Fréttablaðið - 25.05.2006, Page 92
VR gekkst fyrir könnun meðal félagsmanna sinna á að-
búnaði, vellíðan, og ánægju fólks á vinnustað.
Tæplega 11.000 félagsmenn tóku þátt í könnuninni;
Fyrirtæki ársins.
Niðurstaða könnunarinnar gerir okkur stolt og hreykin af
starfi okkar. Við skjótumst upp um 60 sæti, erum þar með:
Hástökkvari ársins.
Við erum stolt af okkar starfi
og viljum gjarnan leyfa þér
að njóta þess með okkur.
Virðing
Réttlæti
23
82
/
TA
K
TÍ
K
2
4.
5´
06
HÁSTÖKKVARI
ÁRSINS
FÓTBOLTI Guðjón Þórðarson, þjálf-
ari Notts County í Englandi, er við
það að ganga frá kaupum á fram-
herjanum Peter Thorne sem
kemur frá Norwich. Hinn 33 ára
gamli Thorne skoraði eitt mark í
21 leik fyrir Norwich í 1. deildinni
í ár.
Einhverjir muna sjálfsagt eftir
Thorne frá tíma hans hjá Stoke en
þar lék hann einmitt í langan tíma
undir stjórn Guðjóns og þótti einn
albesti leikmaður 2. deildarinnar.
Guðjón lýsti því einmitt sjálfur
yfir í viðtali við Fréttablaðið fyrir
skemmstu að Thorne væri besti
sóknarmaður sem hann hefði
nokkurn tíma þjálfað og mun hann
án efa reynast Notts County mikill
liðsstyrkur.
Spurning hvort Guðjón reyni
að fá fleiri fyrrum lærisveina sína
hjá Stoke?
- vig
Guðjón Þórðarson tekur til hendinni hjá Notts County þessa dagana:
Farinn að elta gamla lærisveina
frá Stoke City-tímablinu
Í ÞÁ GÖMLU GÓÐU DAGA... Guðjón sést hér vígreifur er hann tók við Stoke.
FÓTBOLTI Sigurður Sæberg Þor-
steinsson fékk í gær að fara frá
Val yfir í 1. deildarlið HK en hann
hefur samið við félagið út tímabil-
ið. Sigurður er 26 ára miðjumaður
en hann lék fimmtán leiki fyrir
Val í Landsbankadeildinni í fyrra.
Hann tilkynnti það síðan eftir
tímabilið að hann væri búinn að
ákveða að taka sér frí frá knatt-
spyrnu af persónulegum ástæð-
um.
Hann er annar leikmaðurinn
sem HK hefur fengið á stuttum
tíma, sem hefur leikið í úrvals-
deild en félagið fékk Theódór Ósk-
arsson í sínar raðir fyrir stuttu.
- egm
1. deildarlið HK að styrkjast:
HK fær Sigurð
Sæberg úr Val
FÓTBOLTI Allar líkur eru á því að
hollenski miðjumaðurinn Edgar
Davids gangi til liðs við sína gömlu
félaga í Ajax í sumar. Davids hóf
feril sinn hjá liðinu eftir að hafa
komið upp í gegnum margrómað
unglingakerfi félagsins.
„Ég er búinn að tala við Edgar
um að koma til okkar aftur og
honum fannst það vera frábær
hugmynd. Við erum með marga
unga leikmenn og hann getur miðl-
að af reynslu sinni til þeirra, sem
myndi styrkja liðið okkar til muna.
Hann getur spilað lykilhlutverk í
framtíð Ajax,“ sagði Henk ten
Cate, stjóri Ajax.
- hþh
Edgar Davids:
Líklega til Ajax
á nýjan leik
FIMMTUDAGUR 25. maí 2006 67
1-1
Grindavíkurvöllur, áhorf: 960 Kristinn Jakobsson (7)
1–0 Jóhann Þórhallsson (33.)
1–1 Guðmundur Steinarsson, víti (37.)
Grindavík Keflavík
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 5–16 (2–5)
Varin skot Helgi 4 – Ómar 1
Horn 2–4
Aukaspyrnur fengnar 14–10
Rangstöður 1–1
KEFLAVÍK 4–3–3
Ómar 6
Geoff Miles 3
(46. Milicevic 5)
Guðmundur Mete 6
Baldur Sig. 5
Guðjón Antoníus. 7
Jónas Guðni 7
Daniel Severino 6
(80. Ólafur Jón -)
Hólmar Örn 8
Samuelsen 6
Magnús Sverrir 7
Guðmundur Stein. 6
(71. Stefán Örn -)
*Maður leiksins
GRINDA. 4–4–2
Helgi 6
Michael Jóns. 5
(63. Orri Freyr 3)
David Hannah 6
Óðinn Árna. 7
Paul McShane 6
Jóhann Helgas. 6
Óli Stefán 7
(88. Eyþór Atli -)
Eysteinn Húni 5
Óskar Örn 6
(82. Andri Steinn -)
*Sinisa Kekic 8
Jóhann Þórhalls. 7
FÓTBOLTI Grannaliðin Grindavík og
Keflavík gerðu 1-1 jafntefli í gær
þar sem bæði mörkin voru skoruð
í nokkuð líflegum fyrri hálfleik.
Mounir Ahandour, sóknarmaður
Grindvíkinga, tók út leikbann og
Sinisa Kekic var því settur í
fremstu víglínu en hann var í
hjarta varnarinnar í síðasta leik. Í
Keflavíkurliðinu var Þórarinn
Kristjánsson enn meiddur og
sömuleiðis Buddy Farah og því
var Baldur Sigurðsson settur í
vörnina en hann byrjaði á miðj-
unni í síðasta leik.
Vindurinn lék stórt hlutverk í
leiknum, Keflvíkingar voru með
vindi í fyrri hálfleik og nýttu sér
það óspart til að skjóta. Alls áttu
þeir fjórtán skot í fyrri hálfleikn-
um en flest þeirra fóru talsvert
langt fram hjá markinu. Heima-
menn voru meira með boltann í
upphafi leiks og fengu vítaspyrnu
á elleftu mínútu þegar Kristinn
Jakobsson taldi að Baldur hefði
togað Jóhann Þórhallsson niður
innan teigs. Jóhann fór sjálfur á
vítapunktinn en skot hans fór í
þverslána og síðan yfir markið.
Guðmundur Steinarsson átti
skemmtilega hjólhestaspyrnu
stuttu síðar en boltinn fór beint á
markvörðinn. Þegar rúmur hálf-
tími var liðinn af leiknum náði
Jóhann að bæta upp fyrir að hafa
misnotað vítið og skoraði sitt
fjórða mark í deildinni. Hann var
einfaldlega miklu ákveðnari en
varnarmenn Keflvíkinga og
kláraði færið vel eftir hreint
magnaðan undirbúning frá Kekic
sem hafði komist fram hjá tveim-
ur leikmönnum gestana á miðj-
unni og átt frábæra fyrirgjöf á
Jóhann.
Keflvíkingar náðu að jafna
fyrir hlé úr vítaspyrnu sem var
dæmd eftir að markvörðurinn
Helgi Már Helgason hélt ekki bolt-
anum eftir skot og braut síðan
klaufalega á Magnúsi Þorsteins-
syni.
Helgi fór síðan í vitlaust horn í
vítaspyrnunni og Guðmundur
skoraði. Seinni hálfleikur var ansi
tíðindalítill og bragðdaufur en
bæði liðin fengu þó eitt gott færi.
Grindvíkingar beittu ekki sömu
taktík og gestirnir í fyrri hálfleik
og spöruðu skotin.
Sinisa Kekic fékk besta færi
heimamanna eftir góða auka-
spyrnu frá Óskari en boltinn rúll-
aði fram hjá markinu. Hann fékk
síðan annað færi undir lok leiksins
en skallaði þá beint á Ómar í mark-
inu.
Besta færi Keflvíkinga fékk
varamaðurinn hárprúði Ólafur
Jón Jónsson en skaut slöku skoti.
Hreint út sagt leiðinlegur seinni
hálfleikur en það helsta gerðist í
viðbótartíma að einn leikmaður úr
hvoru liði fékk að líta rauða spjald-
ið. Eyþór Atli Einarsson fékk sitt
annað gula spjald á örfáum mínút-
um eftir að hafa komið inn á sem
varamaður.
„Við ætluðum okkur að halda
boltanum niðri í rokinu en það
bara gekk ekki. Það var of mikið
um langar sendingar fram völlinn
sem voru alls ekki að virka. Þetta
var mikil barátta og barningur út í
eitt,“ sagði Jóhann Þórhallsson,
markaskorari Grindvíkinga, og
viðurkenndi að það hefði verið
súrt að sjá á eftir vítaspyrnu sinni
smella í þverslána í fyrri hálfleik.
„Við erum aðeins á eftir áætlun
með fjögur stig eftir þrjá leiki
enda ætluðum við okkur alls ekki
að missa nein lið of langt frá okkur
í upphafi móts. Við vorum klaufar
að nýta ekki góð færi og hefðum
átt að vera yfir eftir fyrri hálfleik-
inn, það er mjög súrt að ná ekki að
nýta jafn góð færi og við fengum.
Ég verð samt sem áður að hrósa
báðum liðum fyrir að spila svona
fínan leik við þessar erfiðu aðstæð-
ur,“ sagði Kristján Guðmundsson,
þjálfari Keflvíkinga, eftir leikinn.
- egm
Það var mikið fjör þegar nágrannaliðin Grindavík og Keflavík mættust:
Grannarnir skildu jafnir
LÍFLEGUR Sigurður Jónsson, þjálfari Grindavíkur, lét vel í sér heyra í gær en lét það eiga sig að pakka dómaranum saman eftir leikinn að
þessu sinni.