Fréttablaðið - 21.08.2006, Blaðsíða 69
MÁNUDAGUR 21. ágúst 2006 29
Margverðlaunað
fyrir hollustu og bragðgæði
AÐEINS
0,7% FITA
Léttreykta kjúklingaáleggið frá
Holtakjúklingi er margverðlaunað
fyrir hollustu og bragðgæði.
Þú finnur vart fituminna álegg.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
5
2
1
8
Hótelerfinginn Paris Hilton hefur
nú komist í heimsmetabók Guinn-
ess fyrir að vera ofmetnasti frægi
einstaklingur í heimi. Talsmaður
bókarinnar segir heimildirnar hafi
verið teknar úr skoðanakönnunum
í tímaritum úti um allan heim þar
sem kosið var um ofmetnustu
stjörnuna og Paris sigraði með
yfirburðum.
Fleiri frægir einstaklingar hafa
ratað inn á síður heimsmetabókar-
innar svo sem Madonna sem er
hæst launaða söngkonan í heimi.
Ofmetin
Hilton
PARIS HILTON Sigraði með yfirburðum í
kosningu um ofmetnustu stjörnuna og
komst því í heimsmetabók Guinness.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
Rokkbandið Supernova hefur
ákveðið að fara í mál við nafna sína
í sjónvarpsþættinum Rock Star:
Supernova sem sýndur er á Skjá
einum en þættirnir hafa notið mik-
illa vinsælda hér á landi enda
Magni „okkar“ Ásgeirsson að gera
góða hluti þar vestra. Fyrrnefnda
hljómsveitin er ef til vill ekki
mörgum kunn en hún átti þó lagið
Chewbacca í kvikmyndinni Clerks.
Langar og strangar samningavið-
ræður hafa staðið yfir bak við
tjöldin en í júní slitnaði upp úr
þeim og því ákvað Supernova að
fara með málið fyrir dómstóla í
San Diego. Hljómsveitin vill koma
í veg fyrir að Supernova-sjón-
varpsbandið noti nafnið í markaðs-
skyni enda myndi það skaða leið
hennar á toppinn, en frá þessu
greinir fréttavefur CNN.
Lögfræðingur sveitarinnar,
John Mizhir Jr., sagði að sveitin
sæi enga aðra leið en að fara með
málið í þennan farveg þar sem hún
vildi tryggja að nafnið yrði hennar
því hljómsveitarmeðlimir hefðu
unnið að því hörðum höndum að
festa það í sessi. „Við reyndum að
fara mjúku leiðina með samning-
um en töluðum fyrir daufum
eyrum,“ sagði Mizhir.
Upprunalega Supernova-hljóm-
sveitin var stofnuð árið 1989 af
þeim Jodey Lawrence, Art Mitchell
og David Collins en sveitin hefur
þegar gefið út þrjár breiðskífur.
Sveitin hefur verið á tónleikaferða-
lagi um Kaliforníu, Arizona og
Nevada en samkvæmt talsmanni
hennar er ný plata í undirbúningi.
Supernova í slæmum málum
SUPERNOVA Nafnið gæti verið stolið frá hljómsveit sem þegar hefur gefið út þrjár breiðskífur og átti lagið Chewbacca í kvikmyndinni Clerks.
Söngvarinn og kyntáknið Justin
Timberlake segist ekki geta notið
ásta með unnustu sinni ef tónlist
er spiluð á sama tíma. Justin, sem
er kærasti Cameron Diaz, finnst
hann ekki standa sig nægilega vel
því tónlistin sé of truflandi. „Ef ég
heyri tónlist á meðan ég er í rúm-
inu fer ég alltaf að pæla of mikið í
tónlistinni,“ segir hjartaknúsarinn
sem gefur út nýja plötu innan
tíðar. Fyrsta lagið af plötunni heit-
ir Sexyback og er þegar farið að
heyrast á öldum ljósvakans.
Engin tónlist
í rúminu
JUSTIN Getur bara gert einn hlut í einu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
Leikkonan Eva Longoria kom kær-
astanum á óvart þegar þau voru að
skipuleggja nýja húsið sitt á dög-
unum. Í ljós kom að kærastinn,
körfuboltamaðurinn Tony Parker,
hafði ekki hugmynd um að Long-
oria væri algjör skófíkill. „Ég held
að ég hafi fæðst á hælum,“ sagði
Eva eitt sinn og það lýsir skófíkn
hennar ágætlega. „Þegar við
vorum að hanna skápana okkar
spurði Tony mig hvað ég þyrfti
mikið pláss undir skóna. Hann hélt
að ég ætti 20 pör alls. Ég spurði
hvort hann væri virkilega að
grínast, ég á alla vega tuttugu pör
bara af sandölum!“
Eva er algjör
skófíkill
EVA LONGORIA Kom kærastanum á óvart
um daginn. Hann hafði ekki hugmynd um
að hún væri jafn mikill skófíkill og hún er.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES