Fréttablaðið - 21.08.2006, Blaðsíða 22
[ ]
Það er suðræn stemning í
gróðurhúsinu hjá þeim Gísla
Vigfússyni og Sigríði Níelsdótt-
ur í Seljahverfinu því innan um
eðalrósir svigna greinar undan
ávöxtum og berjum.
„Ræktunin er nú aðallega áhuga-
mál Gísla en ég nýt þess að sitja
hér með honum og auðvitað vökva
ég stundum og hreinsa til,“ segir
Sigríður þegar þau hjón eru heim-
sótt í huggulegt gróðurhúsið. Gísli
er ekkert nema hógværðin. „Þetta
er nú bara til að hafa gaman af.
Við komum þessu húsi upp fyrir
þremur árum eða fjórum og sett-
um niður nokkrar plöntur. Síðan
sprettur allt af sjálfu sér. Við
erum í mestu vandræðum með
hindberin þau vaxa svo hratt að
við verðum alltaf að vera að tína.“
En hvaðan skyldi áhuginn á rækt-
uninni sprottinn? „Ætli hann eigi
ekki rætur að rekja til þess að við
bjuggum um árabil í Stuttgart í
Þýskalandi? Þar tíndum við vín-
ber, epli og perur af trjám í garð-
inum okkar. Hér á landi er auðvelt
að rækta vínber í gróðurhúsum.
líka kirsuber og hindber. Það er
aðeins meira haft fyrir perum og
eplin láta á sér standa hjá okkur.
Sennilega verðum við að hafa
karl- og kvenkynstré, þó geta víst
sum trén verið tvíkynja og borið
ávöxt. Perutré þurfa að vera
minnst tvö og af gagnstæðu kyni.
Við erum búin að vera með þau
frá upphafi en erum nú að fá upp-
skeru í fyrsta skipti. Þau þurfa
nokkur ár til að róta sig. Síðan
varð ég mér úti um hungangsflug-
ur í vor sem eflaust hafa hjálpað
til við frjóvgunina – já, Þetta er
allt mjög vísindalegt!“ En hvar
skyldi Gísli hafa fengið ávaxta-
trén. Var hann kannski svo for-
sjáll að taka með sér afleggjara
frá Stuttgart? „Nei,“ svarar hann
kíminn. „Ég keypti plönturnar
bara í gróðrarstöðvum hér á
landi.“
Gróðurhúsið stendur norðan í
móti og þar nýtur sólar á morgn-
ana og síðdegis. Það er um 10 fer-
metrar að stærð og plássið skipt-
ist nokkuð jafnt milli gróðurs og
fólks. Þótt það sé ekki tengt íbúð-
arhúsinu segjast þau hjón oft nota
það sem setustofu. „Við njótum
þess að vera hér alveg frá því í
mars fram í nóvember enda kynd-
um við smávegis bæði vor og
haust. Þannig að glerhúsið lengir
sumarið hjá okkur.“
Ekki segjast þau hafa hug á
vínframleiðslu þó vel gangi að
rækta þrúgurnar. „Þetta er nú svo
smátt í sniðum,“ segir Gísli bros-
andi. „Við fengum tvo klasa í fyrra
og sex núna. En ef uppskeran
heldur áfram að þrefaldast fáum
við átján næst og svo framvegis!“
gun@frettabladid.is
Það er yndislegt að sitja úti á fallegu ágústkvöldi. Til þess að
koma í veg fyrir kvef og skjálfta er þó gott að hafa gashitara eða þykk teppi
með út á svalir eða verönd.
Aldin og útsprungnar rósir
Sigríður og Gísli una sér vel í gróðurhúsinu ásamt tíkinni Dimmu. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Perutréð skilar uppskeru í fyrsta sinn í ár.
Gísli þakkar það býflugunum sem hann
varð sér úti um í vor.
Vínberjaklasarnir voru tveir í fyrra en sex
í ár.
Hindberjaplantan gefur ríkulega af sér.
��������������������
���������������������������
���������������������
��������������
��������������������
���������������� ��������������
����������������������������������
������������������������������
�������������������������������������������
����������������
�����������������
���������������
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
EKKERT GERVIGRAS!
NÝTT OG BETRA GRAS!
WWW.GRAS.IS
Flísar á 50% afslætti.
Mikið úrval af gólfflísum,
tilboð á sturtuklefum.