Fréttablaðið - 25.05.2006, Page 80
FIMMTUDAGUR 25. maí 2006 55
Um hvítasunnuhelgina verður nýtt
hótel og veitingahús opnað í Flatey
á Breiðafirði undir nafninu Hótel
Flatey. Fimm aðilar hafa tekið sig
saman og stofnað einkahlutafélag
um reksturinn en hugmyndin er að
bjóða gestum Flateyjar upp á vina-
legar vistaverur og fyrsta flokks
veitingar. Veitingastaðurinn er til
húsa í Samkomuhúsinu en gistiað-
staðan sem telur fimm herbergi er
í Eyjólfspakkhúsi. Á næsta ári bæt-
ast svo við átta gistiherbergi í
Stóra-pakkhúsi en í því húsi á einn-
ig að opna bar. Að sögn Ingibjargar
Á. Pétursdóttur, sem er einn af eig-
endum Hótel Flateyjar, verður fisk-
ur úr Breiðafirðinum áberandi á
matseðlinum sem og sjófugl. „Svo
bjóðum við upp á Blinis, sem eru
rússneskar lummur með lauk, sýrð-
um rjóma og kavíar,“ segir Ing-
björg sem lofar einnig ýmiss konar
skemmtidagskrá í Samkomuhúsinu
í sumar. Þar er stórt svið og munu
bæði leikarar og tónlistarfólk nýta
sér það. Á vegum hótelsins verður
einnig rekin kajakleiga í sumar í
samstarfi við Söguna í Stykkis-
hólmi. Það má því búast við líflegu
sumri í Flatey. - snæ
Flatey kitlar bragðlaukana
Ný rannsókn hefur leitt í ljós að
mjólkurvörur geti haft mikil áhrif
á frjósemi kvenna.
Samkvæmt BBC
hafa rannsóknir
sýnt að konur sem
drekka mjólk eða
neyta annarra
mjólkurvara eiga
fimm sinnum meiri
möguleika á því að
eignast tvíbura en
konur sem ekki
neita slíkrar fæðu.
Vísindamenn telja að prótín
sem er að finna lifur kúa geti verið
orsökin fyrir því að konur eignist
tvíbura.
Mjólk eykur
frjósemi
Þessi mynd var tekin á dögunum
af írska rokkaranum Bono þegar
hann var staddur í Accra í Ghana.
Hér er hann að kynna sér afríska
matargerð og var honum boðinn
bæði fiskur og kjöt af grillinu. U2
söngvarinn er í 10 daga ferð um
Afríku þar sem hann mun ekki
bara gæða sér á afrískum krásum
heldur reyna að vekja athygli á
málefnum Afríku en Bono hefur
oftar en ekki kvartað yfir því að
vandamál Afríku fái litla athygli í
fjölmiðlum.
Bono í Afríku
NAMMI NAMM Má bjóða meistaranum afrískan grillmat? AP/KWASI KPODO
Margt hefur verið sagt um blessað
rauðvínið og nú segja sérfræðing-
ar að það geti bætt heyrnina. Rann-
sókn var gerð á þessu í Háskólan-
um í Michigan og kom þar í ljós að
þeir sem voru farnir að tapa heyrn
vegna aldurs höfðu mjög gott af
rauðvíni. Það sama gildir einnig
um grænt te og grænmeti. Það
sakar því ekki fyrir þá sem eru
farnir að heyra verr en áður að
prófa þessa þrjá flokka.
Rauðvín
bætir heyrn
RAUÐVÍN Er talið bæta heyrn fólks.
1 dálkur 9.9.2005 15:17 Page 2