Fréttablaðið - 21.08.2006, Blaðsíða 66
21. ágúst 2006 MÁNUDAGUR26
menning@frettabladid.is
!
FRUMSÝND 18. ÁGÚST
9. HVER
VINNUR!
Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið.
SENDU SMS SKEYTIÐ
JA CAF Á NÚMERIÐ 1900
OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ
MIÐA FYRIR TVO.
VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR FYRIR 2
DVD MYNDIR
VARNINGUR TENGDUR MYNDINNI
OG MARGT FLEIRA!
Aðsóknarmesta sýning
síðasta leikárs!
Drepfyndinn
gamanleikur í Reykjavík!
Miðasala er þegar hafin!
Miðasala í síma 551 4700 // opið 13:00-17:00 // www.midi.is //Austurbæjarbíó – Snorrabraut 37
Næstu sýningar:
Föstudaginn 18. ágúst kl. 20:00
Laugardaginn 26. ágúst kl. 19:00
Laugardaginn 26. ágúst kl. 22:00
Á ÞAKINU
Kl. 20.00
Kammersveitin Ísafold leikur
verk eftir Schönberg, Webern og
Takemitsu í Listasafni Íslands við
Fríkirkjuveg. Einnig verður frum-
flutt nýtt verk eftir Hauk Tómas-
son sem hann samdi sérstaklega
fyrir sveitina.
> Ekki missa af...
sumarsýningu Minjasafns Akur-
eyrar. „Ef þú giftist“ geymir
muni og myndir um giftinga-
siði fyrr og nú og er opin alla
daga frá 10-17.
myndlistarsýningu Tedda í
Perlunni. Teddi sýnir áttatíu
verk unnin í lúinn og lifaðan við
víðsvegar að úr heiminum.
ráðstefnu um galdur og
samfélag að Laugarhóli í
Bjarnarfirði á Ströndum í
byrjun september. Fjölbreytt
fræðslu- og skemmtidagskrá á
dulúðugum stað.
Sígarettustubbar, strokleð-
ursafgangar og táneglur
eru fánýtt dót sem flestir
fleygja í ruslið. Halldór
Sturluson er myndlistar-
nemi sem sér lengra og hef-
ur getið sér gott orð fyrir að
mála „drasl“.
Halldór sýnir nú verk sín í Þjóð-
menningarhúsinu en þar hanga uppi
myndir hans af sígarettustubbum.
Þrátt fyrir forhugmyndir og for-
dóma sumra gagnvart reykingum
verður að segjast að formið og
framsetningin á þessum mannvist-
arleifum er býsna heillandi. „Ég
byrjaði að teikna allskyns storkleð-
ursafganga og drasl með pennum á
hvít blöð og það vakti ágætis lukku
og þær myndir voru sýnar úti í Míl-
anó,“ segir Halldór, en hann stund-
ar nú myndlistarnám þar í borg en
lærði áður í Myndlistarskóla
Reykjavíkur. „Síðan fór ég að þróa
þetta lengra á síðasta ári og ákvað
þá að halda mig við sígarettustubb-
ana en ég hef líka verið að mála ryk
og táneglur og alls konar hluti sem
eiga heima í ruslinu. Ég reyni að
setja þá upp á áhugaverðan hátt því
mér finnst þeir geta verið verðug
viðfangsefni.“ Á sýningunni eru
fimm olíuverk og tvær þrykk-
myndir af stubbunum.
Þar sem Halldór er enn í námi
hefur hann ekki sýnt mikið af
verkum sínum en hann hefur þó
tekið þátt í samsýningum bæði
hérlendis og erlendis. Hann
útskýrir að hann hafi mestmegnis
fengist við að mála en hann hefur
líka unnið með vídeó og talsvert
með ljósmyndir líka. Halldór á eitt
ár eftir af náminu á Ítalíu og segist
ekki vera búinn að ákveða fram-
haldið en segist vel geta hugsað
sér að stefna á kennaranám í Lista-
háskóla Íslands og síðan á frekara
nám. „Ég veit ekki hvort ég mun
vinna meira með þessi viðfangs-
efni, ég vinn kannski eitthvað
meira í líkingu við þetta en ekki
endilega sígaretturnar,“ segir
Halldór og útskýrir að einfaldleik-
inn sé það sem heilli hann mest.
En reykir hann þá? „Já reyndar
geri ég það,“ segir listamaðurinn
og hlær innilega. „Ég var spurður
að því um daginn hvort ég væri
fylgjandi reykingum en útskýrði
að myndirnar hafa ekkert með það
að gera. Þetta er bara ruslið,“ segir
hann og áréttar að listaverkin séu
síst gerð í áróðursskyni.
Myndirnar eru til sýnis í veit-
ingastofu Þjóðmenningarhúsið en
þar er opið milli kl. 11-17 alla
daga. -khh
HALLDÓR STURLUSON Finnst „draslið“
verðugt viðfangsefni og leitast við að setja
það upp á áhugaverðan hátt.
FÁNÝTT DRASL EÐA VERÐUGT VIÐFANG Stubbasýning Halldórs Sturlusonar í Þjóðmenning-
arhúsinu.
Af fegurðinni í ruslinu
Breski rithöfundurinn og blaðamaðurinn Michael
Grey er einn þekktasti „Dylan-sérfræðingur“ í heimi
en hann hefur nú gefið út alfræðirit um goðið. The
Bob Dylan Encyclopedia er með yfirgripsmeiri ritum
af sínu tagi, á ríflega átta hundruð síðum fræðir
Grey lesendur sína um allt mögulegt og ómögulegt
sem tengist Bob Dylan – allt frá fjölskylduhögum
hans, áhrifavöldum og pólitík til upplýsinga um
hljóðfæraskipan, textagerð og mataræði.
Gray er frumkvöðull á sviði Dylan-fræðanna en
hann gaf út bókina Song & Dance Man árið 1972
sem síðan hefur verið endurútgefin tvisvar með
tilheyrandi viðaukum og viðbótum. Gray var einnig
meðritstjóri að fræðiriti um Elvis Presley en hann
hefur sérhæft sig í sögu rokksins og blústónlistar-
innar, einkum þróun hennar fyrir stríð.
Alfræðiritið er sannarlega hilluprýði en þess
má einnig að geta að með bókinni fylgir geisla-
diskur með öllum texta hennar svo lesendur geta
auðveldlega leitað að sérstökum upplýsingum og
kortlagt sín Dylan-fræði á persónulegan hátt.
ALFRÆÐI BOBS DYLAN Átta hundruð síðna rit um
einstaka goðsögn.
Allt um Dylan á einum stað
Blendnar viðtökur nýjust myndar
Olivers Stone, World Trade Center,
eru viðfangsefni greinar í nýjasta
hefti The New Yorker þar sem höf-
undurinn David Denby setur
myndina í samhengi við fyrri verk
Stone.
Hann heldur því fram að leik-
stjórinn Stone, sem þekktur er
fyrir myndir á borð við Natural
Born Killers, JFK og Nixon,
þröngvi sér inn á tilfinningasvið
áhorfenda eins og oft áður en með
meira innsæi og skerpu en áður.
Denby tekur einnig fram að fram-
setning Stones á ofbeldi sé sífellt
áhrifameiri og að hann fangi dauð-
leikann betur en nokkur annar
leikstjóri.
Viðfangsefni myndarinnar eru
hetjudáðir björgunarmanna sem
festust í öðrum Tvíburaturnanna
þegar flugvélum var flogið á World
Trade Center. Hugrekkið og stað-
festan er sem fyrr eitt aðalþemað í
mynd Stone en Denby setur World
Trade Center í samhengi við stríðs-
myndir hans og segir vettvang
stríðsins nú vera föðurlandið sjálft.
Stone þykir afgreiða þetta við-
kvæma efni á smekklegan hátt og
bendir Denby til dæmis á að mynd
Stone sé tillitssamari og tilfinn-
ingaríkari en mynd Pauls Green-
grass, United 93, sem frumsýnd
var í vor en hún fjallar um fólkið
sem var um borð í flugvélinni sem
flogið var á annan turninn.
Myndinni hefur verið hampað
af hægrimönnum í Bandaríkjunum
sem annars eru lítt hrifnir af
umdeildum verkum Stones en
pistlahöfundur The New Yorker
vitnar til dæmis til ummæla Cals
Thomas, dálkahöfundar og álits-
gjafa á fréttastöðinni Fox News,
sem kallaði myndina eina mestu
stuðningsyfirlýsingu við Ameríku
og þau amerísku gildi sem tengjast
fjölskyldu, trúrækni og hollustunni
við fánann. Þau ummæli voru þó
ekki nóg til þess að fá Denby ofan
af því að sjá myndina og heillast af
henni en hann segir í lok greinar
sinnar að þrátt fyrir að heimurinn
sé allur á skjön standi stríðsmaður-
inn Oliver Stone fyrir sínu, hamp-
andi þolgæði og hugrekki á sinn
einstaka hátt og skili því í eftir-
minnilegri og kraftmikilli mynd.
-khh
LEIKSTJÓRINN OLIVER STONE Hampað fyrir
sýn á hetjudáðir Ameríku.
Hugrekkið á heimavelli
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI