Fréttablaðið - 25.05.2006, Síða 59

Fréttablaðið - 25.05.2006, Síða 59
Bæjarhrauni 10 - Hafnarfirði - Sími 520 7500 - www.hraunhamar.is Magnús Emilsson, löggiltur fasteignasali Fr um SUMARHÚS MÖÐRUVELLIR KJÓS Fallegt 50 fm. hús í landi Möðruvalla, rétt ofan við Meðalfells- vatn í Kjós. Húsinu fylgir gott 12 fm. geymsluhús. Tvö svefn- herb, góð stofa, timburverönd, frábært útsýni. Vandað hús á góðum stað. Verð 6,9 millj. Hafnarfirði, Fjarðargötu 17 Sími 520 2600, Fax 520 2601 Netfang as@as.is Heimasíða www.as.is Opið virka daga kl. 9–18 VÍKURBRAUT 42 - GRINDAVÍK OPIÐ HÚS FIMMTUDAG – SUNNUDAGS KL. 16-20 Fr u m Kári Halldórsson, löggiltur fasteignasali Falleg 108 fm neðri sérhæð í tvíbýli ásamt 48 fm bílskúr, sam- tals 156 fm. SÉRINNGANGUR. Falleg og mikið endurnýjuð eign s.s. gólfefni og innréttingar. Möguleiki þremur svefnherbergjum. LAUS VIÐ KAUPSAMNING. Verð 17,8 millj. Róbert og Margrét taka á móti gestum s: 426-8679 / 869-5834 FASTEIGNA- MARKAÐURINN Jón Guðmundsson, sölustj. og lögg. fast.sali. Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fast.sali. ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - www.fastmark.is Mjög falleg, vel skipulögð og björt 71 fm íbúð á 3. hæð (efstu) auk 3,1 fm geymslu á ba- klóð. Svalir til suð- vesturs útaf stofu. Íbúðin skiptist í hol, rúmgóða stofu, stórt eldhús með hvítum innrétting- um, nýlega endur- nýjað flísalagt bað- herbergi og tvö stór herbergi. Þvottaað- staða í baðherbergi. Verð 17,9 millj. Grettisgata Góð 3ja herb. íbúð Fr u m Auglýsing um nýjar og breyttar deiliskipulagsáætlanir í Reykjavík Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýstar tillögur að nýjum og breyttum deiliskipulagsáætlunum í Reykjavík. Umferðaskipulag Tillaga að umferðarskipulagi og stefnumörkun að uppbyggingu á svæði sem afmarkast til vesturs af Snorrabraut, til norðurs af Borgartúni, til austurs af Höfðatúni og Mjölnisholti og til suðurs af Laugavegi milli Höfðatúns og Mjölnisholts, Brautarholti, Stórholti og Grettisgötu austan Snorrabrautar. Reitir á svæðinu eru skilgreindir sem miðborgarsvæði, miðsvæði og íbúðarsvæði. Í tillögunni er m.a. gert ráð fyrir eftirfarandi breytingum á umferðarskipulagi næstu gatna í nágrenni Hlemms. Umferð af Laugavegi austan Höfðatúns er beint inn á Höfðatún. Gert ráð fyrir hringtorgum við gatnamót Höfðatúns og Skúlagötu, Höfðatúns og Borgatúns og einnig er lagt til að hringtorgið sem áður var á gatnamótum Skúlagötu, Borgatúns og Snorrabrautar, Skúlatorg, verði endurgert í breyttri mynd. Lagt er til að gerð verði sérstök hjólrein frá Hlemmi og upp að Höfðatúni auk þess sem lögð er áhersla á gott göngustígakerfi. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Lögreglustöðvarreitur – 1.222.0 Tillaga að deiliskipulagi fyrir reit 1.222.0, Lögreglustöðvarreit, sem afmarkast af Snorrabraut, Skúlagötu, Rauðarárstíg og Hverfisgötu. Í tillögunni er m.a. lagt til að heimilt verði að byggja randbyggð á öllum reitnum innan uppgefins byggingarreits, þrjár til sex hæðir. Jafnframt verði heimilt að gera bílastæðakjallara á öllum reitnum, allt að þrjár hæðir, með innkeyrslu frá Skúlagötu. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Skúlagarðsreitur vestari – 1.222.1 Tillaga að deiliskipulagi fyrir reit 1.222.1, Skúlagarðsreit vestari, sem afmarkast af Rauðarárstíg, Skúlagötu, Laugavegi, Hverfisgötu og til austurs af reitamörkum Skúlagarðsreits eystri. Í tillögunni er m.a. gert ráð fyrir að heimilt verði að byggja í skörð og stækka hús innan uppgefinna byggingarreita. Jafnframt er gefin heimild til minniháttar breytinga s.s. útbygginga og svala á þeim húsum þar sem ekki eru svalir fyrir. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Skúlagarðsreitur eystri – 1.222.2 Tillaga að deiliskipulagi fyrir reit 1.222.2, Skúlagarðsreit eystri, sem afmarkast af Skúlagötu, Höfðatúni, Laugavegi, Hverfisgötu og til vesturs af reitamörkum Skúlagarðsreits vestari. Í tillögunni er m.a. gert ráð fyrir að heimilt verði að byggja í skörð og stækka hús innan uppgefinna byggingarreita. Jafnframt er gefin heimild til minniháttar breytinga s.s. útbygginga og svala á þeim húsum þar sem ekki eru svalir fyrir. Á austasta hluta svæðisins eru gerðar tillögur að breytingum á lóðamörkum nokkurra lóða. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Tryggingastofnunarreitur – 1.240.1 Tillaga að breytingu deiliskipulagi fyrir reit 1.240.1, Tryggingastofnunarreit, sem afmarkast af Laugavegi, Rauðarárstíg, Grettisgötu og Snorrabraut. Í fyrirliggjandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi reitsins er m.a. gert ráð fyrir að atvinnuhúsnæði að Grettisgötu 87 verði rifið og heimilt verði að reisa íbúðarhús meðfram Grettisgötu, þrjár til fjórar hæðir. Gert er ráð fyrir bílakjallara á stórum hluta reitsins. Jafnframt er gefin heimild til minniháttar breytinga s.s. skyggni og svalir á þeim húsum þar sem ekki eru svalir fyrir. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Bankareitur – 1.240.2 Tillaga að deiliskipulagi fyrir reit 1.240.2, Bankareits sem afmarkast af Laugavegi, Þverholti, Stórholti og Rauðarárstíg. Í tillögunni er m.a. gert ráð fyrir að gefin verði heimild til að reisa nýbyggingar við Stórholt og Þverholt og gera bílakjallara undir þeim. Jafnframt er lagt til að timburhúsið sem nú stendur að Hverfisgötu 125 verði flutt yfir á torg á sameinaðri lóð Laugavegar 122 og 124. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Hampiðjureitir – 1.240.1 og 1.241.1 Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir reit 1.240.1 og nýju deiliskipulagi fyrir reit 1.241.1 Hampiðjureit. Svæðin afmarkast af Laugavegi, Mjölnisholti, Brautarholti, Stórholti og Þverholti. Í tillögunni er m.a. gert ráð fyrir að lóðir við Þverholt, Brautarholt og Stakkholt, svo kallaðar Hampiðjulóðir, verði sameinaðar og heimiluð uppbygging á sameinaðri lóð, tvær til sjö hæðir. Einnig er gert ráð fyrir að lóðirnar Mjölnisholt 12 og 14 verði sameinaðar og heimiluð uppbygging á þeim. Gert er ráð fyrir allt að tveggja hæða bílakjöllurum undir báðum lóðum. Jafnframt er gefin heimild til hækkunar nokkurra húsa auk þess sem heimilt verður að gera minniháttar breytingar á húsum, s.s. skyggni, svalir og kvisti. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Laugarásbíó - Hrafnista Tillaga að breytingu deiliskipulagi fyrir Laugarásbíó - Hrafnistu Í tillögunni er m.a. gert ráð fyrir að byggja nýjan bíósal til austurs frá núverandi bíói, tenging við núverandi forsal yrði um svæði þar sem salerni eru nú. Þau yrðu fjarlægð og ný reist við norðurhlið nýbyggingar. Heildarstærð nýbyggingar verður u.þ.b. 500m². Einnig er sótt um að lækka landhæð við álmu A, D og F til að auðvelda aðkomu fyrir sjúkrabifreiðar og aðra þjónustustarfsemi. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Sundahöfn – Skarfabakki Tillaga að deiliskipulagi fyrir Skarfabakka við Sundahöfn. Í tillögunni er m.a. gert ráð fyrir móttöku og athafnasvæði fyrir ferju og smábáta, vörugeymslur, skrifstofur og þjónustu ásamt þjónustusvæði vegna móttöku skemmtiferðaskipa. Lóðir sem falla undir þetta deiliskipulag eru Skarfagarður 1-3, Skarfagarður 2, 4, 6 og 8 ásamt Korngarði 1-3. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 24. maí til og með 5. júlí 2006. Einnig má sjá tillögurnar á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs (merkt skipulagsfulltrúa) eigi síðar en 5. júlí 2006. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. Reykjavík, 24. maí 2006 Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur Reykjavíkurborg Skipulags- og byggingarsvið BORGARTÚN 3 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 3000 - MYNDSENDIR 411 3090 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.