Fréttablaðið - 21.08.2006, Blaðsíða 12
12 21. ágúst 2006 MÁNUDAGUR
EKKI BORGA MEIRA!
Rúmlega 36 þúsund króna verðmunur!
SJÓVÁ SJÓVÁ-STRAX VÍS VÖRÐUR TM
ÍSLANDSTRYGGING
Skyldutrygging+Kaskó 108.633 95.597 90.583 96.591 89.473 71.820
Upplýsingar um verð fengust af vefsíðum fyrirtækjanna og með tölvupósti frá þjónustufulltrúum þeirra þann 11. 8. 2006
um 50 þ. kr. sjálfsábyrgð
Vátryggjandi er Tryggingamiðstöðin hf.
Samanburðarbíll: 2002 árgerð, 990.000 kr., 1800 vél
Á elisabet.is getur þú reiknað dæmið þitt.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
E
LI
3
36
98
0
8/
20
06
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
MANÍLA, AP Tillögu um að kæra for-
seta Filippseyja fyrir kosninga-
svik og embættisafglöp hefur
verið vísað frá dómsmálanefnd
filippeyska þingsins.
Þetta er í annað sinn á einu ári
sem tillaga þessa efnis er felld og
þykir áfall fyrir andstæðinga for-
setans. Tillagan fer þó fyrir þing-
ið, því í vikunni verður tekin
afstaða til þess hvort fallist verði
á niðurstöðu nefndarinnar.
Andstæðingar forsetans hörm-
uðu niðurstöðuna, en segjast ekki
af baki dottnir því þeir „skuldi
þjóðinni“ að berjast gegn flokki
forsetans í héraðs- og þingkosn-
ingum á næsta ári. - kóþ
Forseti Filippseyja:
Spillingar-
ákæru vísað frá
MÓTMÆLI Stuðningsmenn stjórnarand-
stöðunnar mótmæla frávísun kærunnar á
hendur Arroyo forseta. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STYRKUR. Í tilefni opnunar nýs sýn-
ingarsalar í húsnæði Heklu á Lauga-
vegi 172 afhenti Knútur G. Hauks-
son, forstjóri Heklu, Styrktarfélagi
krabbameinssjúkra barna styrk að
upphæð 500 þúsund krónur.
Að auki var greint frá því að sam-
tökin muni tryggja sér afnotarétt af
Skoda bifreið frá Heklu í heilt ár, ef
fulltrúa samtakanna og FÍB tekst að
aka hringveginn á honum á aðeins
einum olíutanki. Lagt verður af stað
í sparaksturinn frá aðalstöðvum
Frumherja klukkan 11 á mánudags-
morgun og er áætlað að koma í
bæinn aftur um hádegi á miðviku-
dag. - vör
Hekla veitir styrk:
Veita 500.000
króna fjárstyrk
STYRKUR AFHENTUR Knútur G. Hauksson,
forstjóri Heklu, afhendir Óskari Erni Guð-
brandssyni og dóttur hans styrkinn.
SKIPULAGSMÁL Samkvæmt tillögu
að deiliskipulagi mun hjúkrunar-
heimili og íbúðarhúsnæði rísa á
svokölluðum Lýsisreit, sem
afmarkast af Grandavegi, Eiðis-
granda, Hringbraut og Framnes-
vegi. Búið er að kynna hagsmuna-
aðilum tillöguna og athugasemdir
sem bárust eru nú til umfjöllunar
en málið verður tekið fyrir í skipu-
lagsráði í september.
Nágrannar lóðarinnar þar sem
Lýsishúsið var áður hafa kvartað
yfir því að grind hússins sem enn
stendur sé slysagildra fyrir börn
og unglinga, en nú er búið að girða
svæðið af og verið er að vinna á
lóðinni.
Að sögn Helgu Bragadóttur
skipulagsfulltrúa mun hjúkrunar-
heimilið hafa níutíu hjúkrunar-
rými en Reykjavíkurborg og Sel-
tjarnarnesbær koma að verkinu
ásamt ríkinu. Í tillögu að deili-
skipulagi er gert ráð fyrir fjölbýl-
ishúsi með allt að hundrað íbúðum
á sjö til tíu hæðum næst Eiðis-
grandanum. - rsg
Deiliskipulag til umfjöllunnar:
Hjúkrunarheimili
og íbúðir á Lýsisreit
LÝSISHÚSIÐ Verið er að rífa húsið.