Fréttablaðið - 25.05.2006, Blaðsíða 45
25. maí 2006 FIMMTUDAGUR8
Breytingar á heimilum þurfa
ekki að vera miklar til að
skipta máli. Huga þarf að því
að hafa hluti á réttum stöðum í
réttu samhengi.
Undanfarin ár hefur orðið gríðar-
leg breyting á heimilishaldi fólks.
Aðgangur að ódýrum, fallegum og
áhugaverðum hlutum er miklu auð-
veldari sem þýðir að algengara er
að fólk vilji breyta og bæta
umhverfi sitt og hafi ráð á því. En
breytingarnar þurfa ekki að vera
miklar til að skipta máli. Vandlega
uppstilltir hlutir, á réttum stöðum
og í góðu samhengi eru gjarnan
aðalatriðið.
Manninum er í blóð borið að
vilja reglulega gera breytingar á
lífi sínu og umhverfi, þótt í mis-
miklum mæli sé. Ekkert er endan-
legt þegar kemur að umhverfi
heimilisins. Við verðum leið á því
eins og öðru, finnst heimilið, her-
bergið, veggurinn eða liturinn ekki
lengur vekja vellíðan. Okkur lang-
ar að breyta til en vitum ekki
hvernig.
Staðreyndin er hins vegar sú að
litlu breytingarnar, tilfæringarnar,
geta gert ótrúlega mikið. Bara það
að endurraða hlutum í hillu, glugga,
á skenk eða á sófaborðinu gerir
heilmikið og jafnvel enn meira sé
ákveðið jafnvægi milli hlutanna og
samhengi þeirra á milli. Hlutirnir
virka ef þér líkar þeir og þú veist
hvernig þú vilt hafa þá. Þetta er
góð regla að hafa í huga.
Flestir eiga ótal smáhluti,
bækur, myndir og listmuni sem
þeir vilja hafa uppi en finnst þeir
ekki njóta sín. Það að blanda þess-
um hlutum saman getur verið það
sem þarf til að breyta því. Ákveðin
samsuða er nefnilega málið – raða
saman hlutum, púsla, búa til
„grúppur“ og athuga hvernig þær
fara saman. Hvert sjónarhorn
heimilisins ætti að vekja athygli
manns. hallabara@centrum.is
Huga ber að samstæðum hlutum og staðsetja það ósamstæða í nálægð. Til dæmis einn
háan hlut með nokkrum lágum svo hæðin verði atriði í uppstillingunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/GUNNAR SVERRISSON.
Athyglisverð sjónarhorn
Varast skal að gera uppstillingar of augljósar. Finna frekar andstæður sem segja má að passi
saman.
Hæð, breidd, áferð og litur eru fjórir þættir sem gera uppstillingu áhugaverða.
Oft getur verið betra að raða upp hlutum
ef fjöldinn er oddatala. Sléttar tölur geta
orðið of symmetrískar.
PUNKTAR
Þegar kemur að því að breyta og
stilla upp hlutum er gott að hafa
eftirfarandi í huga:
■ Tæma þann stað sem á að breyta,
hugsa um liti, áferð og lýsingu. Velta
því fyrir sér sem maður á og hvað
gæti vantað. Stundum vantar bara
örlítið eins og að færa einn hlut
aðeins lengra frá hinum.
■ Huga að samstæðum hlutum og
staðsetja það ósamstæða í nálægð.
T.d. einn háan hlut með nokkrum
lágum svo hæðin verði atriði í upp-
stillingunni.
■ Oft er einn hlutur aðalatriðið og
gott að byggja út frá honum. Varast
skal að byggja of mikið og þétt.
Það þarf ekki að fylla allt plássið,
uppstillingin nýtur sín betur ef hún
fær andrými.
■ Varast skal að gera uppstillingar
of augljósar. Finna frekar andsæður
sem segja má að passi saman.
■ Oft getur verið betra að raða upp
hlutum ef fjöldinn er oddatala. Slétt-
tölur geta orðið of symmetrískar.
■ Hæð, breidd, áferð og litur eru
fjórir þættir sem gera uppstillingu
áhugaverða.
• Skúringafatan úr sögunni
• Alltaf tilbúið til notkunar
• Gólfin þorna á augabragði
• Fljótlegt og þægilegt
Húsasmiðjan - Byko - Daggir Akureyri - Áfangar Keflavík - Brimnes
Vestmannaeyjum - Fjarðarkaup - Litabúðin Ólafsvík - Parket og gólf - Rými -
SR byggingavörur Siglufirði - Rafsjá Sauðárkróki - Skipavík Stykkishólmi - Nesbakki
Neskaupsstað -Byggt og búið - Takk hreinlæti.
Heildsöludreifing: Ræstivörur ehf.
Fyrir skemstu flutti verslunin
Next sig um set í stærra hús-
næði í Kringlunni. Meðal þess
sem bæst hefur við er heimilis-
deild.
Heimilisdeildin ku vera eina Next-
heimilisdeildin utan Bretlands.
Samkvæmt Tinnu Jóhannsdóttur,
verslunarstjóra Next, er þetta þó
ekki í fyrsta sinn sem slík deild
hefur verið opnuð utan Bretlands.
Þeim hefur ekki gengið sem skildi
og öllum verið lokað. Eigendur
Next á Íslandi eru því að taka
nokkra áhættu. „Þetta er ný til-
raun til að láta þetta virka fyrir
utan Bretland,“ segir Tinna. „Í
Bretlandi fara allt að 30 prósent af
gólffleti Next-búða undir heimilis-
deildina. Við höfum verið að taka
inn einn og einn hlut, kertastjaka,
ramma og slíkt en okkur fannst
rétti tíminn til að taka skrefið til
fulls nú og gera hlutina fyrir
alvöru.“
Úti í Bretlandi er hægt að fá
sófasett og önnur húsgögn í Next
en eigendur hérlendis mátu stöð-
una svo að ekki væri markaður
fyrir slíkt hér á landi. Það má því
segja að um brot af því besta sé að
ræða. „Við höfum mikið með að
segja hvaða vörur við tökum inn,
hvaða línur við fáum sendar. Við
tökum aðallega sængurföt og
handklæði og aðrar smávörur. Við
erum ekki með nærri því allt sem
Next bíður upp á,“ segir Tinna.
- tg
Eina deildin
utan Bretlands
Á heimilisdeildinni er að finna ýmsar smávörur, handklæði og sængurföt. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN