Fréttablaðið - 21.08.2006, Side 18
21. ágúst 2006 MÁNUDAGUR18
fréttir og fróðleikur
Svona erum við
> Hlutfall stóriðju af raforkusölu
Vantar
vegrið
Niðurstöður úr evrópskri gæða- og
öryggiskönnun á íslenskum vegum,
EuroRAP, voru kynntar í vikunni.
Ólafur Guðmundsson er verkefnisstjóri
EuroRAP á Íslandi.
Hvernig kom tvöföldun Reykjanes-
brautar út? Þetta er fyrsti tvöfaldi
vegur á Íslandi og efni í hraðbraut eins
og við sjáum erlendis, en við kláruð-
um ekki málið því það vantar vegrið.
Ef það væri vegrið milli vegarhelm-
inganna og meðfram veginum hefði
vegurinn án efa fengið fjórar stjörnur
eða fullt hús stiga.
Hvað var það sem dró vegina niður
í einkunn? Fyrst og fremst hátt fall, til
dæmis af klettum ef bílar fara út af, og
fjandsamlegir hlutir með fram vegum,
eins og skurðir. Ef við fylltum upp í
skurði og jöfnuðum út grjót og hraun-
hóla við vegi myndi það strax breyta
miklu. Einnig vantar víða vegrið og þar
sem þau eru til staðar eru þau of stutt.
SPURT OG SVARAÐ
GÆÐI VEGA
ÓLAFUR GUÐMUNDSSON
TVÖFALT FYNDNARI! TVÖFALT BETRI!
9.HVER
VINNUR!
FRUMSÝND 25. ÁGÚST UM LAND ALLT MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
VI
NN
IN
GA
R
VE
RÐ
A
AF
HE
ND
IR
H
JÁ
B
T
SM
ÁR
AL
IN
D.
K
ÓP
AV
OG
I.
M
EÐ
Þ
VÍ
A
Ð
TA
KA
Þ
ÁT
T
ER
TU
K
OM
IN
N
Í S
M
S
KL
ÚB
B.
9
9
KR
/S
KE
YT
IÐ
.
UNIFEM er þróunarsjóður Sameinuðu þjóðanna
fyrir konur. Hann var stofnaður árið 1976 í
kjölfar fyrstu heimsráðstefnu SÞ um málefni
kvenna. Sjóðnum var upphaflega ætlað að
starfa í þau tíu ár sem kvennaáratugur SÞ stóð
yfir, eða frá 1975 til 1985. Undir lok þessa
tímabils var ljóst að sjóðnum hafði með tak-
mörkuðu fjármagni tekist að auka þekkingu og
skilning á málefnum kvenna og stuðla að bætt-
um lífskjörum og auknum réttindum þeirra.
Hvað gerir UNIFEM?
Markmið UNIFEM eru þrenn. Að efla efnahags-
legt öryggi og réttindi kvenna og gera þeim
kleift að tryggja sér öruggt lífsviðurværi. Að efla
þátttöku kvenna í stjórnun, pólitískri stefnumót-
un og ákvarðanatökuferli, friðarumleitunum og
uppbyggingu í kjölfar átaka og að stuðla að því
að mannréttindi kvenna séu virt og að hvers
konar ofbeldi gegn konum verði ekki liðið. Verk-
efni sjóðsins eru unnin í Afríku, Asíu og Kyrra-
hafinu, Suður-Ameríku og Karíbahafseyjum,
Mið- og Austur-Evrópu
og í fyrrverandi Sovét-
lýðveldum. Aðalstöðvar
UNIFEM eru í New York
en starfsfólk, sjálfboða-
liðar og velunnarar
starfa um allan heim.
Hver eru helstu verkefni UNIFEM?
Meðal verkefna UNIFEM er undirbúningur að
uppbyggingarstarfi með konum sem hófst strax
að loknu falli talibana-stjórnarinnar í Afganistan
árið 2002. Fyrsta skrefið var að kanna hverjar
væru helstu þarfir og væntingar afganskra
kvenna. Til þess að komast að því stóð UNI-
FEM fyrir tveimur ráðstefnum og stofnaði til
samstarfs við ráðuneyti um málefni kvenna í
Afganistan. Einnig er sérstakur Ofbeldissjóður
starfræktur á vegum UNIFEM, en markmið hans
er að vekja athygli á og
útrýma ofbeldi gegn
konum í hvaða mynd
sem það birtist.
Hver er starfsemi
UNIFEM á Íslandi?
UNIFEM á Íslandi er eitt
af sextán landssamtökum UNIFEM. Íslands-
deildin var stofnuð 18. desember 1989, en
sama dag árið 1979 var samþykktur alþjóða-
samningur um afnám alls misréttis gegn
konum. UNIFEM á Íslandi styður og styrkir
starfsemi Sameinuðu þjóðanna í baráttunni
fyrir jafnrétti og bættri stöðu kvenna víða um
heim, sérstaklega á sviði þróunarsamvinnu.
FBL-GREINING: ÞRÓUNARSJÓÐUR SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA FYRIR KONUR, UNIFEM
Eykur þekkingu á málefnum kvenna
Á milli Þýskalands og Pól-
lands eru náin stjórnmála-
tengsl, löndin eiga í miklum
viðskiptum sín á milli og
ótal áætlanir eru í gangi
sem stuðla að því að rækta
vináttu og skilning þjóð-
anna í millum. En það er
ekki að sjá af fyrirsögnum
blaða í báðum löndum þessa
dagana.
Háttsettir pólskir stjórnmála-
menn hafa afboðað heimsóknir
yfir landamærin og látið þung orð
falla. Deiluefnið er hvernig fjall-
að er um atburði síðari heims-
styrjaldar, sem enn varpa skugga
á samskipti grannþjóðanna. Til-
efni æsingsins nú er öðru fremur
sýningin „Þvingaðar leiðir“ sem
opnuð var í Berlín þann 10. ágúst,
en að henni standa samtök brott-
flæmdra Þjóðverja.
En síðan þá hefur fárið í kring-
um síðbúna viðurkenningu þýska
Nóbelsskáldsins Günters Grass á
því að hann hefði í lok síðari
heimsstyrjaldar, þá sauján ára að
aldri, þjónað í Waffen-SS-her-
sveit, bætt gráu ofan á svart.
Lech Walesa, fyrrverandi Pól-
landsforseti og handhafi friðar-
verðlauna Nóbels, hefur hótað því
að skila eigin heiðursborgaratitli
í Gdansk ef Grass skilar ekki
sínum.
Grass fæddist í borginni árið
1927, en þá var hún þýsk og hét
Danzig. Þekktasta skáldsaga
Grass, Blikktromman, gerist að
stórum hluta í borginni og höfund-
inum var veitt heiðursborgara-
nafnbót í Gdansk fyrir skrif sín og
viðleitni til að græða söguleg sár á
samskiptum Þjóðverja og Pól-
verja.
Erika Steinbach, forseti Sam-
taka brottflæmdra í Þýskalandi
sem standa að sýningunni
umdeildu í Berlín, blandaði sér í
deiluna um Grass með því að
leggja til að hann léti allan ágóða
af sölu sjálfsævisögu sinni, Þegar
laukurinn er flysjaður (Beim Häut-
en der Zwiebel), renna til fórnar-
lamba nasista í Póllandi. Í bókinni,
sem nú þegar er uppseld í fyrstu
prentun þótt hún hafi opinberlega
fyrst átt að koma í búðir þann 1.
september, lýsir Grass því hvern-
ig það bar að að hann gegndi her-
þjónustu í 10. Waffen-SS skrið-
drekahersveitinni „Frundsberg“ á
tímabilinu febrúar til apríl 1945.
Viðkvæmni Pólverja fyrir sögu-
túlkun
Á umræddri sýningu í Berlín er
fjallað um nauðungarflutninga á
þjóðum og þjóðarbrotum í Evrópu
á tímabilinu 1915-1991, en aðalfók-
usinn er á brottflæmingu Þjóð-
verja frá heimkynnum þeirra í
þáverandi austurhéruðum Þýska-
lands og fleiri svæðum í austan-
verðri álfunni í kjölfar ósigurs
Þýskalands nasista árið 1945. Að
minnsta kosti þrettán milljónir
Þjóðverja þurftu að flýja heim-
kynni sín á þessum tíma, en meiri-
hluti þeirra kom frá fyrrverandi
austurhéruðum Þýskalands sem
lentu innan landamæra Póllands
eftir stríðið, þar sem landamæri
þess voru færð alllangt til vesturs
að ákvörðun sigurveldanna. Marg-
ir týndu lífi á flóttanum.
Sumum Pólverjum þykir sem
Þjóðverjar séu að reyna að endur-
skrifa söguna með því að beina
sjónum að þjáningum Þjóðverja í
stríðinu sem Hitler hóf. Um sex
milljónir íbúa fyrirstríðs-Póllands
týndu lífi í styrjöldinni, helmingur
þeirra gyðingar.
„Ég tel að hér sé um að ræða
mjög vondan, mjög sorglegan
atburð sem veldur miklum áhyggj-
um,“ sagði pólski forsætisráðherr-
ann Jaroslaw Kaczynski um sýn-
inguna, án þess að hafa séð hana.
Degi síðar aflýsti Kazimierz
Marcinkiewicz, sem þar til fyrir
skemmstu var forsætisráðherra
en er nú starfandi borgarstjóri
Varsjár, áformaðri heimsókn til
Berlínar í mótmælaskyni við sýn-
inguna, sem hann sagði „beint
gegn Póllandi“ og afbaki söguna.
„Þjóðverjum og Pólverjum
hefur síðustu daga reynst æ erfið-
ara að vinna saman í gegnum sam-
eiginlega sögu sína, ef það er ekki
orðið alveg ómögulegt til lengri
tíma litið,“ segir í nýlegum leiðara
í þýska dagblaðinu Berliner
Zeitung. Í leiðaranum er
Kaczynski, sem er tvíburabróðir
Lech Kaczynski Póllandsforseta,
gagnrýndur fyrir að fordæma
sýninguna án þess að hafa séð
hana. Bent er á að Sögusafnið í
Varsjá hafi nokkrum dögum eftir
opnun sýningarinnar farið fram á
að munum sem það hafði lánað á
sýninguna í Berlín yrði skilað.
„Þessi undirlægjuháttur við vald-
ið er hneykslanlegur og hliðstæð-
ur ekki að finna nema í einræðis-
ríkjum,“ skrifar Berliner Zeitung.
Þjóðernisíhald Kaczynski-bræðra
Stjórnmálaskýrendur í báðum
löndum telja að Kaczynski-bræð-
urnir ali á þessari sundurþykkju,
en þeir eru kaþólskir og þjóðernis-
sinnaðir íhaldsmenn, og gagnrýn-
endur álíta stefnu þeirra einkenn-
ast af þröngsýni og forpokun.
„Póllandsstjórn er augsýnilega
að reyna að nota þetta mál til að
ala á tortryggni í garð Þjóðverja,“
hefur AP eftir Angelicu Schwall-
Düren, þingmanni jafnaðarmanna
á þýska Sambandsþinginu sem er
formaður þýsk-pólskra félaga-
samtaka sem vinna að eflingu
tengsla milli grannþjóðanna
tveggja. Hún segir viðbrögð
íhaldsmannanna í pólsku stjórnar-
forystunni við sýningunni í Berlín
vera alveg út úr korti. „Ég hef séð
hvernig þessi sýning er uppbyggð,
og það er ekkert út á hana að
setja.“ Ekki sé reynt að gera fórn-
arlömb úr þeim sem áttu sök á
stríðinu, né öfugt.
Pólitísk móðgunargirni
Fyrr í sumar fundu þjóðernissinn-
uðu íhaldsmennirnir í Póllands-
stjórn tilefni til að móðgast heift-
arlega er þýska vinstriblaðið die
Tageszeitung, sem gefið er út í
Berlín, skopaðist með Þýskalands-
óbeit Kaczynskis Póllandsforseta
með því að skrifa að hann hefði
ítrekað sagt að það eina sem hann
vissi um Þýskaland væri „veggja-
krotið á klósettinu á Frankfurt-
flugvelli“. Pólsk yfirvöld eru að
kanna hvort grundvöllur sé fyrir
því að höfða meiðyrðamál gegn
blaðinu.
Í leiðara í þýska blaðinu die
Welt um helgina er lýst áhyggjum
yfir því að hin „afturhaldssama
Kaczynski-stjórn“ beiti því að
vera „stöðugt móðguð“ á árásar-
gjarnan hátt ekki aðeins út á við
gegn Þjóðverjum heldur einnig
inn á við gegn Pólverjum sem sýna
vilja til að bæta tengslin við grann-
þjóðina í vestri. „Hvað úrvinnslu
sögunnar varðar standa Pólland
og Þýskaland þar núna sem Frakk-
land og Þýskaland stóðu á sjötta
áratugnum,“ slær leiðarahöfund-
ur die Welt föstu, og bætir við: „Þá
voru stjórnmálamenn í Bonn og
París sem höfðu djörfung til að
reyna nýjar leiðir. Nú er þörf á
slíkum mönnum í Berlín og
Varsjá.“
ERIKA STEINBACH Forseti Samtaka brottflæmdra í Þýskalandi við opnun sýningarinnar
„Þvingaðar leiðir“ í Berlín fyrir skemmstu. NORDICPHOTOS/AFP
JAROSLAW KACZYNSKI Forsætisráðherra
Póllands valdi að lýsa vanþóknun sinni á
þýsku brottflæmingar-sýningunni er hann
heimsótti minnismerkið um dauðabúðir
nasista í Stutthof við Eystrasaltið í Norður-
Póllandi. Hann og tvíburabróðir hans, sem
er forseti landsins, eru gagnrýndir fyrir að
ala á óvild í garð Þýskalands. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Nágrannaerjur ágerast
LECH WALESAGÜNTER GRASS
Heimild: Hagstofa Íslands.
1965
52
,8
%
52
,2
%
50
,2
%
14
,8
%
1975 1985 1995
63
,4
%
2004
FRÉTTASKÝRING
AUÐUNN ARNÓRSSON
audunn@frettabladid.is