Fréttablaðið - 21.08.2006, Side 2
2 21. ágúst 2006 MÁNUDAGUR
BANASLYS Maður á fimmtugsaldri
lést í umferðarslysi á Vestur-
landsvegi norðan Þingvallavegar
um miðnætti í fyrrinótt. Einn var
fluttur alvarlega slasaður á slysa-
deild og er í öndunarvél.
Að sögn lögreglu atvikaðist
slysið þannig að bifreið sem var á
leið til Reykjavíkur ók á hross sem
hljóp í veg fyrir bílinn. Við það
missti ökumaður stjórn á bílnum
og lenti á bifreið sem var á hinum
vegarhelmingnum á leið upp á
Kjalarnes.
Farþegi í bílnum sem ók á
hrossið lést samstundis og öku-
maður var fluttur alvarlega slas-
aður á slysadeild. Farþegi í hinum
bílnum bringubrotnaði. Þetta er
sextánda banaslysið í umferðinni
á þessu ári. - sþs
Banaslys á Vesturlandsvegi:
Ók á hross sem
hljóp fyrir bíl
SLÖKKVILIÐ Alls voru farnir 54
sjúkraflutningar í fyrrinótt. Að
sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu
eru ferðirna að öllu jöfnu fimmtán
til tuttugu á venjulegu laugar-
dagskvöldi svo að aukningin var
töluverð.
Flestir flutningarnir voru með
fólk sem hlotið hafði áverka eftir
ryskingar í miðbæ Reykjavíkur
en tveir sjúkrabílar sinntu einung-
is miðborginni og höfðu vart
undan. Töluvert var um skurði,
mar og eymsli í hálsi á meðal
hinna slösuðu.
Slökkvilið var með eftirlit við
Reykjavíkurhöfn í fyrrinótt eins
og aðrar nætur þegar mikið stend-
ur til. Að sögn varðstjóra hjá
Slökkviliðinu er fastur liður að
menn kasti sér í höfnina og svo
var raunin einnig í fyrrinótt.
Maður gerði það að gamni sínu en
komst hjálparlaust upp á bryggj-
una aftur. - æþe
Erilsamt hjá slökkviliðinu:
54 sjúkraflutn-
ingar í nóttMIKIÐ SKEMMDUR Hérna sést glögglega
hversu illa útleikinn bíllinn var eftir slysið.
MYND/KRISTJÁN GUNNARSSON
LÖGREGLUFRÉTTIR Ungur ökumaður
missti stjórn á bifreið sinni á Vest-
fjarðarvegi í Dýrafirði um hálf
þrjú leytið í fyrrinótt, með þeim
afleiðingum að bíllinn valt. Mað-
urinn er grunaður um ölvun við
akstur.
Vegfarendur sem komu auga á
bílinn, mikið skemmdan utan
vegar, gerðu lögreglu viðvart.
Þegar lögregla kom á vettvang
var ökumaðurinn hvergi sjáanleg-
ur og var þá kallað eftir aðstoð
björgunarsveitarinnar á Þingeyri.
Maðurinn fannst svo við upp-
haf leitar ráfandi fyrir utan Þing-
eyri lítið slasaður. - æþe
Grunur um ölvunarakstur:
Velti fólksbíl
við Þingeyri
SPURNING DAGSINS
Andrés, er ekki næsta skref að
skíra bæinn Andabæ?
„Jú, það er allt í lagi mín vegna. Það
getur vel verið að það auki söluna
eitthvað.“
Andrés Ölversson, bóndi á Ystu-Görðum í
Kolbeinsstaðahreppi á Snæfellsnesi, selur
andaregg á fimmtíu krónur stykkið. Eggin
ganga oftast undir nafninu „Andrésar
andaregg“.
STJÓRNMÁL Steingrímur J. Sigfús-
son, formaður Vinstri hreyfingar-
innar - græns framboðs, telur litl-
ar sem engar breytingar hafa átt
sér stað eftir flokksþingið hjá
Framsóknarflokknum, aðeins sé
komið nýtt andlit á sömu stefnu.
„Það er sóttur maður út í bæ
sem er handgenginn fráfarandi
forystu og sett nýtt andlit á sömu
stefnuna. Það hefðu verið meiri
tímamót ef kynslóðaskipti hefðu
átt sér stað, breytingar boðaðar
eða hugmyndafræðileg endurnýj-
un,“ segir hann.
Steingrímur telur að uppákom-
an öll segi í hvers konar ástandi
flokkurinn er. „Fyrir mér er það
birtingarform djúpstæðs vanda
þegar maður horfir á flokkssystk-
ini og ráðherra slást um sömu
embættin. Flokksþingið breytti
engu, það er bara komið nýtt and-
lit á „halldórismann“.“
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
formaður Samfylkingarinnar,
telur flokksþing Framsóknar-
flokksins hvorki hafa markað
tímamót né vera upphaf að breyt-
ingum hjá flokknum. Sér sýnist
flokkurinn enn við sama hey-
garðshornið og ætla sér áfram-
haldandi samstarf við Sjálfstæð-
isflokkinn.
„Framsóknarflokkurinn hefur
verið að fara í gegnum mikla
kreppu sem tengist þeirri pólitík
sem hann hefur staðið fyrir. Hann
er kominn svo langt frá þeirri
félagshyggju sem hann var upp-
haflega byggður á. Ég hefði talið
að hann hefði þurft að vekja hana
til lífsins aftur en það sýnist mér
ekki gert.“
Guðjón Arnar Kristjánsson,
formaður Frjálslynda flokksins,
segir að Framsóknarflokknum
hafi tekist að halda við sömu línu
og áður. Sá hafi tekið við for-
mennskunni sem fráfarandi for-
maður hafi valið en sami varafor-
maðurinn haldi áfram. „Ég tel að
litlar breytingar hafi átt sér stað
og ekki þurfi að vænta þess að
nein breyting verði.“
Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir, varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins, telur að flokksþing
Framsóknarflokksins komi vel út
fyrir flokkinn og muni styrkja
hann þegar fram í sækir. Hún
telur að Siv Friðleifsdóttir hafi
styrkt stöðu sína og sýnt að hún
sé flokksmanneskja sem vilji ein-
drægni og samstöðu í flokknum.
ghs@frettabladid.is
Nýtt andlit er komið
á „Halldórismann“
Leiðtogar stjórnarandstöðuflokkanna telja að litlar breytingar hafi átt sér stað
á flokksþingi Framsóknarflokksins. Nýtt andlit er komið á „Halldórismann“.
Varaformaður Sjálfstæðisflokksins telur Framsóknarflokkinn styrkjast.
NÝTT ANDLIT HJÁ FRAMSÓKNARFLOKKNUM Leiðtogar stjórnarandstöðunnar telja flokksþing Framsóknarflokksins engu hafa breytt, aðeins
sé komið nýtt andlit á forystuna og það sést hér myndað á flokksþinginu. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins telur að flokksþingið hafi
komið vel út fyrir Framsóknarflokkinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
JARÐSKJÁLFTAR Fjöldi jarðskjálfta
hefur verið við Grenivík og Bárð-
arbungu undanfarna daga sam-
kvæmt jarðskjálftamælingum
Veðurstofu Íslands. Þegar blaðið
fór í prentun höfðu þrjátíu og níu
jarðskjálftar orðið við Grenivík
og fjórtán við Bárðarbungu sein-
ustu tvo sólarhringana. Skjálft-
arnir eru þó ekki stórir, flestir á
bilinu einn til tveir á Richter.
„Þetta eru skjálftahrinur sem
eru meðal annars í Kaldbaki norð-
an við Grenivík,“ segir Þórunn
Skaftadóttir, jarðfræðingur hjá
Veðurstofu Íslands. „Þær eru
búnar að standa yfir í tvo eða þrjá
daga núna.“ - sþs
Jarðskjálftar við Grenivík:
Skjálftahrinur
í Kaldbaki
TÍMAMÓT Það ná ekki allir þeim
merka áfanga að verða yfir 100
ára. Sólveig Pétursdóttir er þó í
þeim hópi þar sem hún er fædd
árið 1897 og varð 109 ára í gær.
Sólveig fæddist á bænum
Keldunúp á Síðu, en foreldrar
hennar voru bændurnir Páll Þor-
láksson og Guðrún Halldórsdóttir.
Fimm ára gömul flutti hún ásamt
foreldrum sínum á Prestbakkakot,
en á bæinn Hof á Öræfum á tíunda
aldursári. Árið 1923 giftist Sólveig
Gunnari Jónssyni bónda og hófu
þau búskap á Svínafelli í Öræfum.
Hjónin eignuðust sjö börn, en
afkomendur þeirra telja nú 67 að
börnum þeirra meðtöldum. Gunn-
ar andaðist árið 1967, en Sólveig
hélt áfram búskap ásamt einum
sona sinna allt fram til ársins 1993,
en þá flutti hún á dvalarheimili
aldraðra á Höfn í Hornafirði orðin
93 ára gömul og hefur búið þar
síðan.
Afkomendur Sólveigar rekja
langlífi hennar til dugnaðar og
einstakrar lífsgleði, en þrátt fyrir
háan aldur annaðist hún bústörfin
af eldmóð alveg þar til hún hafði
aðsetursskipti árið 1993. Hún
prjónar enn þrátt fyrir að vera
farin að missa sjón og heyrn og
finnst gaman að fá vini og ætt-
ingja í heimsókn þótt minnið sé
ekki jafn gott og áður. Ættingjar
Sólveigar og íbúar dvalarheimilis-
ins héldu upp á afmæli hennar í
gær, þar sem boðið var upp á kaffi
og meðlæti. - rve
Elsti Íslendingurinn varð 109 ára gamall í gær:
Lífsgleði ástæða langlífis
AFMÆLISBARNIÐ
Sólveig Pálsdóttir fagnaði 109 ára afmæli
sínu í hópi vina og vandamanna í gær.
ELDUR Slökkvilið var kallað að
íbúðarhúsi í Hörðalandi um hádegi
í gærmorgun. Eldurinn var lítill
og engin meiðsl urðu á fólki.
Tilkynnt hafði verið um reyk-
skynjara í gangi og að reyk legði
út um glugga á húsinu. Vitað var
að ein kona var inni í húsinu og
voru þrjár stöðvar ræstar út.
Þegar slökkvilið kom á vett-
vang var konan komin út úr hús-
inu af sjálfsdáðum. Eldurinn
kviknaði í potti sem hafði verið
skilinn eftir á eldavél. Eldurinn
var ekki mikill en reykræsta
þurfti húsið. - sþs
Eldur í íbúðarhúsi:
Komst út af
sjálfsdáðum
LÍBANON, AP Varnarmálaráðherra
Líbanons sagðist þess fullviss í
gær að Hizbollah-liðar myndu ekki
brjóta vopnahléð en varaði herskáa
Palestínumenn í Líbanon við hörð-
um viðurlögum og „örlögum svik-
ara“ ef þeir egndu Ísraela til gagn-
árása með því að skjóta
sprengiflaugum á Ísrael.
Daginn eftir að Ísraelar gerðu
skyndiárás á vígi Hizbollah-liða í
Bekaa-dalnum, sem Kofi Annan,
framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna sagði brot á vopnahlésá-
lyktuninni, varð engra nýrra slíkra
atvika vart. Vopnahléð hélt, sjö-
unda daginn í röð.
Franski utanríkisráðherrann
Philippe Douste-Blazy kallaði í gær
eftir því að Evrópusambandsríkin
ákveddu á fundi nú strax eftir helg-
ina hve marga hermenn þau væru
reiðubúin að leggja til alþjóðlega
friðargæsluliðsins í Líbanon. „Við
biðjum um að Evrópa sýni í verki
samstöðu sína með Líbanon, eins
fljótt og auðið er,“ sagði Douste-
Blazy í útvarpsviðtali. Frakkar ollu
mörgum vonbrigðum í síðustu viku
er þeir sögðust í bili ekki reiðubún-
ir að senda nema 200 hermenn til
viðbótar því liði sem þegar er í Líb-
anon.
Talsmenn Sameinuðu þjóðanna
sögðu fyrir helgi að fleiri evrópsk-
ir hermenn yrðu að koma til ef tak-
ast ætti að standa við að senda
fyrsta hluta liðsins, um 3.500 her-
menn, á vettvang í Suður-Líbanon
fyrir 28. ágúst. - aa
LIÐSAUKA BEÐIÐ Franskir hermenn í friðar-
gæsluliði SÞ í Líbanon. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Líbanonstjórn sátt er vopnahléð hefur haldist í rétta viku:
Vopnahlésbrjótar varaðir við