Fréttablaðið - 25.05.2006, Síða 79
25. maí 2006 FIMMTUDAGUR54
maturogvin@frettabladid.is
VERT AÐ SPÁ Í
Bordeaux-vín eru á mjög hagstæðu verði hér á landi. Innflytj-
endur verið duglegir að fá kvóta og álagningin verið hófleg.
Í fríhöfninni gerast vart betri kaup en í gæðavínum, þar er
30 prósenta verðmunurinn farinn að skila sér. Château
Cantelys kostar t.d. einungis 1.700 kr.
ÞRÚGUR GLEÐINNAR
> EINAR LOGI VIGNISSON
N† VÖRU- OG fiJÓNUSTU-
SKRÁ Á VISIR.IS/ALLT
... sem flig vantar í
n‡ja húsnæ›i›
upp á alvöru jurtate frá
Jurtaapóteki Kolbrúnu
grasalæknis. Þar er hægt
að kaupa te sem hefur hina
ýmsu virkni. Sumt róar,
annað frískar og kætir og enn
annað eykur frjósemi.
> Helltu...
Kjötbollur sem upprunnar
eru í eldhúsi leikkonunn-
ar Sophiu Loren rata oft á
matardiska hjá forverðinum
Karenu Sigurkarlsdóttur.
„Ég smakkaði þessar kjötbollur
fyrst hjá ömmu minni en hún fékk
uppskriftina úr uppskriftarbók
sem Sophia Loren gaf út árið
1998,“ segir Karen sem starfar
sem forvörður hjá Þjóðminjasafni
Íslands. „Þessar kjötbollur hafa
verið afar vinsælar í minni fjöl-
skyldu enda hafa margir fengið
uppskriftina. Þær eru mjög sað-
samar og henta bæði börnum og
fullorðnum.“ Bollurnar eru born-
ar fram á ítalska vísu með spag-
ettí, tómatsósu og nóg af par-
mesan. „Sophia Loren býr líklega
til sitt eigið spagettí en ég læt mér
nægja að kaupa það tilbúið,“ segir
Karen og mælir með speltspagettí
frá Sollu á Grænum kosti fyrir þá
sem eru að hugsa um hollustuna.
Karen segist vera mjög hrifin
af ítölskum og frönskum mat en
undanfarið hefur hún þó aðallega
verið að prófa sig áfram með
bygg, spelti og aðrar hollustuvör-
ur í eldhúsinu. „Svo var ég að eign-
ast safapressu sem er það allra
besta tæki sem komið hefur hingað
inn í eldhúsið.“
Snaefridur@frettabladid.is
KJÖTBOLLUR SOPHIU LOREN
(fyrir 4-5)
200 gr hvítt brauð
1 b mjólk
600 gr nautahakk
1/4 b parmesanostur
2 stór egg
slatti af steinselju
salt, pipar og olífuolía
Brauðið er tætt niður og látið
liggja í mjólkinni í 30 mín. Rest-
inni er síðan blandað saman við
og litlar bollur eru búnar til. Boll-
urnar eru gegnumsteiktar í olíu á
pönnu. Borið fram með spagettí,
basiltómatsósu og nóg af
parmesanosti.
Basil tómatsósa
6 msk af olívuolíu
5 hvítlauksrif
2 dósir niðursoðnir tómatar
nóg af fersku basil
salt, pipar, olífuolía
Hvítlaukurinn er skorinn smátt
og steiktur í olíu. Restinni af hrá-
efnunum er bætt út í.
Kjötbollur að hætti
Sophiu Loren
SAFAPRESSAN Í UPPÁHALDI Karen elskar kjötbollur Sophiu Loren en þykir ekki síður vænt
um nýjasta fjölskyldumeðliminn, eðalsafapressu sem hún keypti í versluninni Kaffiboð. Á
hverjum morgni pressar hún epli og engifer saman og skellir í sig. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Lukku Láki í Grindavík
minnir að mörgu leyti á krá
í Villta vestrinu með sínar
dökku viðarinnréttingar og
bjórtunnur sem notaðar eru sem sæti við
barinn. Staðurinn fékk nafn sitt þegar nýr
eigandi tók við staðnum en sá hinn sami
heitir Láki og því þótti nafnið Lukku Láki
alveg kjörið. Á Lukku Láka er ekki bara
hægt að seðja sárasta hungrið. Þar eru
reglulega haldnar ýmsar uppákomur eins
og böll og sportkvöld. Á góðviðrisdögum
er hægt að sitja utandyra á palli fyrir fram-
an húsið. Staðurinn er frábær áfangastað-
ur fyrir þá sem vilja taka sunnudagsbíltúr
um Suðurnesin. Skemmtilega hallæris-
legur staður með sál.
Matseðillinn: Matseðillinn er djúsí
með góðu úrvali af fituríkri fæðu
sem hentar vel fyrir svanga iðnaðar-
menn og þá sem eru þunnir. Má þar
nefna hamborgara, djúpsteikta ýsu,
grísasamloku og kótilettur. Einnig er
boðið upp á ýmsa smárétti á borð við
nachos, jalapeno og kjúklinganagga.
Börnin gleymast ekki heldur því þeim
er boðið upp á barnahamborgara á
550 kr. Nautasteik með bakaðri kart-
öflu er einnig á seðlinum vilji maður
aðeins fínni mat.
Verðið: Verðlagið er fínt á Lukku Láka
og þjónustan góð. 9 tommu pitsa með
áleggi að eigin vali kostar 1000 krón-
ur og hamborgarinn er á 750 kall. Sex
kjúklinganaggar eru á 550 kr.
Vinsælast: Þeir sem eru í hollustuhug-
leiðingum fara ekki á Lukku Láka, enda
er staðurinn þekktur fyrir allt annað en
sósuleysi og fituskertan mat. Prófið
endilega hamborgara staðarins. Þeim,
sem eru á hraðferð, er bent á að það
er kjörið að stoppa á Lukku Láka þótt
ekki sé nema bara fyrir einn kaffibolla.
VEITINGASTAÐURINN LUKKU LÁKI, HAFNARGÖTU 6, GRINDAVÍK S. 426 9999
Villta vestrið á Suðurnesjum
Ég er heldur lélegur í frönskum vínum. Skilst á vínspekingum að ég
sé heldur seinþroska hvað það varðar. Enda líta þeir sem telja sig
hafa vit á frönskum vínum gjarnan niður á allt annað úr hásæti sínu
enda lýkur flestum samræðum um bestu vín veraldar á samdóma
áliti um að enginn komist með tærnar þar sem Fransmennirnir hafa
hælana. Þetta fer líklega nærri lagi en almenningur er ekki að kaupa
spekina. Það sýnir undanhald franskra vína nær alls staðar í veröld-
inni. Bæði hafa bestu vín Frakklands hækkað svo í verði að þau eru
ekki á færi almennings og ódýrari vínin hafa vikið fyrir innrás vína
frá Nýja-heiminum.
Eina franska vínfyrirtækið sem hefur náð að synda á móti straumn-
um í ódýrari flórunni er J.P. Chenet, markaðsdrifið fyrirtæki sem er
eitt af stærstu vínfyrirtækjum heims. Að þeim frátöldum sýna fá
fyrirtæki lit og slagurinn í ódýrari geiranum virðist Frökkum tapað-
ur. Í betri vínum er Frakkland hins vegar alltaf Frakkland. „Upphaf
og endir alls í vínheiminum“, eins og Steingrímur Sigurgeirs-
son orðar það í þeirri fínu bók „Heimur vínsins“. Betri
frönsku vínin eru dýr en þó má fá fyrirtaks vín frá bestu
framleiðendunum á kringum tvö þúsund krónur. Fyrir þá
sem vilja smakka á því besta eru franskir þemadagar
bestu veitingastaðanna góður kostur. Þar er gjarnan boðið
upp á glas af víni með hverjum rétti. Oft er boðið upp á
nokkur vín frá sama framleiðanda en framleiðendurnir
eiga flestir fleiri en eitt vínhús og eru vínin seld undir
ólíkum heitum. Þetta útskýra betri vínþjónar svo skil-
merkilega fyrir gestum.
Slíkir dagar eru í uppsiglingu á Hótel Holti en 1. til 4.
júní verða Bordeaux dagar í tilefni heimsóknar
Daniel og Florence Cathiard sem eiga vínhúsið
Château Smith Haut Lafitte. Daniel Cathiard var á
árum áður frægur skíðakappi og meðlimur í franska
ólympíulandsliðinu ásamt Jean-Claude Killy árið
1968 en hefur átt vínhúsið frá árinu 1990. Skotinn
George Smith keypti það á 18. öld og gaf því nafnið
en margir Bretar áttu vínhús í Bordeaux. Vínhúsin
þeirra eru þrjú, Smith Haut Lafitte, Les Hauts de
Smith og Château Cantelys.
Skíðakappi frá Bordeaux
Hvaða matar gætirðu síst verið án?
Ég fer ekki út á morgnana fyrr en ég fæ
kókapuffs og cheerios í bland.
Fyrsta minning um mat?
Hafragrautur í Hjörtsey.
Besta máltíð sem þú hefur fengið?
Það er klárlega steikt hrefnukjöt að hætti
tengdaforeldra minna. Hrefnukjöt er
stórlega vanmetin afurð hér á landi og er
t.a.m. geggjað á grillið, svo ég tali nú ekki
um hvað það er hollt. Athugið að það
er samt bannað að steikja kjötið of mikið!
Er einhver matur sem þér finnst
vondur?
Maður með mitt vaxtarlag hlýtur bara að
borða hvað sem er!
Leyndarmál úr eldhússkápnum?
Vilko kakósúpa.
Hvað borðar þú til þess að láta þér líða
betur?
Grillaðar svínalundir fylltar með piparosti
koma mér alltaf í gott skap. Mér líður
rosalega vel svona rétt á meðan ég borða
þær, en svo líður mér geðveikt illa á eftir.
Ég hef nefnilega ofnæmi fyrir svínakjöti
en ég held alltaf að ég sé kominn yfir
það.
Hvað áttu alltaf í ísskápnum?
Ég á alltaf Bónusskinkuna sem amma gaf
mér um síðustu jól í ísskápnum. Ég verð
að fara að henda henni.
Ef þú yrðir fastur á eyðieyju hvað
tækirðu með þér?
Tengdó og hrefnubyssuna.
Hvað er það skrítnasta sem
þú hefur borðað?
Ég borðaði sand þegar ég var
tveggja ára, en annars fór ég eitt
sinn á kínverskt veitingahús í
Englandi og borðaði
þar fjöldann allan
af réttum sem ég
veit ekkert hvað
var. En miðað
við beina-
bygginguna á
skepnunni í
aðalréttinum
þá var þetta
örugglega ekki
öndin sem
við pöntuðum.
Samt alveg ágætt.
MATGÆÐINGURINN: SUMARLIÐI HELGASON HVANNDAL BASSALEIKARI
Hrefnukjöt er stórlega vanmetið