Fréttablaðið - 25.05.2006, Qupperneq 85
Blásið verður til tónlistarveislu á
Nasa föstudaginn 26. maí á vegum
danska útgáfufyrirtækisins
Crunchy Frog.
Þar mun Jon Spencer úr banda-
rísku rokksveitinni Jon Spencer
Blues Explosion og fyrrum með-
limur Pussy Galore, koma fram
með rokkabillíbandi sínu Heavy
Trash. Með honum í hljómsveit-
inni er Matt Verta Ray sem var
áður í Madder Rose og Speedball
Baby.
Einnig kemur fram danska
hljómsveitin Powersolo, sem spil-
aði síðast hér á landi á Iceland Air-
waves síðasta haust, og The Trem-
olo Beer Gut. Íslenska sveitin Fræ
kemur fram sem sérstakur gestur.
Á síðasta ári sendi Heavy Trash
frá sér samnefnda plötu sem hefur
hlotið mikið lof gagnrýnenda fyrir
óð til rokksins í sinni einföldustu
mynd. Heavy Trash breytist úr
dúói í kvartett þegar þeir spila á
tónleikum og mun Yebo úr dönsku
sveitinni Junior Senior leika á
trommur og Kim úr Powersolo á
kontrabassa.
Þegar þeir Jon og Matt hittust í
New York fyrir nokkrum árum
ákváðu þeir að leita til grunnsins í
rokkinu og með það að leiðarljósi
stofnuðu þeir Heavy Trash. Þess
má geta að þegar Matt var að alast
upp í Kanada hélt hann því statt
og stöðugt fram við vini sína að
Johnny Cash væri svalari en Kiss.
Tónleikarnir á Íslandi eru þeir
fyrstu í tónleikaferð sveitarinnar
um Evrópu.
Jon Spencer hélt síðast tón-
leika hér á landi árið 1999 með
Jon Spencer Blues Explosion
ásamt hljómsveitinni Fugazi. „Það
var gaman. Við spiluðum á ein-
hverjum skrítnum klúbbi. Þetta
var áhugaverður staður og fólkið
tók okkur vel,“ segir hann. „Ég
hlakka mikið til að koma aftur.
Síðast þegar ég kom hafði ég ekki
mikinn tíma til að líta í kringum
mig en núna vona ég að félagar
mínir hjá Crunchy Frog sýni mér
land og þjóð betur.“
Á tónleikunum á föstudag
ætlar Heavy Trash að spila af
fyrstu plötu sinni auk einhverra
glænýrra laga. Einnig verður
Elvis-lag á boðstólnum, enda er
Jon mikill aðdáandi rokkkóngsins
eina og sanna. „Tónleikarnir verða
villtir. Þetta verður eins og í
barnaafmæli hjá 6 til 7 ára krökk-
um. Allt verður á fullu en munur-
inn er sá að þarna verður áfengi
haft um hönd,“ segir Jon í léttum
dúr.
Miðasala á tónlistarveisluna á
Nasa fer fram í verslunum Skíf-
unnar og á miði.is. Miðaverð er
1.950 krónur.
Eins og í barnaafmæli
HEAVY TRASH Hljómsveitin Heavy Trash er aðalnúmer Crunchy Frog-kvöldsins á Nasa á
föstudag.
Söngkonan Madonna hóf sína
fyrstu tónleikaferð um heiminn í
tvö ár í Los Angeles á dögunum.
Madonna, sem er þekkt fyrir að
ögra hlustendum sínum, hékk uppi
á krossi á tónleikunum, gerði lítið
úr Bush Bandaríkjaforseta og
hreyfði sig á kynæsandi hátt eins
og hennar er von og vísa.
Á meðal þeirra sem hlýddu á
tónleikana í Los Angeles voru
Kabbalah-gúrúinn Yehuda Berg,
Nicole Richie og leikkonan Rosie
O´Donnell.
Madonna, sem er 47 ára, mun
ferðast um Bandaríkin næstu tvo
mánuðina. Eftir það heldur hún til
Evrópu þar sem hún mun halda
tónleika í átta borgum. Einnig eru
fyrirhugaðir tónleikar í Japan um
miðjan september.
Talið er að miðasölutekjur af
tónleikaferðinni, sem nefnist Con-
fessions, muni verða yfir 14 millj-
arðir króna. Um yrði að ræða
tekjuhæstu tónleikaferð kvenkyns
listamanns en núverandi met er í
höndum Cher.
Tónleikaferð Madonnu hafin
MADONNA Söngkonan Madonna er byrjuð á nýrri tónleikaferð um heiminn til að fylgja
eftir sinni nýjustu plötu, Confessions on a Dancefloor. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
Spjallþáttastjórnandinn Oprah
Winfrey ætlar að skrifa bók um
baráttu sína við aukakílóin. Bókin
verður gefin út af Simon & Schust-
er og fær Oprah í sinn hlut rúmar
800 milljónir króna, sem er það
mesta sem nokkur hefur fengið
fyrir bók sem ekki er skáldskap-
arverk.
Oprah, sem er 52 ára, hefur
vegið á bilinu 65 til 95 kíló í gegn-
um árin og hefur margoft talað í
þætti sínum um vandamál sitt.
„Þetta er alltaf barátta. Mér fannst
ég öruggari þegar ég var þung.
Matur hefur alltaf verið mér mikil
huggun,“ sagði hún í nýlegu við-
tali.
Bók um
aukakílóin
OPRAH Spjallþáttastjórnandinn Oprah
Winfrey ætlar að skrifa bók um baráttu sína
við aukakílóin.
Kvennatríóið Sleater-Kinney, sem
heldur tónleika á Nasa sunnudag-
inn 4. júní, hefur verið á ferð um
Evrópu og haldið tónleika fyrir
fullu húsi í hvert sinn.
Sveitin er á tónleikaferð til að
kynna sína nýjustu plötu, The
Woods, og verða síðustu tónleik-
arnir í ferðinni hér á landi.
Sleater-Kinney, sem var stofn-
uð fyrir tíu árum, þykir ákaflega
öflug á tónleikum og hefur hún
m.a. komið fram með Pearl Jam.
Sveitin kemur frá Oregon í Banda-
ríkjunum. Hún hefur gefið út sjö
plötur á ferli sínum og hefur nýja
platan hlotið einróma lof gagnrýn-
enda.
Miðasala á tónleikana fer fram
á midi.is og í verslunum Skífunnar
og BT. Miðaverð er 2.500 kr. auk
miðagjalds. Hljómsveitirnar
Skakkamanage og Jakobínarína
sjá um upphitun.
Stutt í Sleat-
er-Kinney
SLEATER-KINNEY Kvennatríóið Sleater-
Kinney er á leiðinni til Íslands í fyrsta sinn.
Starfsmenntanám
vi› LBHÍ
Kynntu flér starfsmenntanám
vi› LBHÍ - www.lbhi.is
Búfræ›i *
Gar›yrkja
• Blómaskreytingar
• Gar›yrkjuframlei›sla *
• Skógur og umhverfi *
• Skrú›gar›yrkja
* fiessar brautir bjó›ast einnig
í fjarnámi
7
júní
Umsóknafrestur fyrir
skólavist 2006 / 07
Hvanneyri • 311 Borgarnes • s. 433 5000
www.lbhi.is
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
400 kr. í bíó!
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
DA VINCI CODE kl. 5, 8 og 10 B.I. 14 ÁRA
SKROLLA & SKELFIR Á SALTKRÁKU kl. 6 AÐEINS 400 KR.
CRY WOLF kl. 8 B.I. 16 ÁRA SÍÐUSTU SÝNINGAR
DA VINCI CODE kl. 3, 6 og 9 B.I. 14 ÁRA
RAUÐHETTA M/ENSKU TALI kl. 3 og 6
RAUÐHETTA M/ÍSLENSKU TALI kl. 3 og 6
PRIME kl. 3, 5.45, 8 og 10.15
BANDIDAS kl. 8 og 10 B.I. 10 ÁRA
CRY WOLF kl. 8 B.I. 16 ÁRA
THE HILLS HAVE EYES kl. 10 B.I. 16 ÁRA
DA VINCI CODE kl. 1, 2, 4, 5, 7, 8, 10 og 11 B.I. 14 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 2, 5, 8 og 11 B.I. 14 ÁRA
CRY WOLF kl. 8 og 10 B.I. 16 ÁRA
RAUÐHETTA M/ENSKU TALI kl. 6, 8 og 10
RAUÐHETTA M/ÍSL. TALI kl. 2 og 4
ÍSÖLD 2 M/ÍSLENSKU TALI kl. 2 og 4
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
STÆRSTA MYND ÁRSINS
- VJV, Topp5.is
- HJ MBL
- JÞP Blaðið
EFTIRSÓTTUSTU
BANKARAENINGJAR VILLTA
VESTURSINS ERU MAETTIR
FRÁBAER GRÍNSPENNUMYND
FRÁ SNILLINGNUM LUC BESSON
ÚLFUR... ÚLFUR...
ENGIN TRÚIR LYGARA
- ÞÓTT HANN SEGI SATT!
ÞAU BJUGGU TIL
MORÐINGJA SEM SNERIST
GEGN ÞEIM...!
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG
MAGNAÐUR SPENNUTYLLIR
SEM FÆR HÁRIN TIL AÐ RÍSA!
- Ó.Ö.H. - DV
- SV - MBL
- LIB. - TOPP5.IS
STRANGLEGA BÖNN
UÐ
INNAN 16 ÁRA
DYRAVERÐIR VIÐ
SALINN!
50.000
MANNS