Fréttablaðið - 25.05.2006, Blaðsíða 41
25. maí 2006 FIMMTUDAGUR4
Sýning á verkum Steinunnar
Sigurðardóttur fatahönnuðar
er opnuð í dag á Heimilisiðn-
aðarsafninu á Blönduósi.
„Við erum mjög stolt af því að
hafa fengið að setja upp verk
Steinunnar Sigurðardóttur,“ segir
Elín S. Sigurðardóttir, safnstjóri
Heimilisiðnaðarsafnsins. Hún
bendir á að Steinunn sé einn af
okkar fremstu hönnuðum enda
eigi hún glæstan feril að baki hjá
helstu fatahönnuðum heims, eins
og Gucci, Ralph Lauren, Calvin
Klein og La Perla og nú hafi hún
skapað sér sitt eigið nafn. Elín
segir líka gæta verulegra áhrifa
frá íslenska búningnum í hönnun
Steinunnar og þess vegna tengist
sýningin svo vel því sem fyrir er á
safninu. „Það er mjög sterkur
þráður þarna á milli þannig að
segja má að nútíð og fortíð kallist
á hér í okkar salarkynnum,“ segir
hún.
Listafólki hefur verið ætlað
sérstakt rými í heimilisiðnaðar-
safninu frá því það var stækkað
árið 2003 og þar hafa verið haldn-
ar fágðar og vandaðar sýningar.
Elín segir þessa hafa verið í undir-
búningi í nokkra mánuði. „Tíminn
frá hugmynd til veruleika er lík-
lega orðinn ár,“ segir hún og lýsir
fyrirkomulagi sýningarinnar
gegnum símann. „Við erum með
myndband um Steinunni í gangi
sem kallar fólk að, þar tekur hönn-
unin hennar við í opnu rými og í
enda salarins er búið að safna
þjóðbúningum safnsins saman. Ég
fékk konu frá Þjóðbúningastofu til
að koma norður og fara yfir alla
búningana svo þeir eru mjög fínir
og Guðrún Gunnarsdóttir, lista-
kona og textílhönnuður, hefur
notað sitt myndræna auga og stillt
þeim upp.“
Elín segir safnið verða opið
daglega frá 1. júní og sýningu
Steinunnar verða uppi við í allt
sumar. gun@frettabladid.is
Nútíð og fortíð kallast á
Það er mikill og vel búinn kvennafans sem
tilheyrir safninu.
Hönnun Steinunnar Sigurðardóttur verður til sýnis í Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi í
allt sumar.
Þessar hafa örugglega margt að segja hvor annarri. MYND/INGIBJÖRG BJÖRNSDÓTTIR
Jordi Labanda hefur vakið
mikla athygli fyrir myndir sín-
ar og sýn á nútímasamfélag.
Jordi fæddist í Úrúgvæ en fluttist
ungur til Barcelona þar sem hann
hefur búið síðan. Hann útskrifað-
ist úr iðnaðarhönnun og fljótlega
eftir það fóru verk hans að birtast
í tímaritum úti um allan heim.
Myndir Jordi sýna nútíma
manneskjur sem lifa hátt og hrær-
ast í heimi tískunnar. Sýn hans á
nútímann, mannúð, list og samfé-
lagið er oft á tímum skopleg en um
leið sönn. Fáir teiknarar hafa sett
mark sitt jafn skýrt á tískuna og
Jordi en hægt er fá flíkur með
myndum hans í hátískuverslun-
um.
Jordi Labanda
Unga fólkið eins og Jordi Labanda sér það.
Laugavegi 70
www.hsh.ehf . is
Útsala
20% aukaafsláttur af útsöluvörum.
RÝMINGAR-
SALA
V E R S L U N I N
F L Y T U R
Lífræn og rakagefandi
sturtusápa fyrir
allar hú›ger›ir
» FRÁBÆR SJÓNVARPSDAGSKRÁ ALLA DAGA FÖ
ST
U
D
A
G
U
R
LA
U
G
A
R
D
A
G
U
R
SU
N
N
U
D
A
G
U
R
M
Á
N
U
D
A
G
U
R
ÞR
IÐ
JU
D
A
G
U
R
M
IÐ
VI
K
U
D
A
G
U
R
FI
M
M
TU
D
A
G
U
R
5 DÁLKAR
MÁ BIRTAST HVAÐA DAG SEM ER
KUBBAR TIL
UPPFYLLINGAR Í
SMÁAR
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
BIRTUkubbar-AUGL TIL UPPF 6.10.2005 20:43 Page 2
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Trippen, skóverslun, Rauðarárstíg 14, 101 Reykjavík. trippen.is
Nashyrningurinn og
Eldurinn komnir