Fréttablaðið - 21.08.2006, Qupperneq 21
ER ÞÍN EIGN AUGLÝST HÉR? MEST LESNA FASTEIGNABLAÐ LANDSINS
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
Fasteignasalan Nýtt heimili hefur til sölu snyrtilegt
einbýli við rólega götu í Litla-Skerjafirði.
Húsið er snyrtilegt bárujárnsklætt timburhús á steyptum
grunni. Húsið er samtals 132,5 fermetrar og stendur á 449
fermetra lóð í góðri rækt. Stór skjólsæll pallur er fyrir utan
húsið og fallegur garður í suðurátt.
Þegar komið er inn í húsið er rúmgott anddyri með ljós-
um skápum og náttúruflísum á gólfi. Eldhúsið er smekklegt
með ljósri innréttingu, blágrýti á gólfi, eldhúsið er opið inn
í borðstofu þaðan sem útgengt er á pall í garði. Stofan er
notuð sem borðstofa og er gegnheill olíuborinn hlynur á
gólfi auk þess sem kamína er í stofunni.
Frá aðalhæð er tréstigi upp á risloft og niður í kjallara. Á
rishæð er rúmgott alrými og leikherbergi með glugga, olíu-
borinn gegnheill hlynur er á gólfum. Hægt er að nýta ris-
loftið betur og innrétta skápa eða hillur undir súð. Í kjallara
eru 3 svefnherbergi, fataherbergi, þvottahús og baðher-
bergi. Sér inngangur er í kjallara og einnig útgengt úr
hjónaherbergi út í garð. Í kjallara er trégólf, steinn og
dúkur á gólfum. Mikið hefur verið endurnýjað í húsinu svo
sem rafmagnslagnir, einangrun, gluggar og klæðning. Þetta
fallega og snyrtilega hús er staðsett í rólegum botlanga í
sjamerandi umhverfi.
Söluverð er 44 milljónir og 900 þúsund krónur.
Snyrtilegt hús
í rólegri götu
Fasteignasalan Nýtt heimili hefur þetta fallega hús í Skerjafirði til sölu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
GÓÐAN DAG!
Í dag er mánudagurinn 21.
ágúst, 233. dagur ársins
2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 5.36 13.31 21.23
Akureyri 5.12 13.16 21.17
Heimild: Almanak Háskólans
Þingeyrarflugvöllur tekinn í notkun
Þingeyrarflugvöllur
var tekinn í notkun
síðastliðinn laugardag,
eftir að endurbótum á
honum lauk. Endurbætur
flugvallarins hófust í júní
árið 2005 og var áætlað
að þeim lyki 1. nóvember
á síðasta ár. Þeim
seinkaði hins vegar vegna
óhagstæðra veðurskilyrða
og lauk því nýverið.
Ein forsenda
endurbótanna var að
auka flugöryggi en við
breytingarnar stækkar
flugbrautin úr 950 m
lengd upp í 1.084 m að
lengd og er 30 m að
breidd. Hliðaröryggissvæði
nær nú 40 m út frá miðju
flugbrautar til beggja
hliða. Veðurathugunarkerfi
er í möstrum við
hvorn brautarenda og
brautarhitamælum hefur
verið komið fyrir en þeir
mæla hita á yfirborði brautarinnar.
Þingeyrarflugvöllur mun einnig nýtast sem önnur flugbraut fyrir
Ísafjarðarflugvöll, þar sem flugvélar af gerðinni Fokker koma til
með að geta lent þar og tekið á loft bæði með farþega og frakt.
Verktaki er KNH verktakar en Hönnun hf. á heiðurinn að hönnun
hennar. Þetta kemur fram á vef Vestfirskra frétta www.bb.is -rve
Þingeyrarflugvöllur fyrir breytingar.
Hér er nýja flugbrautin komin.
MYNDIR/HÖNNUN
ALDIN OG ÚT-
SPRUNGNAR RÓSIR
Suðræn stemning í gróðurhúsi í
Seljahverfi
HÚS 2
FASTEIGNASÖLUR
101 Reykjavík 18
Ás 8-10
Árborgir 26
Draumahús 20
Eignastýring 23
Eignaumboðið 17
Fasteignafélag Austurl. 13
Fast.miðlunin Mjódd 22
Fyrirtækjasala Íslands 30
Hof 15
Hvammur 22
Húseign 11
Íslenskir aðalverktakar 7
Lundur 24
Lyngvík 29
Lögmat 16
Múli 12
Nýtt heimili 13
Saga 27
S.L.I. 26
Stórborg 6