Fréttablaðið - 21.08.2006, Blaðsíða 8
21. ágúst 2006 MÁNUDAGUR
Við sérhæfum okkur
í vönduðum og fjölbreyttum
námsgögnum fyrir öll skólastig.
www.skola.is
- vefverslun og
skiptibókamarkaður
Smiðjuvegi 5 • 200 Kópavogur
Sími 585 0500
Opið 9-18 virka daga
ALLT Í
SKÓLANN
Á GÓÐU
VERÐI
O
dd
i h
ön
nu
n_
V
O
B6
62
5
HEILBRIGÐISMÁL Heilbrigðiseftirlit
Austurlands hefur gert athuga-
semdir við setgáma, sem Impreg-
ilo hefur notað til að taka við
óvenjumiklu fráveituvatni frá
aðgöngum fjögur á Kárahnjúkum.
Verktakar á Kárahnjúkum nota
yfirleitt settjarnir sem breytast í
setþrær en Impregilo notar aðra
tækni, setþró sem breytist í set-
gáma. Gámarnir eru notaðir til að
stöðva vatnsrennsli þannig að
sandur og set falli til botns, olía
fljóti upp og vatnið sé hreinsað.
Helga Hreinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits
Austurlands, segir að þegar vatns-
streymið sé mikið hafi tækin ekki
undan og því hafi verið gerðar
athugasemdir. Sömuleiðis hafi
verið gerðar athugasemdir við að
gámarnir séu ekki tæmdir nægi-
lega oft.
Haraldur Alfreðsson, aðstoðar-
staðarverkfræðingur Landsvirkj-
unar, segir að vatnsmagnið í
aðgöngum fjögur hafi verið óvenju-
mikið undanfarna daga en unnið
hafi verið að því að laga það síð-
ustu nætur og það hafi tekist. - ghs
Í GÖNGUM Á KÁRAHNJÚKUM Heilbrigðis-
eftirlitið hefur gert athugasemdir við set-
gáma í göngum sem eiga að taka við gegn-
umstreymisvatni. Þegar gegnumstreymið er
mikið hafa gámarnir ekki undan.
Heilbrigðiseftirlit Austurlands gerir athugasemdir við gáma Impregilo í göngum:
Tækin hafa ekki haft undan
SAMGÖNGUMÁL „Leið B hefur
algjöra yfirburði samkvæmt
skýrslu Vegagerðarinnar,“ segir
Gústaf Jökull Ólafsson, oddviti
hreppsnefndar Reykhólahrepps.
Hreppsnefndin sendi frá sér
athugasemd á dögunum þar sem
Skipulagsstofnun er sökuð um að
taka meira tillit til skóglendis en
manna.
Skipulagsstofnun hefur hafnað
öðrum áfanga svokallaðrar B-
leiðar Vestfjarðavegar númer 60,
á milli Bjarkarlundar og Eyrar í
Reykhólahreppi. Annar áfangi
leiðarinnar hefði legið um
Hallsteinsnes, að hluta til í gegn-
um Teigsskóg.
Skipulagsstofnun vill vernda
birkiskóg sem er á þessu svæði
og hefur því lagt til að önnur leið
verði valin, sem liggur hærra í
landinu. Sú leið þykir ótæk meðal
sveitarstjórnenda svæðisins af
því að hún er lengri og hættu-
legri. Úrskurður Skipulagsstofn-
unar hefur verið kærður til
umhverfisráðuneytisins af Vega-
gerðinni og sveitarfélögunum á
svæðinu.
„Sveitarstjórnirnar á svæðinu
eru sem einn maður í því að B-
leiðin sé sú leið sem best er, enda
hefur Vegagerðin gefið út að
þetta sé vegtæknilega besta leið-
in. Enda spyr maður sig, af hverju
í ósköpunum á að vera að fara
með vegi upp á hálsa í dag ef
hægt er að komast hjá því? Þetta
er ekki nútímaleg vegagerð,“
segir Gústaf Jökull.
Rökstuðningur Skipulagsnefnd-
ar byggir hvað mest á að birkið á
Hallsteinsnesi, í Teigsskógi, beri
að varðveita vegna þess hversu
svæðið er ósnortið af mönnum og
dýrum. Gústaf Jökull segir þetta
vera rangt og finnst um leið alvar-
legt að svo rangar upplýsingar
hafi verið hafðar til hliðsjónar við
úrskurð Skipulagsstofnunar. „Það
eru til heimildir, eins og í árbók
Barðstrendinga, um að bændur úr
Breiðafirði hafi farið í skóginn til
að ná sér í við til kyndingar. Svo
var búið á bæ þarna stutt frá, ekki
alls fyrir löngu, og gengu kindur
þarna um og bitu.“
Kæra hreppsnefndarinnar er
til meðferðar hjá umhverfisráðu-
neytinu sem kveða mun upp
úrskurð sinn á næstu vikum.
Greinilegt er að um mikið hags-
munamál er að ræða hjá íbúum
svæðisins. „Þetta er mikið rétt-
lætismál fyrir íbúana á svæðinu
og svo eru þetta líka grundvallar-
mannréttindi, að geta komist á
milli staða með sem öruggustum
hætti,“ segir Gústaf Jökull.
aegir@frettabladid.is
Metur birkiskóg
meira en mannslíf
Skipulagsstofnun hefur lagst gegn lagningu svokallaðrar B-leiðar í Reykhóla-
hreppi vegna þess að hún liggur í gegnum birkiskóg. Hreppsnefnd Reykhóla-
hrepps sakar Skipulagsstofnun um að meta birkihríslur meira en mannslíf.
BIRKISKÓGUR VIÐ NORÐANVERÐAN ÞORSKAFJÖRÐ Hluti af leið B átti að liggja hér.
FRÉTTABLAÐIÐ/VIKTOR ARNAR INGÓLFSSON