hver leiga færir
þér 500 Vildarpunkta að auki. Bókaðu
bílinn núna í 50 50 600 og tryggðu þér meira
öryggi og betri þjónustu á ferðum þínum
erlendis hvert sem leið þín liggur.
50 50 600 • www.hertz.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
3
16
24
03
/2
00
6
Safnaðu
Vildarpunktum
INDJÁNAHÁTÍÐ Laura Bush, eiginkona
Bandaríkjaforseta, fylgist með tveimur
indjánakonum dansa á hátíð í Colorado í
Bandaríkjunum, sem haldin er í tilefni þess
að 100 ár eru liðin frá stofnun þjóðgarðsins
Mesa Verde. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SKÁK Íslenska kvennaliðið sigr-
aði Lúxemborg með tveimur
vinningi gegn einum í fjórðu
umferð Ólympíuskákmótsins á
Ítalíu í gær. Karlaliðið tapaði
hins vegar fyrir Spánverjum
með einum og hálfum vinningi
gegn tveimur og hálfum. Að fjór-
um umferðum loknum er karla-
liðið í kringum tuttuguasta sæti
en kvennaliðið í kringum sextug-
asta.
Karlaliðið hefur farið vel af
stað í mótinu og var taplaust þar
til í gær. Liðið er metið 27. í
styrkleikaröðinni en 140 þjóðir
taka þátt.
Kvennaliðið hefur á hinn bóg-
inn átt á brattann að sækja. Fyrir
mót var það metið í 55. sæti.
Hannes Hlífar Stefánsson og
Stefán Kristjánsson hafa báðir
teflt mjög vel á mótinu og hlotið
tvo og hálfan vinning í þremur
skákum. Þá hefur Helgi Ólafs-
son unnið báðar sínar skákir á
mótinu.
Guðlaug Þorsteinsdóttir hefur
fengið tvo og hálfan vinning úr
sínum fjórum skákum og Lenka
Ptacnikova einn og hálfan úr
þremur skákum.
Fimmta umferðin verður tefld
í dag en á föstudag er frí. Mótinu
lýkur 4. júní.
- bþs
Karlarnir meðal efstu þjóða á Ólympíuskákmótinu en konurnar neðan við miðju:
Sigur og tap í fjórðu umferð
Í ÞUNGUM ÞÖNKUM Hannes Hlífar Stefáns-
son hefur staðið sig vel á Ólympíuskákmót-
inu í Tórínó á Ítalíu.
STÚDENTAR Frá og með 1. júní mun
80 prósentum nýrra íbúða á Stúd-
entagörðum Félagsstofnunar stúd-
enta verða úthlutað til háskóla-
nema af höfuðborgarsvæðinu, en
þá taka nýjar úthlutunarreglur
gildi.
Hingað til hafa stúdentar af
landsbyggðinni haft forgang í
allar íbúðir og nemar af höfuð-
borgarsvæðinu því átt litla mögu-
leika á úthlutun. Þessu er ætlunin
er breyta og eftir breytinguna
mun fyrirkomulagið haldast
óbreytt „þar til eðlilegt jafnvægi
næst og framboð verður fullnægj-
andi“, eins og fram kemur í frétta-
tilkynningu frá FS. - sh
Reglum Stúdentagarða breytt:
Borgarbúar fái
áttatíu prósent
MENNTUN Erfitt er að skýra kynja-
muninn sem kom fram í Pisa-könn-
uninni í stærðfræði og lestri hjá
grunnskólabörnum hér á landi
2003. Strákar úti á landi voru sér-
staklega lélegir í stærðfræði og
lestri. Bæta þarf frammistöðu
fárra stráka til að jafna muninn
út.
Sérfræðingar á vegum Náms-
matsstofnunar hafa kannað hvers
vegna stelpurnar eru svona miklu
betri en strákarnir í stærðfræði og
lestri. Júlíus Björnsson forstöðu-
maður segir að rannsóknin sýni að
strákar úti á landi séu sérstaklega
slakir í stærðfræði og þeir dragi
meðaltal stráka niður.
„Það þarf að bæta frammistöðu
fárra stráka til að jafna þennan
mun út því að hóparnir eru svo litl-
ir. Við þurfum að grípa til aðgerða
til að hjálpa þeim sem eru lakastir,
ekki endilega öllum með sama
hætti þvert yfir línuna. Hæfnin er
mismunandi og kannski þarf aðra
aðferð til að hjálpa þeim sem eru
lakastir en þeim sem eru bestir.“
Skólarnir virðast ekki skipta
máli hvað árangur kynjanna varð-
ar. „Ef horfum á samræmd próf í
stærðfræði yfir tíu ára tímabil þá
er munurinn sveiflukenndur frá
ári til árs. Ef við horfum á allan
áratuginn er niðurstaðan nálægt
sú sama og í Pisa. Þetta gerir okkur
pínulítið erfitt fyrir og er í takt við
það sem skólar og kennarar segja
um að árgangar séu breytilegir. En
yfir lengri tíma og þvert á landið
er þetta stöðugt.“
Niðurstöður Pisa-könnunarinn-
ar 2003 eru í samræmi við niður-
stöður samræmdra prófa. Þótt
aðferðafræði við gerð prófanna sé
ólík eru niðurstöður varðandi
kynjamuninn svipaðar. Þetta styð-
ur réttmæti beggja prófa.
Guðmundur Kristmundsson,
dósent við Kennaraháskólann,
segir að kynjamunur komi víða
fram, ekki bara í stærðfræði eða
lestri. Íslendingar eigi sterka hefð
í lestrarkennslu en hefðin í að
kenna börnum lestur sem tæki til
náms sé ekki sterk. Ástæður kynja-
munar geti legið djúpt í samfélag-
inu, þær geti verið menningarleg-
ar og félagslegar. „Þetta er
spurning um uppeldi og menntun,“
segir hann.
Daníel Þorsteinsson, skólastjóri
í Ölduselsskóla, segir að hugsan-
lega hafi fjöldi kynjanna í hverj-
um árgangi einhver áhrif.
ghs@frettabladid.is
Strákar lélegir
í stærðfræði
Erfitt er að skýra kynjamuninn í stærðfræði og
lestri hjá grunnskólabörnum. Strákar á landsbyggð-
inni eru lélegir í stærðfræði og lestri en aðeins þarf
að bæta frammistöðu fárra til að jafna muninn út.
STRÁKAR Í STÆRÐFRÆÐI Kynjamunurinn í stærðfræði og lestri er sveiflukenndur frá ári til
árs en yfir lengri tíma litið og þvert yfir landið er kynjamunurinn stöðugur og skýr. Þessir
strákar tengjast efni fréttarinnar ekki beint. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA