Tíminn - 11.09.1977, Síða 11
Sunnudagur 11. september 1977
11
— Það þótti þvi ekki úr vegi að ráð-
stafa hluta þjóðargjafarinnar til að
minnka sandfok i nágrenni Þingvalla
þar sem gjöfin var samþykkt. Þvi var
ákveðið að reisa þessa girðingu, sem
nær frá Sandkluftavatni sunnan Skjald
breiðar, austur Hlöðuvelli, norður
Lambahraun og i Hagavatn. En að
vestanverðu er svæðið girt sauðfjár-
veikigirðingum, en jöklar girða það að
norðan.
— Það er vitað að geysilegur upp-
blástur er við Skjaldbreið og á Hlöðu-
völlum, en þetta land er hluti af afrétt
Þingvallasveitar,. Grimsness, og
Laugardals. Það var með fullum vilja
og samþykki sveitarstjórna þessara
hreppa að ráðizt var i þessa girðingu og
hvöttu þeir meira að segja til að þetta
svæði yrði friðað, eins og ákveðið er á
landgræðsluáætlun.
— Landgræðslan hefur náttúrlega
alltaf lagt höfuðáherzlu á að græða upp
svæði i byggð, en þó er það samdóma
álit þeirra sem starfa við gróðurvernd
og landgræðslu, að uppblástur á f jöllum
og heiðum verði lika að stöðva.
— Með þvi að friða þetta svæði og sá i
verstu uppblásturssvæðin vonumst við
til að geta stöðvað uppblásturinn.
1 sumar var sáð melfræi við Sand-
kluftavatn, og einnig dreifði áburðar-
flugvélin Páll Sveinsson fræi og áburði
á þau svæði, þar sem sandíokið herjar á
gróið land, þ.e. á mörkum gróins og
ógróins lands.
I sambandi við moldrokið sem ég
nefndi áðan, og sem er svo algengt hér á
Suðurlandi, þá hefur litið borið á þvi
undanfarin tvö sumur, þar sem þau
hafa verið mjög óþurrkasöm. En komi
aftur á móti þurrkasumur má búast við
moldarmökkum að nýju, nema unnið
verði að heftingu uppblásturs.
Að endingu sagði Sveinn, að það væri
eftirtektarvert, að allar girðingarfram-
kvæmdir á vegum Landgræðslunnar á
Suður- og Norð-Austurlandi væru unnar
á mestu eldfjallasvæði landsins.
Kristin Siguröardóttir er mat-
ráöskona þeirra giröingar-
manna, og hefur veriö sem sllk i
um 15 ár, en hún hefur fylgt
manni sinum Greipi Sigurössyni
á giröingarleiööngrum hans.
Eldhúsaöstaöa Kristlnar er ekki
upp á marga fiska eins og sést á
myndinni, en þaö má gera sér
gott úr öllu.
Biaöamenn voru umsvifalaust drifnir I mat þegar þeir komu i heimsókn. Myndin gæti heitiö
„Þröngt geta svangir setiö”.
Allt vatn, sem flokkurinn veröur aö nota á ferðum sinum, er sel-
flutt ncðan úr byggö og þvl er ströng vatnsskömtun. T.d. fær
enginn aöraka sig yfir alla vikuna.en um helgar er skroppiö niö-
ur i byggö.
A þessum staöþurfa átta manns
að sofa, en þetta er óhitaöur
svefnskáli. t horni skálans má
sjá Svein Þorgeirsson kúra sig I
einum svefnpokanum.
Eftir miödegisveröinn er Iffinu tekiö meö ró smátima, og menn
seljast og ræða málin. Taliö frá vinstrí: Greipur Sigurösson,
Þorsteinn Sigurösson, Karl Kristján Bjarnason, Guömundur
Hárlaugsson og Þórhallur Einarsson.